Dagblaðið - 30.04.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
27
14
ð
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
x<-s •
Flosi skorar hér eina fjölmargra karfa sinna á siðasta kcppnistimabili. Meöalskor hans var 16,4 stig. Fyrra árið var það 17,5 stig.
Möller vill vera áf ram hjá Bristol City
Jan Möller, sem Malmö FF seldi I
vetur tll Bristol City, hefur verlfl sagður
áfjáður I að snúa aftur heim en I gaer
neltaði hann að fara til Vancouver
Whltecaps I Bandarlkjunum.
Whltecaps buðu 200.000 pund I
kappann og var Bristol City búið að
samþykkja er Möller neltaði. Sagðist
vilja vera áfram hjá félaginu sem er
falllð i 3. deild. Malmö seldi hann á
140.000 pund I desember.
Sigurður Ág. Jensson ræðir við Flosa Sigurðsson
JÆJA, SYNDU 0KKUR AD
ÞÚ KUNNIR AD TROÐA”
Frá Sigurði Ág. Jenssyni i Seattle i
Bandarikjunum:
Flosi Sigurðsson, sonur hjónanna
Sigurðar M. Helgasonar og Erlu Flosa-
dóttur, hefur verið heilmikið f fréttum
hér um slóðir eftir að hann gekk endan-
lega til liðs við University of Washing-
ton-háskólann og það var þvi tilvalið
að spjalla við hann um dvöl hans hjá
Olympia High School og svo framtið-
ina, en hann hefur gert samning til
fjögurra ára við háskólann.
Flosi er ekki nema tvítugur að aldri
og hefur æft körfuknattleik reglubund-
ið I 8 ár. „Ég byrjaði bara á því að fara
með pabba á æfingar og var strax
ákveðinn í að verða eins og hann.
Pabbi var I KFR og ég gekk í félagið,
sem síðan innlimaðist í Val. Fór svo í
Fram 16 ára gamall en skipti aftur yfir í
Val í fyrra til að keppa í Evrópukeppn-
inni. Ég gerði það bara fyrir pabba, en
er alltaf Framari í mér.”
Hvenær lékstu fyrst með meistara-
flokki Fram?
i.Ég var 18 ára gamall og þjálfari
okkar var þá Gunnar Gunnarsson, en
hann var einnig þjálfari unglingalands-
liðsins. Siðan tók John Johnson við af
honum og ég vil sem minnst um hans
þátt segja. Mjög skiptar skoðanir voru
um ágæti hans en hann hefur vafalítið
ætlað sér að gera vei. Ég kynntist hins
vegar ýmsu nýju hjá honum í æflngum
sem ég hef svo séð hér í Bandaríkjun-
um.
Sambönd
Hvernig komstu svo i samband við
körfuknattleikinn hérna?
,,Það var Tom Holton, forstjóri
Hildu hf., sem hafði miliigöngu um að
koma mér hingað út. Hann hefur góð
sambönd hérna og kom Pétri hingað á
sinum tíma. Ég lagði af stað aðeins
viku eftir að ég útskrifaðist úr Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti sem tré-
smiður og var samferða Pétri sem þá
var enn í University of Washington. ”
Marv Harsman, þjálfari hjá UOW,
hefur ekkert staðið i sambandi við för
þfna?
,,Nei, hann kom ekki nálægt þessu á
einn eða neinn hátt. Nafn hans hafði
reyndar aðeins verið nefnt, en síðan
ekkert meira.”
Mállaus
Hvernig leið þér fyrst við komuna
hingað?
,,Ég var svo til alveg mállaus og það
háði mér dálitiö framan af. Ég gerði
samkomulag við Capitol High-skólann
í Olympia til tveggja ára og megin-
ástæðan fyrir þeirri ákvörðun var að
þar var góður þjálfari, Chuck Gear-
hort. Svo spilaði það auðvitað einnig
inn í að vera í nágrenni við Pétur og
hafði sín áhrif.
