Dagblaðið - 19.05.1981, Blaðsíða 1
I
}
7. ÁRG. —ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ1981 - 111. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVKRHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
r :
Kjartan Jóhannsson boóarnýja stefnu ístóriöjih og virkjunarmálum í eldhúsdagsumræðunum íkvöld:
ORKUSÖUJMÁ UN VEKDf
TEKIN AF HJÖRLEIFI
— Virkjun á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu nr. 1, Blanda nr. 2 og Fljótsdalsvirkjun nr. 3
Alþýðuflokkurinn vill að næsta
skrefið i virkjunarmálum verði
áframhaldandi framkvæmdir á
Þjórsár- og Tungnaársvæðinu,
þannig að „uppsett vélaafl” á svæð-
inu geti hafið framleiðslu á raforku á
árunum 1983—1985. Næst komi
Blönduvirkjun i röðinni og eigi hún
að komast í gagnið 1986, Fljótsdals-
virkjun komist svo í gang á árunum
1987—1989.
Þetta munu í allra stærstu dráttum
vera meginlínur í sameiginlegri niður-
stöðu forystu Alþýðuflokksins um
virkjana- og stóriðjumál. Endanleg
ákvörðun um stefnu alþýðuflokks-
manna var tekin i lok siðustu viku.
Hún verður gerð lýðum ljós I ræðu
Kjartans Jóhannssonar formanns í
eldhúsdagsumræðum á Alþingi í
kvöld. Verður að vanda útvarpað
beint úr þinghúsinu á meðan þing-
menn láta ljós sin skína. Dagblaðið
hafði samband við marga þingmenn
úr Alþýðuflokknum í morgun og
spurði þá nánar út i orkumálastefn-
una. Þar var fátt um svör og vísuðu
allir sem einn á ræðu formannsins í
kvöld.
í forystugrein Alþýðublaðsins í
morgun má skilja það sem svo að
Alþýðuflokkurinn vilji að samninga-
gerð um sölu raforku til orkufreks
iðnaðar verði tekin úr höndum Hjör-
leifs Guttormssonar iðnaðarráðherra
og falin sérstakri „orkusölunefnd
sem Alþingi kjósi”. Nefndin eigi að
kanna grundvöll fyrir byggingu fimm
stórvirkjana á næstu tveimur áratug-
um og undirbúa samninga um starf-
rækslu nýrra stóriðjuvera á Austur-
landi, Norðurlandi og á Suðvestur-
landi.
-ARH.
Ölafur Jóhannesson utanríkisráöherra, Elliot Richardson, oddamaöur nefndarinnar,
Gunnar Thoroddsen forsœtisráðherra, Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra,
Hans G. Andersen þjóðréttarfrœðingur og Steingrímur Hermannsson sjávarútregs-
ráðherra i Ráðherrabústaðnum i morgun. I dyrunum þckkjum við Olaf Egilsson
sendiherra.
DB-mvnd Einar Ólason.
f fylgiskjölum um saltverksmiðju segir m.a.
FRAMLÐDSLAN „VAFASOM”,
„HÆTTULEG” OG „GLAPRÆÐI”
en málið komið mótatkvæðalaust gegnum efri deild
„Engar marktækar niðurstöður
liggja fyrir um viðbrögð neytenda er-
lendis við fiski söltuðum með
Reykjanessalti,” segir I álitsgerð
Þjóðhagsstofnunar sem fylgir frum-
varpinu um saltverksmiðju á Reykja-
nesi, sem allir flokkar viröast sam-
mála um að keyra fram á Alþingi
fyrir þinglok. Hefur efri deild þegar
samþykkt frumvarpið. Þar hafa allar
atkvæðagreiðslur orðið mótatkvæða-
lausar.
,,Með tilvísun til skýrslu Salt-
vinnslunefndar viröist mega ráða að
innlend framleiðsla fisksalts sé tals-
verðri óvissu undirorpin og ekki sé að
vænta skjótfengins ábata af þeirri
framleiðslu,” segir ennfremur í áliti
Þjóðhagsstofnunar.
