Dagblaðið - 09.03.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981. 19
Lúdrasvcit Reykjavikur lék nokkur eldhress lög undir stjórn Björns R. Einarssonar Langt fram eftir degi mátti sjá unga jafnt sem aidraða notfæra sér göngubrautirnar á Mikiatúni.
við upphaf Skfðadagsins.
Skúii Ingibergsson ávarp. Borgarstjóri
kom inn í það i ávarpi sínu að fólk ætti
að gefa sér meiri tíma til að leika sér og
nota útivistarsvæði borgarinnar meira.
Hann þakkaði Dagblaðsmönnum fyrir
það frumkvæði að vekja á þennan hátt
athygli á útivist innan borgarinnar.
Hann lét þess einnig getið að það yrði
líka vel þegið ef hugmyndaauðgi Dag-
blaðsmanna yrði til þess nú á ári
fatlaðra að eitthvað yrði gert til þess að
fatlaðir gætu einnig verið virkir þátt-
takendur í útivist og leik.
Að loknu ávarpi borgarstjórans
hófst Skiðadagurinn með því að skíða-
menn úr Skiðafélagi Reykjavíkur
leiddu gönguna á gönguslóðirnar, sem
merktar höfðu verið um Miklatún.
Einnig veittu þeir þeim sem vildu
tilsögn i því hvernig menn eiga að bera
sig að við gönguna.
Mikil ös var í kringum pylsuvagninn
sem var við Kjarvalsstaði. Þar var á
boðstólum ókeypis Carnation kakó og
Frónkex fyrir gesti og gangandi og var
greinilegt að fólk kunni vel að meta að
fá hressingu í góða veðrinu á laugar-
daginn. Börnin fengu líka endurskins-
merki með merki Sktðadagsins.
Langt fram eftir degi á laugardaginn
mátti sjá göngufólk á Mikiatúni og
einnig var þar fjöldi fólks sem naut úti-
verunnar og yngri kynslóðin skemmti
sér vel á sleðum og snjóþotum því víða
er ágæt aðstaða til að renna sér.
í gærdag mátti svo sjá að margir
notfærðu sér að búið var að leggja
göngubrautirnar á Miklatúni því þar
mátti sjá fólk á skíðum og í hádegisút-
varpinu var fólki bent á það jafnframt
að Bláfj-allasvæðið væri lokað, að
ágætasta aðstaða væri til skíðagöngu á
Miklatúni.
Þeir Skíðafélagsmenn voru mjög
ánægðir með það hversu margir hefðu
komið og gengið með á laugardaginn.
Það að opna augu fólks fyrir því að
ekki þurfi að leita langt yfir skammt til
að njóta útiveru á skíðum væri lofsvert
og einnig að betri fjölskylduíþrótt væri
vart hægt að finna.
-JR.
Á tímabili voru nær óslitnar raðir göngufólks á Miklatúni og þar mátti jafnt sjá
þaulæfða göngumenn sem þá sem voru að stiga sin fyrstu skref á skiðum.
Nýi bíllinn
frá Kóreu
Kr. 66.500.—
miðað við lúxusútbúnað, svo sem: stereo útvarps
og kassettutæki, plussáklæði. leppi á góll'um.
höfuðpúða, klukku, hitaðri afturrúðu o. fl.
Ryðvörn innifalin í verðinu.
4ra strokka fjórgengisvél, 1439 cc með
ofanáliggjandi knastás.' 4ra gíra. al
samhæfður gírkassi, eigin þyngd 910
kíló, aflbremsur, diskabremsur að
framan og skálabremsur að aftan.
McPerson gormafjöðrun að l'raman.
blaðfjaðriraðaftan.
Frábærir akslureiginleikar. Sýningarbíll
á staðnum.
Sýningarbíll á staðnum.
Sðillið
U/uOUof
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Philco
þvottavélar og þurrkarar hafa sýnt
og sannaö ágæti sitt
á ísienskum heimilum í áraraöir.
/ersdagsleg!
neimmsieðki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
'*i ;