Það hafði verið ákveðið að Chuck
þessi kæmi og sækti mig á ákveðna
bensínstöð og þar sagði ég skilið við
Pétur og beið þess er verða vildi. Nú
Chuck kom svo og sótti mig og áður en
hann sagði nokkuð spurði hann:
„Kanntu að troða?” Ég kvað já'við því
og síðan var ekið af stað sem leið lá til
Olympia, sem er um 90 mín. akstur frá
Seattle. Með í ferðinni var sú kona
sem síðan hefur verið mér sem hin
bezta móðir, Charlotta Kormon, og á
hennar heimili hef ég búið síðan. Það
er til siðs hér í Bandaríkjunum að fólk
sem tekur erlenda námsmenn inn á
heimili sin tekur þá sem einn af fjöl-
skyldunni og ég var engin undantekn-
ing. Við erum „tveir” synir þeirra hér
og þau gera engan greinarmun á okkur
og sínum raunverulegu sonum, Jeff og
Jim.
Upphaflega var ákveðið að ég dveldi
hjá þeim í 6 mánuði. Þau voru eigin-
lega að gera vini sínum, þjálfaranum
Gearhort, greiða með því að taka mig
að sér. Eftir þessa sex mánuði átti ég
síðan að fara til annarrar fjölskyldu.
Þau fundu það hins vegar strax á sér að
mér var ekkert um að fara og það var
mér þvi ólýsanlegur léttir þegar þau
- sagði þjálfarinn við komuna til Olympía. „Mér fannst
skrýtið að vera drif inn beint í leik áður en ég var búinn
að taka upp úr töskunum, ”segir Flosi
komu til mín og sögðu að ég gæti ráðið
því hvort ég dveldi áfram hjá þeim eða
færi til hinnar fjölskyldunnar. Það var
ekki erfið ákvörðun og eins og ég sagði
áður hafa þau reynzt mér eins og beztu
foreldrar.”
„The big one"
En hvað tók svo við?
„Við ókum rakleiðis til íþróttahúss-
ins í skólanum og er inn var komið
sagði Gearhort: „Jæja, sýndu mér að
þú kunnir að troða.” Að sjálfsögðu
gerði ég það og síðan voru sóttir skór
og galli handa mér og byrjað að spila.
Það beið heill hópur, svei mér, ef bara
ekki allur skólinn, eftir því að sjá „the
big one” frá íslandi. En mér fannst það
vægast sagt skrýtið að vera drifinn
beint í leik áður en ég hafði svo mikið
sem tekið upp úr töskunum. Síðan hef
ég leikið eða æft daglega, a.m.k. 6
daga í viku og þrjá tima á dag.”
Hvernig fer skólakeppnin fram?
„Já, þetta eru allt saman skólalið,
engin félagslið eins og heima, og þann-
ig er þetta í gegnum aiit háskólastigið.
High school deildin er að sjálfsögðu
geysilega stór, en okkar skóli er í hópi
þeirra stærstu, þ.e. svokallaður AAA.
Síðan er flokkað niður í AA og svo A
og B. Á þessu keppnistímabili, sem er
nýlega lokið, komumst við í undanúr-
slit í Washington-fylki, en töpuðum er
þangað var komið. Það er stórgóð
frammistaða því AAA-skólar í Wash-
ington eru sjálfsagt vel á annað hundr-
aðið.”
Slagsmál
Eru ekki aðrar reglur i High School
en College?
„Jú, þær eru aðeins öðruvisi, og
miklu strangari. T.d. eru engar snert-
ingar af neinu tagi leyfðar en í College
er leyft mun meira og reglurnar þar
meira í ætt við það sem við þekkjum að
heiman. Það er þó ekkert líkt því sem
viðgengst hér í NBA-atvinnumanna-
deildinni því það er hreinlega eins og
handboltinn heima á köflum. Tóm
slagsmál og læti. I college-boltanum
eru heldur engar reglur um það hve ein
sókn má standa lengi yfir (hér heima
eru það 30 sek.) auk þess sem þrír dóm-
arar eru i leiknum. í NBA-deildinni er
hver leikur hins vegar 4x12 mínútur og
sóknin þar má ekki vera lengri en 24
sek. og klukkan er aldrei stöðvuð þótt
brotið sé á sóknaraðila. ”
Hvernig hefur þér sjálfum gengið
þessi tvö ár sem þú hefur dvaliö hér?
