Dagblaðið - 19.05.1981, Blaðsíða 10
10
Nsigwrii efri dáldarsairiiiála:
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ1981.
14 mátatkvæðalausar atkvæða-
greiöslur um saltverksmiöju
Fjórtán sinnum voru greidd at-
kvæði í efri deild Alþingis i gær i
sambandi við lagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar um sjóefnavinnslu á
Reykjanesi. Enginn þingmaður efri
deildar greiddi nokkru sinni mótat-
kvæði við eitt eða neitt i sambandi
við frumvarpið. Það var loks sam-
þykkt með 16 atkv. gegn 0 og sent
neðri deild til meðferðar.
Það var við 2. umræðu sem allar
þessar atkvæðagreiðslur fóru fram
um máliö. Davið Aðalsteinsson (F),
formaður iönaðarnefndar, mælti
fyrir nefndaráliti iönaðarnefndar.
Lagði hún til fimm breytingartillögur
við frumvarpið. í þeim fólust tvær
„bremsur” ef svo má að orði kveða.
í hinni fyrri er gert ráð fyrir að rikis-
stjórninni sé skylt að kveðja aðra en
undirbúningsnefnd saltverksmiðju á
Reykjanesi hf. til samvinnu um
stofnun og starfrækslu hlutafélags.
í hinni síðari er heimild til að hefja
byggingu 40 þúsund tonna saltverk-
smiðju, svo og heimildir fyrir lántök-
um, ekki heimilaðar fyrr en tilboða
hefur verið aflað i sölu afurða.
Hinar breytingartillögur nefndar-
innar taka aðeins til ákvæða hluta-
fjárlaga og skipunar fulltrúa ríkisins í
stjórn fyrirtækisins.
Kjartan Jóhannsson (A) taldi erfitt
að meta kostnaðarforsendu saltverk-
smiðju til hlítar. Arðsemin, sem
kynnt væri, væri ekki há. Sam-
keppnisaðstaða i saltframleiðslu væri
erfið en kosturinn við verkspiiðju-
uppbygginguna væri sá að ek|ti þyrfti
að stíga jafnstór skref í senn og við
aðra uppbyggingu.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S)
taldi þá fyrst grundvöll fyrir saltverk-
smiðju að saltfiskframleiðendur á ís-
landi sæju sér hag í því að nota inn-
lendaframleiðslu.
Þorvaldur gagnrýndi að frumvarp-
ið væri um of í þeim anda að ríkið
ætti að sjá fyrir öllu í sambandi við
framleiðsluna. .
Stefán Jónsson (Abl) taldi ,,að
kapitalið” sem lagt yrði til saltverk-
smiðju á Reykjanesi „myndi renta sig
þó siðar yrði”. Hann taldi þó að of
lítið fé hefði til þessa verið lagt til
rannsókna í sjóefnavinnslunni.
Síöan var ekki talað orð meira um
málið. En allar atkvæðagreiðslur
fóru þannig að samþykkt voru mót-
atkvæðalaust öll atriði frumvarpsins,
allar breytingartillögur og féllust allir
flokkar í sameiginlegan faðm. Rétt
fyrir atkvæðagreiðsluna þakkaði
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra iðnaðarnefnd gott starf og
þingmönnum góða afgreiðslu máls-
ins.
200—300 milljóna
króna verksmiðja
Itreka má að samkvæmt frumvarp-
inu, sem efri deild hefur nú afgreitt,
er ríkisstjórn heimilt að verja 45
milljónum króna til hlutafjárkaupa,
að veita ríkisábyrgð eða taka lán sem
veitt verði til byggingar verksmiðj-
unnar að fjárhæð allt að 105 milljón-
um króna, að fella niður aðflutnings-
og sölugjöld af vélum, tækjum og
varahlutum til verksmiðjunnar, að
yfirtaka lán sem Undirbúningsfélag
saltverksmiðju hefur tekið vegna
kostnaðar við rannsóknir, enda
breyti það ekki verðgildi hlutabréfa í
fyrirtækinu.
Efasemdir
Nefndaráliti fylgdu skjöl frá Þjóð-
hagsstofnun, Vinnueftirliti ríkisins,
Heilbrigðiseftirliti ríkisins, Náttúru-
verndarráði og Skipafélaginu Víkur
hf. Miklar efasemdir koma fram hjá
Þjóðhagsstofnun um verksmiðjuna.
Vinnueftirlitið mun gera athuga-
semdir við verksmiðjubygginguna.
