Dagblaðið - 09.03.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
17
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ingemar réð ekki við
Phil Mahre í Aspen!
- Annar sigur Bandaríkjamannsins í röð í svigi og stórsvigi og hann er nú
aðeins 26 stigum á eftir Svíanum í keppni heimsbikarsins. Getur hins
vegar bætt sig um 68 stig en Stenmark um aðeins f imm
Bandaríski skiðakappinn Phil Mahre
virðist nú stefna hægt og bítandi í sigur
í heimsbikarnum i alpagreinum án þess
Ingemar Stenmark, Sviþjóð, komi við
nokkrum vörnum. í Aspen í Colorado í
Bandarikjunum á laugardag sigraði
Phil Mahre i stórsvigi heimsbikarsins
eftir gífuriega keppni við Stenmark.
Það er fyrsti sigur Mahre í stórsvigi
heimsbikarsins í vetur. Fyrir sigurinn
bætti hann stigatölu sina um 1S stig.
Hafði bezt áður í stórsviginu, náði
þriðja sæti eða 15 stigum, en á laugar-
dag hlaut hann í áttunda sinn stig i stór-
sviginu. Annað sætið gaf Stenmark
ekki stig. Hann er fyrir löngu búinn að
fá þau 125 stig, sem hægt er að fá í
stórsviginu fyrir fimm sigra. Stenmark
hefur sigrað sex sinnum og hefur hlotið
170 stig samtals í stórsvigi. Phil Mahre
100 stig úr átta mótum. Eins og áður
telja aðeins fimm beztu mótin i heims-
bikarnum samanlagt — en öll stigin
telja, þegar krýndur verður sigurvegari
i stórsviginu.
Þeir Ingemar Stenmark og Phil
Mahre voru í algjörum sérflokki í stór-
sviginu í Aspen á laugardag. í fyrri um-
ferðinni var Stenmark með bezta tím-
ann. Keyrði hina 1029 metra braut —
NJARÐVIKURPOLLARNIR
UNNU ÍR ÖRUGGLEGA í GÆR
— í úrslitaleik 5. flokksins íkörfuknattleik
Strákarnir úr 5. flokki í Njarðvík
urðu í gærdag íslandsmeistarar í körfu-
knattleik eftir 54—35 sigur á ÍR i úr-
slitaleiknum, sem fram fór í Hagaskól-
anum. Sigur Njarðvikinganna var
aldrei i hættu. Eftir fyrri hluta fyrri
hálfleiksins leiddu þeir 18—8 og í hálf-
leik var staðan 28—19 þeim i vil. Það
var aðeins rétt í byrjun að ÍR hélt í við
þá, en síðan ekki söguna meir. Staðan
var t.d. um tíma 8—6 fyrir Njarðvik.
Þetta er í fyrsta skipti, sem keppt er í
þessum flokki í körfuknattieik og átta
lið tilkynntu þátttöku í suðvesturlands-
riðlinum. Að auki tilkynnti lið Harðar
á Patreksfirði þátttöku, en liðið komst
íslandsmótið í borðtennis:
Sigurvegarar
frá 5 félögum
ekki til úrslitanna. Njarðvík vann riðil-
inn hér syðra örugglega, en til að fá
fram úrslitaleik var ÍR, sem hafnaði i 2.
sæti suðvesturlandsriðilsins, boðið í úr-
slitin. En Njarðvíkurpollarnir vóru
ekkert á því að gefa eitt eða neitt og
sigruðu afar verðskuldað.
Bæði liðin sýndu á köflum skemmti-
leg tilþrif en eins og venjulega voru
nokkrir leikmenn, sem vöktu meiri at-
hygli en aðrir. Fyrirliði Njarðviking-
anna, Kristinn Einarsson, er greinilega
þeirra sterkastur, en þeir Eðvarð
Eðvarðsson og svo minnsti maður vall-
arins, Helgi Arnarsson, vöktu einnig
athygli fyrir frammistöðu sína. Helgi
geysilega baráttuglaður. Hjá ÍR eru
það þeir Björn Þorvaldsson og
Sigurður Einarsson (Ólafssonar, þjálf-
ara) sem bera liðið uppi ásamt Einari
Hilmarssyni. -SSv.
fallhæð 399 m og hlið 65 — á 1:35,24
sek. Phil Mahre var skammt á eftir.
Keyrði á 1:35,43 min. Síðan var langt í
þriðja mann. í því sæti var Svisslend-
ingurinn Jean-Luc Fournier á 1:37,01
mín.
1 síðari umferðinni keyrði Phil
Mahre geysilega vel. Náði 33 hundr-
uðustu úr sekúndu betri tíma en Sten-
mark og stóð því uppi sem sigurvegari í
lokin. Samanlagður tími hans í báðum
umferðum var 3:12,76 mín. en tími
Stenmark 3:12,90 mín. í þriðja sæti var
tvíburabróðir Phils — Steve Mahre, en
langt á eftir. Samanlagður tími hans
var 3:15,22 mín. Síðan kom Joel
Gaspoz, Sviss, en Jean-Luc Fournier
féll niður í fimmta sæti.