,,í frumhönnun og frumáætlun
fyrir saltverksmiöju á Reykjanesi er‘
gert ráð fyrir að verksmiðjuhús verði
stálgrindahús þakin asbestkvoöu til
vamar gegn tæringu. Vinnueftirlitið
mun leggjast gegn þvi að asbest verði
notað á þann hátt vegna hættu á
heilsutjóni starfsmanna,” segir i áliti
Vinnueftirlits rikisins sem einnig
fylgir frumvarpinu.
„Náttúruverndarráð mun kanna
betur ýmsa umhverfisþætti sem ekki
eru ljósir, t.d. hvað gert verði við
allan þann kisil sem fellur til við
framleiöslúna og ekki eru enn fundin
not fyrir,” segir ( áUti Náttúruvernd-
arráðs.
í áUti skipafélagsins Vfkur segir:
„Á Spáni eru framleiddar nú um
1.500.000 lestir af salti á ári. Aðeins
þarf að dæla sjó inn í lón, siðan sjá
sólin og tlminn um framleiðsluna.
Meira en Iitla hagkvæmni þarf til
þess, að ísland geti orðið samkeppn-
isfært viö Spán í sjóefnaframleiðslu.
Allir sem séð hafa saltframleiðslu þar
vita að við hana keppir ekki íslenzk
gufuorka, þótt ódýr sé. Flutningur á
salti frá Spáni beint til kaupendasalts
á islandi er ódýrari en flutningur meö
bílum frá verksmiðju til geymslu i
Keflavík — og siöan útskipun þaðan
til fiutnings út á land.” í álitinu er
frumvarpið kallað „glapræði” og á
bent að minnkuð vöruskipti frá
Spáni hafl áður leitt til söluvanda-
mála á íslenzkum vörum þangað.A.St
Jan Mayen:
Sameiginlegur
rétturtilnýt-
ingarauðlinda
Elliot Richardson, oddamaður í Jan
Mayen nefndinni, kynnti hugmyndir og
tillögur nefndarinnar fyrir forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra, sjávarútvegs-
ráðherra og iðnaðarráðherra á fundi
sem haldinn var í Ráðherrabústaðnum í
morgun.
Hans G. Andersen, ambassador og
þjóðréttarfræðingur, og Jens Evensen,
hafréttarfræðingur Norðmanna, hafa
áður gert stjórnum og utanríkismála-
nefndum, hvor í sínu landi, grein fyrir
stöðu mála og vinnubrögðum í Jan
Mayen nefndinni sem þeir eiga sæti í.
Elliot Richardson, fyrrum utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, heldur til
Noregs í fyrramálið til viðræðna við
stjórnina þar.
Tillögur nefndarinnar fela í sér hug-
myndir um samkomulag íslendinga og
Norðmanna um sameiginlegan rétt til
rannsóknaog nýtingar hugsanlegra auð-
linda á og í landgrunninu milli íslands
og Jan Mayen.
Eru þær að einhverju marki studdar
rannsóknum sem gerðar hafa verið á
þessu svæði.
Engar ákveðnar niðurstöður hafa
verið dregnar af þeim rannsóknum sem
gerðar hafa verið. Hagsmunir íslend-
inga virðast vera þeir að heimildir
þeirra nái sem lengst norður í áttina til
Jan Mayen. Gagnkvæm sjónarmið
Norðmanna í suðurátt koma þá einnig
tilálita. -BS.
Handtekinná
fógetasvölum
Tvítugur Keflvíkingur var í nótt
handtekinn þar sem hann var á svölum
skrifstofubyggingar bæjarfógetans í
Keflavík. Hugðist maðurinn stinga upp
hurðina og komast inn á skrifstofur fó-
getans.
Við yfirheyrslur hefur maðurinn ját-
að aö hafa ætlað að krækja sér í fé og
talið líklegt aö þarna væri gott til
fanga. -A.St.
VIO REYKJUM EKKI ,
VIO ÞETTAO BORÐ
Afreykingastríði
viðSkúlagötuna
- sjá FLEIRA FÓLK
á bls. 16
sjánánarábls. 10