Heilbrigðiseftirlitið skortir upplýs-
ingar um hugsanlega mengun frá
verksmiðjunni. Náttúruverndarráð er
að hefja viðræður við fyrirtækið um
umhverfísþætti málsins, sem ekki eru
ljósir. Skipafélagið Víkur mótmælir
eindregið hugmyndinni að saltverk-
smiðju hér og telur hana „hreint
glapræði”. Þetta verði aldrei nema
tapfyrirtæki, spilli viðskiptahags-
munum og eyðileggi nýtingu eigin
skipastóls”. -A.St.
Flokkadrættir f íslenzka skákheiminum
„Þelr sem staðið hafa
að deilum víki úr
samtökunum fyrir
nýjum mönnunT
—segir Guðfinnur Kjartansson, form. T.R.
Augljósir flokkadrættir eru nú innan
skákhreyfingarinnar, að minnsta kosti
á höfuðborgarsvæðinu. Fara frammá-
menn skákhreyfingarinnar misjöfnum
orðum um málið. Telja einhverjir
fjölgun félaga í taflfélögum eðlilegan
og ánægjulegan vott um blómstrandi
skákáhuga. Aðrir telja henni stefnt að
fjölgun fulltrúa á aðalfund Skáksam-
bands íslands í þeim tilgangi að fella
Ingimar Jónsson úr sæti forseta.
Helzt er rætt um Pétur Eiríksson,
framkvæmdastjóra Álafoss hf., sem
frambjóðanda á móti dr. Ingimari.
„Nokkrir menn hafa komið að máli
við mig um að ég gefi kost á mér sem
forseti Skáksambandsins,” sagði Pétur
í viðtali við DB í gær.
„Ég hefi ekki gefið afdráttarlaust
svar enn. Það fer auðvitað eftir því,
meðal annars, hvaða menn veljast í
stjórn sambandsins,” sagði Pétur.
„Þegar við sitjum við skákborðið
segjum við stundum: „Nú er Skrækur
farinn að skjálfa,” þegar taflinu hallar
sýnilega á ógæfuhliðina fyrir andstæð-
inginn. Mér er kunnugt um að engir
hafa komið nýir f Taflfélag Reykja-
víkur sem ekki hafa sjálfir óskað eftir
því. Ég hygg að of mikið sé gert úr
skipulagðri smölun,” sagði Guðfmnur
Kjartansson, formaður Taflfélags
Reykjavíkur, í viðtali við DB.
Guðfinnur kvaðst þeirrar skoðunar
að þeir sem staðið hafi í deilum hverfi
úr samtökum skákmanna og nýir menn
taki við.
„Bezt væri að menn sættust heilum
sáttum þótt kastazt hafi í kekki áður.
Það er illa gert að víkja illu að þeim
sem vel hafa unnið, hverjir sem það
eru.
Sannleikurinn er kannski sá, fyrst og
fremst, að skákhreyfingin má engan
þessara manna missa. Ingimar Jónsson
hefur margt vel gert og Einar S. Einars-
son vann þrekvirki í þágu skákhreyf-
ingarinnar,” sagði Guðfinnur Kjart-
ansson.
Hann kvað fjölgun í TR ekki meiri
en svo að nú væru í félaginu um 20
fleiri en flest hefði verið áður. 70—80
hefðu gengið í félagið á starfsárinu en
um 20 hefðu horfið úr því. Eftir því
sem næst verður komizt þýðir þessi
fjölgun félaga 5 nýja fulltrúa á skák-
sambandsþingið frá Reykjavik. f TR
eru um 600 félagar með börnum.
Meðal nýrra félaga í TR telur DB að
samkvæmt góðum heimildum megi
nefna þessa: Eirík Tómasson lögfr.,
Helga H. Steingrímsson, Hörð Arin-
bjarnar, Pétur Rafnsson, Skúla J.
Pálmason, Svölu J. Jónsdóttur, Stein-
grím Sigurðsson, Svein G. Jónsson,
Vilhjálm Árnason, Þráin Valdimars-
son, Bryndísi Guðmundsdóttur, Árna
Sigfússon, Pétur Kjartansson, Björn
Þórhallsson og Eyjólf Sigurðsson.
Hlutfallslega hefur fjölgun orðið
miklu meiri í Taflfélagi Seltjarnarness,
sem fjölgar fulltrúum þaðan úr 2 í 5.