„Mér hefur gengið mjög vel og hæð-
in hefur komið mér að góöum notum
og ég hef haft hana umfram alla mína
mótherja. Þeir hafa reynt ýmislegt til
að stöðva mig, en ekki tekizt. Þó hef ég
sloppið við meiriháttar meiðsli.”
200 bróf
Hvað er þér efst i huga á þessum
timamótum er þú hefur samið við
University of Washington?
„Ég er vægast sagt í sjöunda himni.
Þetta hefur að vísu legið í loftinu um
nokkum tíma, en þegar allt er frá geng-
ið er tilhlökkunin það eina, sem kemst
aðíhuga manns.”
En hvi valdirðu Huskies (Unlv. of
Wash.)?
„Ég hef fengið aragrúa tilboða,”
segir Flosi og sýnir mér yfir 200 bréf þvi
til stuðnings. „Ég fór og skoðaði. mig
um hjá nokkmm, m.a. North Carolina
State, University of Wyoming, Arizona
State University, University of Ari-
zona, Oregon State University og svo
University of Washington. Ég valdi
þann síðasttalda vegna þess að ég hef
geysimikið álit á Marv Harshman þjálf-
ara. Hann hefur reynzt sérstaklega
góður fyrir stóra menn og ég er 2,13
metrar, þannig að það hafði mikið að
segja. Nú, bara það eitt að vera hér
áfram í Washington-fylki var freistandi
því hér er gott að vera. Ekki spillir fyrir
að vera í nálægð við þetta stórkostlega
fólk, sem tók mig aðsér.”
Fríðindi
Hvaða fríðindi færðu hjá skólanum?
„Ég fæ bækur, húsnæði og fæði
frítt í þessi fjögur ár, auk allra skóla-
gjalda að sjálfsögðu.”
Einhverja vasapeninga?
„Nei.”
Nú hefur maður heyrt það að
college-leikmenn fái vasapening?
„Ekki ég a.m.k.,” sagði Flosi og
vildi greinilega ekki ræða þetta mál
frekar.
Harsman
Huskies er gott og frægt lið. Hverjir
eru þínir möguleikar i liðinu?
„Ég held að þeir séu góðir. Harsman
er að byggja upp nýtt lið fyrir úrslita-
keppnina 1983—1984, en hún verður
einmitt haldin í Seattle. Við erum „þrír
stórir” sem gerðum samning við skól-
ann nú, en ég held að ég eigi nokkuð
góða möguleika á miðherjastöðunni.
Ef út í það fer hins vegar, get ég vel
hugsað mér að leika framvörð ef svo
ber undir. Við munum leika í svoköll-
uðu „pack 10”, sem er deild 10 beztu
liðanna hér á vesturströndinni og á
meðal liðanna þar er UCLA og undir-
búningurinn hófst nú fyrir viku síðan.”
Stefnir hugurinn i NBA-deildina að
þessum 4 árum loknum?
„Óneitanlega, en baráttan er æðis-
gengin. Ég læt þetta bara ráðast, hvað
verða vill verður framtíðin að skera úr
um.”
Flosi hefur þreknað mikið frá því
hann var heima fyrir tveimur árum og
að eigin sögn telur hann lyftingar eiga
mestan þátt í að svo er. „Heima virtust
iyftingar vera bannorð hjá körfuknatt-
leiksþjálfurum, en þær eru nauðsynleg-
ar til uppbyggingar. Þær verða að vera
með ætlirðu þér að ná einhverjum
árangri,” sagði Flosi í lokin. Af spjall-
inu við hann má ráða að þar fer
íþróttamaður sem setur markið hátt og
keppir að þvi af heilum hug.
