Dagblaðið - 23.06.1981, Page 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981.
Læknamir hafa ekki of hátt kaup
— miðað við hinn langa vinnutíma þeirra
8497-7624 skrifar:
Allir, sem eitthvað hafa lesið blöð
undanfarið eða hlustað og horft á
fjölmiðla, hljóta að hafa orðið varir
við þann atburð, sem nú er f sviðs-
ljósinu, þ.e.a.s. svokallaða lækna-
deilu.
Ég held að ekki nærri allir geri sér í
raun og veru ljóst um hvað verið er
að ræða og á ég þá við, að ráðamenn
horfi einungis á þær háu fjárhæðir,
sem nokkrir sérfræðingar á þessu
landi bera úr býtum, oft eftir mjög
svo erfitt og krefjandi starf. Ég held
að ef þessir sömu menn þyrftu sjálfir
á þessum mönnum að halda myndu
þeir skilja, hvað um er að ræða. Nú
er ég ekki að óska okkar háu herrum
Lxknar vinna erfitt og krefjandi starf.
heilsuleysis, en ósköp hefðu þeir nú
gott af því að fá eins og eina slæma
kveisu og vera lagðir inn „akút” á
einhverja sjúkrastofnun. Ég efast
ekki um að þá fyndist þeim kaup
það sem læknirinn. sem annast þá
hefur ekki of hátt. Sjálf hef ég oft
þurft að liggja á sjúkrahúsum og hef
oftlega undrazt þolinmæði og elsku-
legheit lækna á þeim stofnunum og
oft virðist manni sem þessir menn
fái hreinlega aldrei frí. Við hin sem
stundum þessa venjulegu 40 stunda
vinnuviku eigum þó oftast frí laugar-
daga og sunnudaga.
Rétt er það að ýmsir ungir læknar
hafa ágæt laun en af hverju? Vegna-
þess að þeir vinna meira en manni
finnst nánast að nokkur maður geti
komizt yfir. Vildum við ekki sjálf
bera eitthvað úr býtum, ef við
þyrftum að standa 24 tima vaktir eöa
jafnvel meira? Eitt verður líka að
hafa i huga, hvenær þessir menn
koma út á vinnumarkaðinn. Líklega
er það sjaldnast fyrr en þeir eru
komnir á fertugsaldurinn. Nú vildi
víst einhver segja að þjóðin hafi
menntað þessa menn — auðvitað
hefur hún gert það og ekki nema
sjálfsagt enda værum við nú heldur
illa stödd ef engir vildu læra til
læknis. Þá held ég heyrðust nú rama-
kvein.
Við eigum að borga okkar læknum
vel og virða og meta þeirra störf,
þannig fáum við góða lækna og
þannig getum við komið i veg fyrir
landfiótta þeirra, þvi hann er vægast
sagt hörmulegur.
Ekki er hægt aö tala um þetta mál
án þess að minnast á hiiíá ágætu
slysavarðstofu sem við höfum hér i
Reykjavik. Ég þurfti nýlega að koma
þangað nokkrum sinnum vegna slyss
sem 11 ára gamall sonur minn lenti í
og eins frábæra þjónustu og þar er
veitt af öllum, sem þar eiga hlut aö
máli, er vert að þakka.
Ég minnist þess að hafa heyrt i
sjónvarpsviðtali fyrir skömmu, að
einn hópur gæti ekki tekið sig til og
ákveðið sín laun sjálfur og sagði
þetta einn ráðamaður þjóðarinnar.
Mér er spum — em það bara al-
þingismennirnir okkar, sem mega
sjálfir ákveða sín laun sjálfir? Það er
nú einu sinni svo, að þaö sem
höfðingjarnir hafast að, hinir halda
sér leyfist það.
Allt útlit er fyrir að sumir gæzluvallanna standi auðir i sumar.
Fáránleg sparn-
aðarráðstöfun
—að loka hluta gæzluvallanna í sumar
0783-2524 skrlfar:
Mér finnst það vægast sagt fárán-
leg spamaðarráðstöfun hjá Reykja-
víkurborg að ætla að loka hluta
gæzluvallanna i sumar. Mér er sagt
að þetta sé gert i sparnaðarskyni á
timabilinu 4. júli til 29. ágúst.
Ég bý við Tungusel í Seljahverfinu
í Breiðholti, en þar á nú að loka ■
gæzluvellinum i sumar. Konurnar
ALLT UM
FERÐALÖG
INNANLANDS
Meö Dagblaðinu 30. júní nk. verður
sérstök handbók fyrir ferðalög innanlands.
Þar verða fullkomnar upplýsingar um hótel,
veitingastaði, gistingar á sveitabœjum,
svefnpókapláss, sundstaði, bílaleigur, flug-
leigur, ferjur, hópferðabíla, farfuglaheimili,
sœluhús, bíla- og hjólbarðaviðgerðir og
margt margtfleira gagnlegt fyrir ferðafólk.
ÞETTA ER ÞVÍ EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ
AUGLYSA ÞJÓNUSTU YÐAR
Fyrirtœki og einstaklingar! Vinsamlega
hafið samband við auglýsingadeild Dag-
blaðsins
í SÍMA 27022 FYRIR 24. JÚNÍ
EFÞÉR VILJIÐ VERA MEÐ A UGL ÝSINGAR í
ÞESSARIFULLKOMNU UPPL ÝSINGAHANDBÓK
DB UM FERDALÖGINNANLANDS
sem vinna á vellinum hafa sagt mér
að okkur sé ætlað að nota gæzluvöll-
inn við Fitjasel á meðan en þangað er
langt að fara. Nú býst ég við því að
það séu fieiri sem lenda í þessari að-
stöðu, en mér finnst vafasamt að
mikill spamaður verði af þessu.
Gæzlukonurnar hafa sagt mér að
hættan á skemmdarverkum á völlun-
um sé mun meiri fyrir bragðið.
Batnandi
banka
er bezt
aö lifa
Böddl skrifar:
Það er ánægjulegt að sjá 1 árs-
skýrslum bankanna hve vel þeir þéna
og hafa haldið aftur af sér i yfir-
drætti hjá Seðlabankanum. Þessir
yfirdrættir voru komnir i slikt óefni á
sama tíma i fyrra að ríkisstjórnin
varð að grípa í taumana og sldpa
Seðlabankanum að draga úr yfir-
dráttarlánum til bankanna. Sérstak-
lega var Landsbankinn með háan
yfirdrátt eða um 14 milljarða
gkrónur enda veitir honum ekki af
með alla þessa risnu. En nú er þetta
óreiðutimabil á enda og um leið
minnkar þenslan í þjóðfélaginu en
bankamir raka saman peningum og
hafa ekki undan að færa gróðann á
ýmsa reikninga, sbr. verðfærslur,
gengisuppbætur o.fl. o.fl. i þeim dúr.
En batnandi banka er bezt að lifa og
þeir eru jú þjóðareign, rikisbankarnir
okkar.
Bankarair raka saman penlngum,
segir bréfritari.