Meðal nýrra félaga þar þykist DB hafa
góöar heimildir fyrir þessum: Anders
Hansen, Guðbjörg Guðbjartsdóttir,
Valgerður Brynjólfsdóttir, Vilhjálmur
Ingvarsson, Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son, Þorvaldur Búason, Þráinn Egg-
ertsson, Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, Már Gunnarsson, Oddur
C.S. Thorarensen, Þór Whitehead,
Inga Jóna Þórðardóttir, Sigurður Gísli
Pálmason, Lárus B. Blöndal, Skafti
Harðarson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, Oddný Vilhjálmsdóttir, Ágúst
Ásgeirsson, Árni Bergur Eiriksson,
Ásgeir H. Eiríksson, Eiríkur Ketilsson,
Friðrik Friðriksson, Benedikt Blöndal,
Jón Ingvarsson, Kjartan G. Kjartans-
son, Karl Blöndal, Jön Magnússon,
Matthías Johanness n, Jón E. Ragn-
arsson, Sigríður Ingvarsdóttir og Páll
A. Pálsson, svo nokkrir séu nefndir.
-BS
Enn er það svo, þrátt fyrir alla bílamenningu okkar, að sumir noia
bakið fremur en bílinn. Hætt er þó við að þessi byrði geti sigið í ef
langt á að fara. DB-mynd Einar Ólason.
SUZUKI-BILAR SIGURSÆUR
Sparaksturskeppni Bifreiðaíþróttaklúbbsins:
Suzuki-bílar voru í þrem efstu
sætunum í minnsta flokki i hinni ár-
legu sparaksturskeppni Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur sem fram
fór á sunnudag.
Keppt var i fimm flokkum eftir
vélarstærð bíla og var ekið bæði á
innanbæjar- og utanbæjarleiðum.
Þrjátíu kílómetrar voru þræddir, aðal-
lega um verzlunarhverfi, á höfuð-
borgarsvæðinu en siðan var ekið sem
leið lá frá Kaplakrika í Hafnarfirði,
um Krisuvikurveg, til Herdisarvíkur
þar sem snúið var við og ekin sama
leið til baka. Var vegurinn á þeirri leið
ntjög slæmur.
Hver bíll fékk fimm lítra af bensini
og reyndu ökumenn að komast sem
lengst á því bensínmagni. Úrslit urðu
sem hér segir:
Vélarflokkur 0—1000 rúmsentímetrar
(cc|
Að sögn Birgis Þórs Bragasonar,
formanns BÍKR, var þátttaka frekar
dræm. Virtist honum sem mörg bíla-
umboð hefðu ekki séð sér hag i að taka
þátt i sparaksturskeppni á vegum hlut-
laussaðila. -KMU.
Ökumaður Bifreið Vél Eyösla Vegalengd'
á 100 km
Úlfar Hinriksson Suzuki 796 cc 4,401 113,74 knt
Árni Ó. Friðriksson Suzuki 796 cc 4,441 112,50 km
Finnbogi Ásgeirsson Suzuki 796 cc 4,471 111,87 km
Bergsveinn Ó. Daihatsu 993 cc 4,601 108,79 km
Sigurjón Ó. Daihatsu 993 cc 4,781 104,40 km
Kristján A. Einarss. Suzuki sendib. 797 cc 6,351 78,74 km
Birgir Þórisson Suzuki jeppi 797 cc 7,491 66,75 km
Vélarflokkur 1001 — 1300 rúmsentímetrar (cc)
Ómar Þ. Ragnarsson i Renault 5 TL 1108 cc 5,051 99,00 km
Högni Jónsson Renault 5 TL . 1108 cc 5,171 96,73 km
Steinn Sigurðsson Mazda 323 1296 cc 5,751 87,00 km
Guðm. H. Guðjónsson Opel Kadett 1297 cc 6,621 75,53 km
Aðalst. Gunnarsson Aro Dacia 1297 cc 7,38 cc 67,78 km
Björn Steffensen Aro jeppi 1297 cc 10,221 48,91 km
Vélarflokkur 1301 — 1600 rúmsentímetrar (cc)
Jóel Jóelsson Talbot Horizon 1442 cc 5,541 90,30 km
Guðm. Þór Bjarnas. Volvo 343 1397 cc 6,61 1 75,66 km
Kristinn Karlsson Isuzo 1584 cc 7,231 69,15 km
Vélarflokkur 1601 — 2000 rúmsentfmetrar (cc)
Friðrik Gíslason Dodgc Omni 1714 cc 6,961 71,81 km
Þór Garðarsson BMW518 1766 cc 8,871 56,38 km
Vélarflokkur 2000— 3000 rúmsentímetrar (cc)
Páll Eyvindsson Volvo 244 Gl. 2302 cc 7,701 64,97 km
Hilmir Elíson Dodge Aries 2600 cc 8,381 59,70 km