Sig.Ág.Jenss./-SSv.
Sverrir Herbertsson, KR, sem skoraði markið í gær, sækir hér að Sigurði Haraldssyni, markverði Valsmanna.
DB-mynd S.
L0KS SIGUR HJA KR
— unnu Valsmenn 1-0 á Reykjavíkurmótinu í gær
KR-ingar lögðu Valsmenn að velli,
1—0, í Reykjavfkurmótinu í knatt-
spyrnu i gærkvöld eftir að Hliðarenda-
liðið hafði sótt megnið af siðari hálf-
leiknum. KR-ingar hins vegar sprækir i
þeim fyrrl.
Það var Sverrir Herbertsson sem
skoraði sigurmarkið á 79. mínútu eftir
háa fyrirgjöf frá hægri. Skallaði hann
knöttinn i netið úr nokkuð þröngri
stöðu. Matthías Hallgrímsson var vörn
KR erfiður i gær og fékk tvö góð færi.
Einkum og sér í lagi var hann fádæma
klaufi að skora ekki í því síðara. Stefán
Jóhannsson varði meistaralega frá hon-
um i bæði skiptin. -
4
Góður sigur
hjá írunum
írar unnu góðan sigur á Tékkum i
vináttulandsleik i Dyflini f gærkvöld.
Lokatölur 3—1 eftir 1—0 í hálfleik.
Það var Man. United lelkmaðurinn
Kevin Moran sem kom manna mest á
óvart og skoraði 2 markanna. Frank
Stapleton hið þriðja. Marian Masny
svaraði fyrir Tékka en i lið þeirra vant-
aði nokkra lykilmenn.
Þetta var fyrsti sigur KR í mótinu og
um leiö vænkaðist hagur Fylkismanna
enn frekar og líkumar á að litla Árbæj-
arliðið verði Reykjavíkurmeistari í
fyrsta sinn eru talsvert miklar að svo
komnumáli. -SSv.
URSLITIN MILLIHK og KA
Úrslitaleikur 2. deildarinnar i hand-
knattleik fer fram i Laugardalshölllnni
í kvöld kl. 20 og mætast þar HK og KA
sem urðu efst og jöfn i deildinni. HK
hafði þó mun betri markamun en slfkt
gildir vist ekki hériendis.
Eftir leikinn munu sennilega allir
leikmenn Uðanna og margir aðrir halda
inn i Sigtún þar sem lokahóf HSÍ hefst
kl. 21.30. 'Verðlaun verða afhent kl.
22.30 stundvfslega. Er ekki að efa að
fjör verður i Túninu, sem endranær.
Undankeppni
HM ’82 á fullu
Englendingar urðu fyrir öðru
áfallinu I röð á Wembley á skömm-
um tima er þeim tókst ekki að sigra
Rúmena i gærkvöld f 4. riðli undan-
keppni HM. Leiknum lauk með
markalausu jafntefli og þótti
frammistaða leikmanna Englands
vægast sagt slök. Eitt af fáum
góðum marktækifærum Englend-
inga kom strax á 5. minútu er
Brooking skallaði framhjá i dauða-
færi eftir fyrirgjöf Coppell.
Rúmenar komu greinilega til
leiksins með þvi hugarfari að ná
öðru stiginu en komust fskyggilega
nærri þvi að hirða þau bæði er
Shllton missti klaufalega yfir sig
langan skallaknött frá Balaci. Mun-
aði ekki nema hársbreidd að hann
hafnaði i netinu en á sfðasta augna-
bliki náði hann að siá knöttinn
framhjá.
Enginn leikmaður úr Liverpool
lék með enska liðinu og er það að-
eins f þriðja skipti sl. 10 ár að svo
er. Enska liðið var ákaflega ósann-
færandi og hinir 62.500 áhorfendur
hrópuðu látlaust sfðustu 10 mínút-
urnar „what a load of rubbish”.
