Dagblaðið - 27.05.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ1981.
11
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
punktar
Eftir um það bil tuttugu ára veru
hjá Tamia Motown hijómplötuút-
gáfunni hefur Diana Ross nú
ákveðið að breyta til. CBS risinn
þykir llklegastur til aðfá Diönu til
liðs við sig. —- Segja má að Borry
Gordy, eigandi Motown, hafigert
Diönu og stallsystur hennar I The
Supremes að stjörnum. Það var
seint á sjötta áratugnum sem hann
veittiþeim athygli. Hannfékk þter
til að Ijúka skólanámi og búa sig
sem bezt undir að verða stjömur.
Árið 1964 slógu þær í gegn með
laginu Whore Did Our Love Go.
Einn þekktasti jazzklúbbur
heimsins, Ronnie Scott's Club,
er til sötu. Verðið mun vera um
150 þúsund sterlingspund. Ólíklegt
þykir að klúbburinn verði seldur í
þetta skiptið. Hann á I miklum
ffárhagsörðugleikum en góðir
menn hafa lofað að koma til hjálp-
ar áður en langt um llður. Ronnie
Scott’s hefur starfað 122 ár og oft
lent í kröggum. Að sögn aðaleig-
andans, Ronnie Scott, var ástand-
ið verst eitt sinn þegar klúbburinn
gerði samninga við jazzhljómsveit-
ir um að koma við að loknum
Evrópuferðum. Það gerðist oftar
en hitt að þœr mættu ekki til leiks
og varð þá að setja svo tilhvað sem
var á prðgrammið. „ Við skuldum
mikla peninga, ” sagði Ronnie, „en
sala er síðasta ráðið sem við grip-
um til. Við verðum bara að halda
áfram enn um stund að leita að
jazz-óðum milljónara sem gctur
bjargað okkur. ”
Talsverð uppstokkun er orðin I
hljómsveitinni Blizzard of Ozz.
Trommulcikarinn Lee Kerstake
(áóur í Uriah Heep) og Bob
Daisley bassaleikari eru hættir. 1
þeirra stað eru Tonuny AMridge
og Rudy Serzo gengnir til liðs við
Ozzie Osbourne söngvara og
Rendy Rhoads gltarleikara. —
Ozzie stofhaði Blizzard eftir að
hann hætti i hljómsveitinni Black
Sabbath hér um árið.
Spandau Ballet kom í fyrsta
skipti fram I Bandaríkjunum nú
fyrir nokkrum dögum. Þessir
jfyrstu hljómleikar voru I Under-
ground Club í New York. Þeir
tókust með afbrigðum vel svo að
búast má við því að Spandau Ballet
auki veruelga við vinsœldir slnar á
nœstunni.
Bandaríska hljómsveitin The
Deed Kennedys á I dálitlum
erjiðleikum þessa dagana. Liðs-
mönnum hennar gengur satt að
segja bölvanlega að fá útvarps-
stöðvar til að leika nýjasta lagið
sitt. Þegar nánar er að gáð er það
kannski ekki svo undarlegt. Lagið
heitir nefhilega Too Drunk To
Fuck og hefur heldur svœsinn
texta að geyma. — Dead
Kennedys virðast annars hafa gott
hugmyndaflug þegar lagatitlar eru
annars. vegar. Sem dæmi um það
má nefha lögin / Left My Car At
ChappaqukUHc, Better Dead
Than Ted, Hotiday In
Kamputchea og nú síðast Too
DrunkToFuck.
Roger Taylor trommuleikari
hþómsveitarinnar Queen hefur ný-
lega lokið við gerðfyrstu sólóplöt-
unnar sinnar. Fun In Space nefn-
istplatan og hún hefúr hlotið ágæt-
ar viðtökur plötukaupenda. Vænt-
anlega hefur Taylor verið fremur
taugatrekktur meðan hann beið
eftirþvl aðsjá hvemig viðtökurnar
yrðu og ekki slður eftir áliti félaga
sinna í Queen. Freddie Mercury
sagði nefhilega þegar Taylor
skýrði þeim frá fyrirætlunum
slnum: „Ef þetta verður eitthvert
drasl, væni minn, þá skal ég ekki
hika við að segjaþérfráþví!”
