Dagblaðið - 19.05.1981, Page 11

Dagblaðið - 19.05.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ1981. . Starfsmenn flokk- anna spá í spilin Fylgi Framsóknarflokks og Alþýðubandalags er mjög svipaö um þessar mundir og það var í alþingis- kosningunum í desember 1979. Sjálf- stasðisflokkurinn hefur bætt við sig miklu fylgi og Alþýðuflokkurinn misst mikið fylgi. Þessar eru niður- stöður skoðanakönnunar DB um fylgi flokkanna. Niðurstöðurnar eru nánast samhljóða því sem kom út úr sams konar könnun í janúar. Athyglisvert er einnig að þeim sem lýsa sig óákveðna eða vilja ekki svara hefur fækkað frá því í janúar. Nú voru það 30.6% sem féllu í þann flokk af 600 manna úrtaki en voru 38.9% i janúar. Fylgi flokkanna skiptist þannig i Dagblaðið hafði í gær samband við starfsmenn allra fjögurra stjórnmála- flokkanna er eiga fulltrúa á þingi og bað þá að segja álit sitt á niðurstöð- um könnunarinnar. Framkvæmda- maí-könnuninni, í svigum eru sambærilegrar tölur úr janúar-könn- un og síðari talan sýnir kosningaúrslit 1979: stjórar þriggja flokka uröu fyrir svör- um en framkvæmdastjóri þess fjórða var í sumarleyfi. í hans stað svarar erindreki ungliðahreyfingar flokksins. -ARH. Alþýðuflokkur Alþýðubandalag Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. 10.6% (10.7%, 17.4%) 19.5% (18.3%, 19.7%) 23.6% (23.9%, 24.9%) 46.1% (46.2%, 37.3%) Halldór Halldórsson: Mikill hluti sjáltstæóismanna styður rlkisstjörmna og pvi rétt að flokksforystan skoöi sinn gang. DB-mynd: Bjarnleifur. Ólafur Jónsson framkvæmdastjórí Alþýðubandalagsins: „Skoðanakannanir Dagblaðs- ins að verða marktækari” „Niðurstaðan verkar þannig á mig að skoðanakannanir Dagblaðsins séu að verða marktækari,” sagði Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins. „Tvær ástæður eru þar að baki. Annars vegar koma úrslitin nú mjög vel heim og saman við niðurstöður í fyrri könnunum. Og í öðru lagi samræmist þetta vel því áliti sem ég hafði sjálfur á ástandinu áður en könnunin birtist. Ég hefði að vísu jafnvel búizt við enn hærri tölu hjá Alþýðubandalaginu, 20% og þar yfir. Ástæðan er sú að störf okkar ráðherra eru vel metín hjá almenningi. Alþýðuflokkurinn liggur niðri og Sjálfstæðisflokkurinn er í svona sterkri stöðu af því hann er í tveimur pörtum. Ef Geirsarmurinn væri þar allsráðandi myndi staða hans vera fjarri því að vera svo góð. Það eru Alþýðubandalagið og armur Gunnars Thoroddsens sem eru með sterkustu stöðuna um þessar mundir.” -ARH. Ólafur Jónsson: AlþýðubandalagiO og armur Gunnars Thor. með sterk- ustu stöOuna. Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjórí SjáHstæðisflokksins: Halldór Halldórsson erindreki SUF: „Alþýðuflokkur- inn er að hverfa” „Framsóknarflokkurinn kemur yfirleitt verr út úr skoðanakönnunum Dagblaðsins en raunverulegt fylgi er i kosningum. Það skapast líklega af því að atkvæðahlutfallið á Reykja- víkursvæðinu er lakara en hjá hinum flokkunum miðaö við heild. Með það I huga leggjast þessi úrslit ekki illa í okkur,” sagði Halldór Halldórsson erindreki Sambands ungra fram- sóknarmanna. „Meginniöurstöðurnar hljóta hins vegar að vera alvarlegt áfall fyrir Alþýðuflokkinn. Hann er hreinlega að hverfa. Brosleg túlkun er það hjá Dagblaðinu að slá upp í forsíðufyrir- sögn „geysimikil fylgisaukning Sjálf- stæðisflokksins.” Þar er miðað við siðustu kosningar en almenningur hlýtur að miða við úrslit siðustu könnunar. í siðarnefnda tilfellinu er ekki um aukningu að ræða hjá Sjálf- stæðisflokknum. Augljóst er að mikill hluti sjálf- stæðismanna styður ríkisstjórnina. í því sambandi er rétt fyrir flokksfor- ystuna að skoða sinn gang, sérstak- lega