Lið England var þannig skipað:
Shilton, Anderson, Watson, Rob-
son, Osman, Sansom, Wilkins,
Brooking, Coppell, Francis og
Woodcock.
Staðan í 4. riðli:
England 4 2 11 7-3 5
Rúmenfa 3 110 3—2 3
Noregur 3 111 3—6 3
Ungv.land 10 10 2-21
Sviss 3 0 1 2 4—6 1
Fischer skoraði
Klaus Fischer átti stórgóðan leik
með V-Þjóðverjum er þeir iögðu
Austurrikismenn að velll, 2—0, í
Hamborg i 1. riðli undankeppni
HM f gærkvöld. V-Þjóðverjarnlr
höfðu umtalsverða yflrburði
framan af en Austurrfklsmennirnir,
með Bruno Pezzey í hörkuformi,
vörðust með kjafti og klóm. Loks á
30. mínútu gaf vörnin sig og þurfti
sjálfsmark Krauss, sem lék sinn
fyrsta landsleik, til. Hann ætlaði að
stöðva sendingu tii Felix Magath en
stýrði knettinum snyrtllega fram
hjá Friedl Koncilia i markinu.
Aðeins sex mínútum siðar skoruðu
V-Þjóðverjar síðara mark sitt.
Manfred Kaltz gaf þá vel fyrir
markið en Kociiia varði skalla
Rummenigge. Knötturinn barst tll
Fischer sem þrumaði i netið.
Staðan f 1. riðli:
V-Þýzkaland 3 3 0 0 7-1 6
Austurrikl 4 3 0 1 8-2 6
Búlgaria 3 2 0 1 5-4 4
Albania 5 1 0 4 3-10 2
Finnland 3 0 0 3 0-6 0
Naumt í París
Frakkar sigruðu Belga 3—2 í
sannkölluðum þrumuléik í Paris i 2.
rlðli undankeppni HM. Sigur
Frakkanna hékk á bláþræði þvi
undir lokin sóttu Belgar af geyslleg-
um krafti en tókst ekkl að jafna
þrátt fyrir góð færi. Sigur Frakk-
anna gerir það að þeir standa nú
bezt að vigi i riðlinum en enn getur
margt gerzt.
Það voru Belgar sem skoruðu
fyrst. Erwin Vanderbergh skoraði
failegt mark á 5. minútu en Frakkar
voru ekki nema 8 mfnútur að svara
fyrir sig — Soler á 13. mín. Frakkar
léku án þriggja beztu sóknarmanna
sinna en það virtist ekki há þeim
verulcga. Dider Six skoraöl annað
mark Frakkanna á 26. min. og
aðeins 5 min. siðar skoraði Soler
aftur, hlnum 50 þúsund áhorfend-
um til mikillar gleði. Belgar hófu
siðarl hálfleikinn með miklum lát-
um og strax á 51. minútu skoraði
Jan Ceulemans en þar við sat þrátt
fyrir ákafa sókn Belganna i lokin.
Hollendingar sigruðu Kýpurbúa
aðeins 1—0 f leik liðanna i þessum
riðli að viðstöddum 10.000 áhorf-
endum í Limassol. Eina mark leiks-
ins skoraði Cees van Kooten í fyrri
hálfleik.
Staðan i 2. riðli:
Belgfa 6 4 11 10-6 9
írland 6 3 12 12-7 7
Frakkland 4 3 0 1 12-3 6
Holland 5 3 0 2 6-3 6
Kýpur 7 0 0 7 4-25 0
Burst Slava
Ekki varð þjáifara Grikkja að
ósk sinni er hann spáði því í fyrra-
kvöld að hans menn myndu vinna
1—0 sigur á Júgóslövum i Split i
gær. Heimamenn sýndu frábæran
leik og spiluðu Grikkina sundur og
saman frá fyrstu mfnútu til hinnar
síðustu og uppskáru 5—1 sigur.