Eftir þessa keppni er Stenmark efstur
í keppni heimsbikarsins með 260 stig.
Hann getur aðeins bætt við sig fimm
stigum til viðbótar með því að sigra í
öðru af þeim tveimur svigmótum, sem
eftir eru. f Furano í Japan 14. marz eða
i Borowetz i Búlgaríu 24. marz.
Phil Mahre er kominn með 234 stig
— aðeins 26 stigum á eftir Stenmark.
Hann hefur möguleika til að auka veru-
lega við stigatölu sína. Þrjú mót eru
eftir í stórsviginu — það er í Furano,
Borowetz og Kranjaka í Júgóslavíu.
Sigri Mahre t öllum þessum mótum,
sem er afar óliklegt, getur hann bætt
stigatölu sína um 36 stig. Með sigri í
báðum svigmótunum, sem eftir eru,
getur Mahre bætt sig þar um 32 stig —
eða samtals í þessum fimm mótum um
68 stig. Hann gæti því hugsanlega farið
yfir 300stigin í keppni heimsbikarsins.
í sviginu hefur Stenmark sigrað
fjórum sinnum. Hlotið samtals 155 stig
í sjö mótum. Phil Mahre hefur hlotið
80 stig í sex mótum í sviginu.
-hsím.
Fyrsti hluti íslandsmótsins í borð-
tennis var haldinn í Laugardalshöll í
gær. Keppt var i yngri flokkunum.
Þátttaka mikil og úrslit urðu þessi.
Einliðaleikur telpna 13 ára og yngri:
1. Berglind Steffensen, Erninum
2. Guðleif Kristjánsdóttir, UMSB
3. Guðrún Rós Maríusdóttir, UMSB
í þessum flokki léku allar við allar og
sigraði Berglind nokkuð örugglega,
hún sigraði Guðleifu 21-15 og 21-16.
Einliðaleikur meyja 13—15 ára:
1. Rannveig Harðardóttir, UMSB
2. Gróa Sigurðardóítir, KR
3. Arna Sif Kjærnested, Vikingi
Hér var líka leikið allar við allar og
sigraði Rannveig örugglega, hún vann
Gróu 21-8 og 21-7.
Einliðaleikur stúlkna 15—17 ára:
1. Ragnhildur Sigurðardóttir, UMSB
2. Erna Sigurðardóttir, UMSB
3. Sigrún Bjarnadóttir, UMSB
4. Kristin Njálsdóttir, UMSB
Ragnhildur vann Ernu 21-17 og 21-7
og sigraði örugglega, en hörð barátta
var um 2. sæti og voru 3 stúlkur jafnar
að vinningafjölda, og gilti þá hver
hafði hagstæðasta vinningshlutfall á
lotum.
Einliðaleikur pilta 13 ára og yngri:
1. Snorri Páll Einarsson, Gerplu
2. Baldur Bragason, KR
3. Vilhelm Gunnarsson, Gerplu
Snorri vann Baldur 21-17 og 23-21 í
mjög spennandi leik, og eru þeir báðir
efnilegir borðtennisspilararar.
Einliðaleikur sveina 13—15 ára:
1. Kristinn Már Emilsson, KR
2. Birgir Sigurðsson, KR
3. Andri Marteinsson, Víkingi
Kristinn van Birgi 21-18 og 21-18 í
jöfnum leik. Þessir tveir félagar
börðust einmitt um sigurinn á ungl-
ingamóti KR i febrúar en þá sigraði
Birgir og Kristinn varð í 3. sæti.
Einliðaleikur drengja 15—17 ára:
1. Einar Einarsson, Vikingi
2. Jóhannes Hauksson, KR
3. Jónatan Þórðarson, KR
í þessum flokki var mjög hörð bar-
átta á milli Einars og Jóhannesar og
voru þeir áberandi beztir. Þar sem var
leikinn tvöfaldur útsláttur í þessum
flokki þurftu þeir að leika tvo leiki sín á
milli og sigraði Einar i þeim báðum
eftir spennandi leik, í seinni leiknum
21-15, 16-21 og 21-19.
Tviliðaleikur sveina 15 ára og yngri:
1. Kristinn Már Emilsson
og Birgir Sigurðsson, KR
2. Bergur Konráðsson
og Andri Marteinsson, Vík.
3. Bjarni Bjarnason
og Snorri Einarsson, Gerplu
í þessum flokki var einnig leikinn
tvöfaldur útsláttur og þurfti þrjá leiki á
milli tveggja efstu paranna til að fá
fram úrslit. í fyrsta leiknum sigruðu
Kristinn og Birgir, i öðrum Bergur og
Andri en í úrslitaleiknum sigruðu KR-
ingarnir 18-21,2I-24og21-14.
Tvíliðaleikur drengja 15—17 ára:
1. Einar Einarsson og
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
2. Jóhannes Hauksson og
Jónatan Þórðarson, KR
3. Guðmundur Gislason og
Gísli Eggertsson, UMSB
Víkingarnir sigruðu KR-ingana 21-
12, 16-21 og21-ll.
