Dagblaðið - 27.05.1981, Blaðsíða 20
24
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ1981.
Hrauneyjafossvirkjun. íbúðarskálar starfsmanna við virkjunarframkvæmdirnar mynda lftið þorp þarna uppi á reginfjöllum. 1 baksýn má sjá stöðvarhúsið og frá
þvi þrýstipipurnar upp að inntaksmannvirkjunum. DB-myndir J R.
r
DBíflugferd
aðHrauneyjafossi
Þegar DB-menn brugðu sérí flugferð
til að skoða þær breytingar sem orðið
höfðu á Hrauneyjafossi, sem sagt var
frá í blaðinu í gær, þótti tilvalið að líta
á virkjunarframkvæmdirnar í Tungnaá
við Hrauneyjafoss í leiðinni.
Þarna uppi á reginfjöllum hefur
myndazt litið þorp, þar sem starfsmenn
viö virkjunina búa, en i sumar er búizt
við að þarna verði 6—700 manns við
vinnu hjá hinum ýmsu verktökum.
Hvarvetna á vinnusvæðinu voru
vinnuvélar á þönum. Mikið af jarðvegi
þarf að færa til, grafa aö- og frá-
rennslisskurði og flytja aö sand i
steypuframkvæmdir.
í miðju framkvæmdasvæðinu er
virkjunin sjálf, tröllaukin framkvæmd
og er hún óðum að taka á sig endanlega
mynd. Þrýstipípurnar að stöðvarhús-
inu eru vel á veg komnar, búið er að
leggja þá fyrstu og sú næsta er byrjuð
að teygja sig af stað. Inni í stöðvarhús-
inu er einnig allt á fullu við að setja
niður vélar og annan búnað.
Samkvæmt áætlunum á að gangsetja
fyrstu vélina í haust, i október eða
nóvember, vél númer tvö verður síðan
væntanlega sett i gang í marz á næsta
ári; Enn er óráðið hvenær vél númer
þrjú verður sett af stað en hugsanlega á
miðju ári 1983.
-JR.
Horft til vesturs yfir inntaksmannvirkin þaðan sem þrýsti-
pipurnar taka við og flytja vatnið niður I stöðvarhúsið sem
sést fyrír neðan. t baksýn sést frárennsliskurðurinn sem
flytur vatnið síðan út I farveg Tungnaár.
Fyrir neðan stöðvarhúsið voru vinnuvélar á fullri ferð.
Þótt vörubilarnir séu engin smásmiði virðast þeir örlitlir
miðað við stöðvarhúsið f baksýn.
Hér er horft yfir sama svæði, en nú til suðurs og þar sést núverandi farvegur Tungnaár vel. Hrauneyjafoss I Tungnaá er þar
sem áin hverfur f hægra horni myndarinnar, ofan við vinnuskálana.
Lokurnar sem stjórna vatnsrennslinu að virkjuninni. Núna standa þær opnar og veita
Tungnaá greiðlega framhjá virkjuninni í sinn gamla farveg, en skammt fyrir neðan
lokurnar er Hrauneyjafoss, sem nú hefur tekið nokkrum breytingum eins og sagt var
frá f blaðinu f gær.
Lokubúnaðurinn sem stjórnar vatnsrennslinu er engin smásmfði eins og sjá má á
rússajeppanum sem stendur á garðinum.
Núna rennur Tungnaáin til vinstrí frá inntaksmannvirkjunum en f framtfðinni mun
meginstraumurinn liggja eftir aðrennslisskurði f átt að virkjuninni sem rétt gríllir f
lengra til vesturs.