Slijvo skoraði strax á 7. mínútu og
síðan bættu þeir Haiilhodzic á 23.
mín., Pantelic úr víti á 43. mín. og
Vujovic á 50. og 57. mín. við
mörkum. Eina mark Grikkjanna
skoraði Kostlkos úr víti á 76. mín-
útu.
Staöan i 5. riðli:
ítalia 4 4 0 0 8-0 8
Júgósl. 4 3 0 1 12-4 6
Grikkland 5 3 0 2 6-7 6
Danmörk 4 1 0 3 5-5 2
Luxemborg 5 0 0 5 0-15 0
Dýrkeyptur
sigur
Norður-írar unnu góðan en e.t.v.
dýrkeyptan slgur á Portúgölum f
Belfast i gærkvöld f 6. riðli undan-
keppni HM. Eina mark leiksins
skoraði Gerry Armstrong á 74.
minútu, strax eftlr að lelkurinn
hófst að nýju eftir hlé sem norski
dómarinn, Sveln Thime, gerði eftir
að markvörður Portúgaianna,
Bento, hafði fengið sendingu frá
áhorfendum í höfuðið. Er ekki að
efa að þetta framferði verður kært
og kunna N-írar að missa heima-
leiki vegna þessa atviks.
N-lrarnir voru lengst af mun
betrl aðilinn og Portúgalarnir fengu
aðeins eltt almennilegt færl. Pietro
skaut þá framhjá í mjög góðu færi
eftlr slæm varnarmistök á mlöju
vallarins. Sta0gn, 6 r,0„.
Skotland 5 3 2 0 6-2 8
N-frland 5 2 2 1 5-2 6
Portúgal 4 2 114-15
ísrael 6 0 3 3 2-8 3
Sviþjóö 4 0 2 2 1-5 2
NAMSKEIÐ FYRIR FATLAÐA
HALDIN í HEIÐARSKÓLA
,,Sú breyting verður á starfsemi
iþróttaskólans að i sumar verða nám-
skeiðln eingöngu mlðuð við fatlað fólk
og aðstoöarfólk þess,” sagði Sigurður
R. Guðmundsson skólastjóri, sem und-
anfarin sumur hefur reldð iþróttaskóla
að Heiðarskóla i Borgarflrði. Íþrótta-
skóli S.R.G. hóf starfsemi sina 1968.
Skólinn hefur það markmið að velta
fræðslu i fþróttum og félagsstarfi og er
fræðslan byggð upp á námskeiðum. Í
sumar verða þau eingöngu miðuð við
fatiað fóik.
Eins og undanfarin ár er val íþrótta-
greina hagað eftir þátttakendum. Þar
má nefna: bossíu, borðtennis, sund,
trampolín, knattleiki, frjálsar íþróttir
og ýmsa leiki innanhúss og utan. Þá
verður hestamennska fastur liður en sú
grein nýtur mikilla vinsælda, ekki sízt
hjáfötluðum.
Mikil áherzla er lögð á að félagslíf sé
í góðu lagi. Haldnar verða kvöldvökur,
kenndur dans og mikið sungið. Þvi er
mjög æskilegt að þátttakendur taki
með sér hljóðfæri, hugmyndir að
skemmtiatriðum og góða skapiö þegar
þeir koma.
Fatlað fólk sem þarfnast séraðstoðar
þarf að hafa með sér aðstoöarmann.
Erfitt er að skilgreina hvað er fötlun
en samkvæmt skilgreiningu íþrótta-
sambands fatlaðra þá eru þeir fatlaöir
sem ekki geta verið með 1 venjulegri
keppni eða beitt líkama sínum af eðli-
legum styrk um lengri eða skemmri
tíma.
Námskeiðin í sumar verða i 8 daga
og standa frá 9.—16. júni, 18.—25.
júní og 25. júní til 2. júlí.
Allar upplýsingar eru veittar hjá
S.R.G. Heiöarskóla, sfmi 93-2111 kl.
15.30—16.30 virkadaga.
Sigurður R. Guðmundsson skólastjóri
og iþróttakennari.