vegna þess að í hönd fer flokks- þing i haust.” -ARH. Bjami P. Magnússon formaður framkvæmdastjómar Alþýðuflokksins: „FYLGID VEX JAFNT 0G ÞÉTT’ „Mér finnst iskyggilegt fyrir stjórnmálamenn að sjá hve stór hluti kjósenda gefur sig upp sem óákveðna,” sagði Kjartan Gunnars- son framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins. „Það virðist svo sem að vaxandi hópur kjósenda geri ekki upp hug sinn fyrr en kemur að kjördegi. Með þeim fyrirvara sem ég geri um áreiðanleika skoðanakannana þá er fagnaðarefni að sjá fylgi Sjálfstæðis- flokksins vaxa jafnt og þétt. Vöxtur sem hljóp í fylgið í fyrri könnunum hefur haldizt.” -ARH: Kjartan Gunnarsason: ískyggllegt fyrir stjórnmálamennina hve marglr eru óákveðnir. „Alþýðuflokkurinn áeftirað styrkjast” „Við erum auðvitað ekki yfir okkur ánægðir með þessa útkomu en höfum trú á að staða flokksins eigi eftir að styrkjast,” sagði Bjarni P. Magnússon formaður framkvæmda- stjórnar Alþýðuflokksins. „Fólk vill enn bíða og sjá hvort rikisstjórninni miði ekki með það sem hún segist ætla að gera. Okkar trú er sú að hún muni ekkert gera. Kjörin versna stöðugt og fólk á eftir að vakna upp viö að eini valkosturinn er Alþýðuflokkurinn. Það kemur vissulega á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn virðist bæta við sig fylgi samkvæmt könnuninni. Okkar staða er sú sama og i fyrri könnun en það kæmi á óvart ef Alþýðuflokkurinn tapar enn frá því í síðustu kosningum. Stjórnarrofið var erfiö ákvöðrun. Við vissum að okkur yrði ef til vill ekki þakkað fyrir það. Við lögðum til ákveðnar aðgerðir og komust ekki áfram með þær. Stjórnarkreppan sem fylgdi í kjöl- farið leystist með myndun ríkis- stjórnarinnar. Þar með var fólki boðið upp á ríkisstjórn — eða stjórn- leysi, allt eftir því hvernig það er skil- greint. Menn lifa enn í voninni um að stjórnin muni eitthvað gera.” -ARH. „N0TKUN BILBELTA EKKERT QNKAMÁL EINSTAKUNGA” — segir Ólaf ur Ólafsson landlæknir—dauðaslysum og alvarlegum slysum hefur fækkað um 30% hjá þeim þjóðum sem lögleitt hafa bílbetti Landlæknir og Umferðarráð óttast nú mjög að frumvarp það sem nú liggur fyrir Alþingi um lögleiðingu bíl- belta verði ekki afgreitt fyrir þinglok. Á blaðamannafundi sem Ólafur Ólafsson landlæknir og Óli H. Þórðar- son, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, héldu með blaðamönnum á fimmtudag kynntu þeir skýrslur sem Umferðarráð og landlæknisembættið hafa látið gera um skyldunotkun bílbelta. í þeim kemur meðal annars fram að dauða- slysum hefur að meðaltali fækkað um 30% í þeim löndum sem lögleitt hafa notkun bilbelta. 1 sömu löndum hefur meiriháttar slysum einnig fækkað um 30%. Ólafur Ólafsson sagði á fundinum að notkun bílbelta væri ekkert einkamál einstaklingsins. Það væri einnig mál fjölskyldu hans og þjóðfélagsins i heild. I skýrslu landlæknis kemur fram fjárhagslegt tjón þjóðfélagsins vegna- alvarlegs umferðarslyss, sem leiði til þess að sá slasaði þurfl eitt ár til að komast aftur út i atvinnulífið, nemi rúmlega 200 þúsund krónum. Landlæknir áætlar út frá reynslu þeirra 30 þjóða sem lögleitt hafa bíl- beltanotkun að dauðaslys í umferðinni á íslandi árin 1977—1978 hefðu orðið 15 færri ef notkun bflbelta hefði verið lögbundin. Á sama tíma hefðu slys orðið um 190færri. Séu sömu forsendur notaðar má áætla aö á þeim tíma, sem líður frá þingslitum í þessari viku til þingbyrj- unar næsta haust, muni þrír fleiri íslendingar láta lífið í umferðarslysum en annars yrði ef bílbelti væru lög- bundin. -KMU. Bjarni P. Magnússon: Okkar trú er sú að rikisstjórnin muni ekkert gera.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.