Tvenndarkeppni unglinga 17 ára og
yngri:
1. Jóhannes Hauksson, KR,
og Erna Sigurðardóttir, UMSB
2. Jónatan Þórðarson, KR,
og Sigrún Bjarnadóttir, UMSB
3. Guðmundur Gíslason og
Rannveig Harðardóttir, UMSB
Erna og Jóhannes sigruðu þarna
örugglega, þau unnu Sigrúnu og Jóna-
tan 21-10og 21-19.
Mótinu verður síðan framhaldið 14.
og 15. marz.
7. marz var einnig keppt i einliðaleik
öldunga (30 ára og eldri) og urðu úrslit
þau að sigurvegari varð Emil Pálsson,
Erninum, hann sigraði íslandsmeistar-
ann frá þvi í fyrra, Jóhann Örn Sigur-
jónsson Erninum, tvisvar, i seinna
skiptið 16-21,21-17 og 21-11.
■''5
Viggó
skoraði átta
— en það nægði ekki
gegn Evrópumeisturum
Groswallstadt
Meistarar Grosswallstadt áttu í hin-
um mestu erfiðleikum með Viggó
Sigurðsson, þegar þeir léku við Bayer
Leverkusen í vestur-þýzku bundeslíg-
unni fyrir helgi. Þetta var hörkuleikur i
Leverkusen en meistarar Grosswall-
stadt voru harðari á lokasprettinum.
Sigruðu með fjögurra marka mun,
17—13, eftir að Bayer Leverkusen
hafði haft yfir i hálfleik, 8—6.
Viggó Sigurðsson skoraði átta af 13
mörkum Bayer Leverkusen — eða
meira en helming marka liðsins, þótt
það nægði ekki. Bayer Leverkusen
hefur hlotið 15 stig og er komið í fall-
hættu á ný. Tvö lið eru fallin en þrjú lið
berjast um þríðja fallsætið. Leverkusen
og Dankersen eru þar á meðal. Danker-
sen hefur hlolið 13 stig og annað lið er
með sömu stigatölu.
Þrátt fyrir tapið voru lcikmenn
Levcrkusen frekar ánægðir með leik-
inn. Falla varla ef þeir ná slikum lcik
gegn öðrum liðum.
- hsím.
Landsliðin
gistu á
Hornafirði
Kvenna- og unglingalandslið íslands
i blaki sem áttu að leika i Færeyjum um
helgina, komust ekki lengra en á
Hornafjörð. Vél frá Arnarflugi, sem
flutti hópinn, lenti á Hornafirði til að
taka eldsneyti sl. fimmtudag. Er ætlun-
in var að halda för áfram var veðurútlit
svo slæmt að óráðlegt þótti að fljúga til
Færeyja. Gisti hópurinn á Hornafirði
um nóttina en daginn eftir var veður
ekki skárra svo ákveðið var að fresta
leikjunum og halda aftur til Reykja-
víkur.
- KMU
HALLUR
SÍMONARSON.
Barcelona lék
án Quini
— og tapaði fyrir
Atletico Madrid
KnattspyrnusambancLSpánar neitaði [
að frcsta leik Atletico Madrid og Barce-:
lona, efstu liðanna í 1. deild, þó svo I
Barcelona yrði að leika án iniðherjans :
Quini, sem rænt var fyrir rúmri viku.
Barcelona bað um frestun, en fékk I
þvert nei. Liðin léku i gær og Atletico :
sigraði 1-0. Hefur því náð fjögurra í
stiga forskoti. Danski leikmaðurinn,
Allan Simonsen, hafði neitað að leika
með Barcelona. Sagðist óttast um líf
sitt. Vildi helzt heim með fjölskyldu [
sína. Ekki var þess getið i fréttum i gær)
hvort einhverja fleiri leikmenn en Quni i
hefði vantað hjá Barcelona. Félagið
hefur ákveðið að greiða þá upphæð,
sem ræningjar Quni hafa sett upp en
ekki er vitað hvar og hvenær, eða hver'
upphæðin er. Úrslit á Spáni urðu þessi. Atl. Madrid—Barcelona 1—0
Hercules—Salamanca 3—2
Real Betis—Zaragoza 2—0
Sociedad—Real Madrid 3—1
Las Palmas—Valladolid 0—2
Osasuna—Almeria 2—1
Valencia—Bilbao 0—0
Sporting Gijon-Sevilla 3—0
Espanol—Murcia 2—1
Phil Mahre, USA, hefur greinilcga tekið stefnuna á sigur í heimshikarnum saman-
lagt.
Staða efstu liða er nú þannig. Níu
umferðir eftir.
Atl. Madrid 27 16 7 4 43—28 39 j
Barcelona 27 16 3 8 57—31 35
Gijon 27 12 9 6 45—28 33
Valencia 27 13 7 7 47—32 33
Sociedad 27 14 5 8 38—25 33
Ral Madrid 27 13 5 9 47—32 31