Dagblaðið - 19.05.1981, Page 3

Dagblaðið - 19.05.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1981. 3 Bréfritara finnst ad okrad sé á veiðileyfum í Elliðavatm. DB-mynd Hörður. Elliðavatn: OKUR A VEIÐILEYFUM ekki rétt að okra á þessum f rábæra úti vistarstað Veiðimaður hringdi: Ég er alveg undrandi á þeirri verð- hækkun sem orðin er á veiðileyfum í Elliðavatni. Elliðavatn er dásamlegt útivistar- og veiðivatn, sem við Reykvíkingar höfum haft aðgang að á hóflegu verði. En nú bregður svo við að svoköll- uð sumarleyfi, eða leyfi fyrir eina stöng yfir sumarið, sem kostaði 30.000 gkr. í fyrra, kosta nú 700 kr. Þetta finnst mér fyrir neðan allar hellur. Elliðavatn er frábær útivistar- staður þar sem ungir og gamlir geta unað sér saman og á þessum stað á ekki að okra. Birtið nöfn og myndir —af þeim sem sekir eru f undnir um kynf erðisaf brot 0324-0983 hringdi: Eigum við borgarar á ísíandi ekki rétt á því að birt séu nöfn og myndir af þeim mönnum sem fundnir eru sekir um kynferðisafbrot svo börn og aðrir sem verða fyrir áreitni þessara manna geti varað sig á þeim? Þetta eru yfirleitt sömu mennirnir sem staðnir eru að þessu aftur og aftur. En þeir virðast alltaf losna fljótlega því ekki líður langur tími milli „afreka” þeirra. /2 GISLI SVAN EIIMARSSON Einnig finnst mér það varhugaverð stefna hjá hæstarétti að náða þessa menn í tíma og ótíma eins og ég las í blöðunum núna nýlega. Raddir tesenda Áhuginn leynir sér ekki. G0LF í SJÓN- VARPIÐ —vertíðin að hefjast Golfunnandi hringdi: Nú fer vertíð golfleikara að hefjast fyrir alvöru eftir vetrardvalann. Iðkendum þessarar íþróttar hefur fjölgað mjög á undanförnum árum, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Ég vil því beina þeim til- mælum til Bjarna Felixsonar, um- sjónarmanns íþróttaþátta sjónvarps- ins, að hann sýni fleiri golfmyndir í þáttum sínum. Ég er viss um að golfunnendur yrðu mjög ánægðir með það og slikt yrði líka til þess að vekja áhuga á þessari bráðskemmtilegu íþrótt. Við teljum aö notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af ódýrari gerðum. Volvo 245 GL árg. '80 ekinn 30 þús., beinskiptur kr. 140.000. Volvo 244 GL árg. '79 ekinn 38 þús., beinskiptur kr. 115.000. Volvo 244 GL árg. '79 ekinn 42 þús., sjálfskiptur kr. 115.000. Volvo 244 DLárg. '78 ekinn 30 þús., beinskiptur kr. 85.000, Volvo 244 L árg. '78 ekinn 20 þús., beinskiptur kr. 87.000, Volvo 244 L árg. '77 ekinn 52 þús., beinskiptur kr. 77.000, Volvo 244 L árg. '77 ekinn 86 þús., beinskiptur kr. 70.000, Volvo 343 DLárg. '79 ekinn 34 þús., sjálfskiptur kr. 78.000, VOIiVO fi* veltirhf Suðurlandsbraut 16, R. Sími 35200. Ætlarþúí útilegu í sumar? Þór Amarsson nemi: Ég fer til Þýzka- lands í sumar, læt mér það nægja. Ómar Sigurðsson nemi: Nei, ég reikna ekki meö því. Halldóra Hallfreðsdóttir skrifstofu- maður: Ég veit það ekki. Helen Steinarsdóttir nemi: Já, alveg örugglega. Ég ætla oft í útilegu í sumar. Guðbjörn Sigvaldason bifvélavirki: Ég bara veit það ekki, ég reikna ekki með því. Guðni Ragnar Smith nemi: Nei, ég hugsa að ég fari frekar utan.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.