Yves Corbassiéré «0 listsköpun.
Nýlistí
deiglunni
— athyglisxert
framlag?
— eðaNýju
fötin
keisarans?
Vegna mikilla umræðna um nýlist,
ómetanlegt og ómissandi menningar-
gildi hennar, þá datt okkur 1 hug að
leggja orð í belg — auk myndar. Við
erum nú líka alltaf svo tillitssöm og
elskuleg.
Listamaðurinn Yves Corbassiére
hefur framið sitt af hverju, þar á meðal
verk, sem hanga á Guggenheim safninu
i Manhattan, og hér er hann aö list-
sköpun . . . Hrífandi. Eigum við ekki
að hafa hraðann á og bjóöa honum
undir eins á næstu listahátíð.
Hér er snillingurinn að sýna
„Tagada”-tækni sina, sem felst í því
að sprauta plastdrönglum á fólk. Þol-
endur eru tennisglaumgosinn Vitas
Gerulaitis og elskan hans, einhver Eve
Corrigan, svo það liggur i augum uppi
að þetta er mikill listamaður.
Það bráðliggur á að kenna þessa at-
hyglisverðu tækni, eins og allir heilvita
menn hljóta að skilja, svo hvernig væri
að drffa í þessu með nýlistadeildina?
Hvaða leiðindapúki var annars að
muldra eitthvað smáborgaralegt um
nýju fötin keisarans?
ðk.
Benji i kafaraskrúðanum.
Kafarinn
er hundur
— áhugasamur um aðra kafara og fiska
— erokkursagt
Ekki er nú öll vitleysan eins. Benji
greyið er bara lítill hundur, og leikari
að auki, en hann hefur engan til þess
að gera kúnstirnar fyrjr sig.
Nú hefur einhverjum hálfvitanum1
hugkvæmzt að það sé upplagt að láta
aumingja Benji leika hund sem kafar,
og viti menn, þá er bara að kenna
honum það.
Frómt frá sagt, þá tók margar
vikur að kenna honum þessa eðlu'
kúnst, með þeim árangri að hann
getur nú kafað í heilar fjórar og hálfa
minútu — það munar sko um þessa
hálfu.
Okkur er auk þess talin trú um að
hann hafi „aldrei veriö hræddur”
heldur hafi haft „mikinn áhuga á
öðrum köfurum — mennskum,
væntum við — og fiskunum. En þar
eð við trúum nú ekki alveg hverju
sem er, þá tökum við þeim full-
yrðingum með miklum fyrirvara.
Nítján mánaða
drengur í
starfsþjálfun
ekki er ráð nema í tíma sé tekið
við að láta sig falla af húsþaki
foreldra sinna og ofan í sund-
laug.
Á barmi laugarinnar eru
strigapokar fullir af frauðplast-
(afgöngum, ef stökk drengsins
skyldi nú geiga.
Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið og eins gott að börnin
manns verði ekki atvinnulaus.
Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni. Rod Wolff, i Phoenix
Arisona, hefur atvinnu af því
að leika alls konar hættuleg
brögð fyrir kvikmyndaleikara,
sem siðan fá auðvitað heiður-
inn af öllu saman, þegar á
tjaldiðer komið.
Rod virðist álíta þetta starf
sitt bjóða upp á mikla fram-
tíðarmöguleika, því hann
þjálfar son sinn lítinn,
Brenden, til sömu iðju.
Á meðfylgjandi mynd er
drenghnokkinn 19 mánaða
gamall og kippir sér ekkert upp
Brenden Wolff, nítján mán-
aða, önnum kafinn við að
þjálfa sig fyrir framtíðarstarf-
ið.