Dagblaðið - 23.06.1981, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ1981.
Bandarískum st jórnarerindrekum vísað f rá Zambíu:
Ætlaöi CIA að steypa
K. Kaunda af stóli?
— „Hegðun bandarísku stjórnarerindrekanna ekki í samræmi við eðlilega breytni
stjómarerindreka,” sagði í yf irlýsingu utanríkisráðuneytis Zambíu
Stjórn Zambíu hefur skipað
tveimur bandariskum stjórnarerind-
rekum að hverfa úr landi og hefur
jafnframt sakað bandarísku leyni-
þjónustuna, CIA, um að freista þess
að koma nýrri stjórn til valda í
Zamblu.
Kenneth Kaunda, forseti Zambiu.
f yfirlýsingu frá utanríkisráðuneýti
Zambíu i gær sagði að John Finney
og Michael O’Brien, tveir af aðal-
riturum bandaríska sendiráðsins i
Zambiu, yrðu að vera á brott úr
landinu annað kvöld.
Engar ákveðnar ásakanir voru
bornar upp gegn þeim en þrír aðrir
bandarískir stjórnarerindrekar og
bandarískur kaupsýslumaður voru
lýstir „persona non grata” vegna
þátttöku þeirra 1 starfsemi CIA. Einn
þeirra, Frederick Lundahl, var fyrir
skömmu rekinn frá Mósambik og
gefið að sök að starfa fyrir banda-
risku leyniþjónustna.
f yfirlýsingunni sagði að samskipti
Bandarlkjanna og Zambíu hefðu
lengi veriö náin og vinsamleg en upp
á síðkastið hefðu nokkrir bandariskir
stjórnarerindrekar gerzt sekir um at-
haefi sem ekki gæti talizt til eðlilegra
starfa stjórnarerindreka. Þar sagði
einnig aö CIA hefði athugaö mögu-
leikann á að breyta um stjórn í
iandinu og koma þar með Kenneth
Kaunda, forseta landsins, frá
völdum.
GUNNLAUGUR
A. JÓNSSON
„Allir eiga rétt á
að gjöra iðmn”
— segir Khomeini erkiklerkur og skorar á Bani-Sadr að
gefasigfram
Þriggja manna ráð hefur nú tekið
við af fyrrum forseta írans, Abol-
hassan Bani-Sadr, sem nú fer huldu
höfði. Khomeini, trúarleiðtogi í fran
og æðsti ráðamaður þar, vék Bani-
Sadr úr embætti forseta í gær eftir að
þing landsins hafði komizt aö þeirri
niðurstöðu að forsetinn væri óhæfur
til starfans.
Þeir sem nú fara með völd forseta í
íran eru Rajai, forsætisráðherra,
Rafanjani, forseti þingsins, og
Beheshti, forseti hæstaréttar
landsins.
Flokkar herskárra múslima fóru
um götur Teheran og hrópuðu slag-
orö gegn Bani-Sadr, sem ekki hefur
sézt opinberlega síðan 11. júní siðast-
liðinn.
,,Ég vildi ekki að þetta gerðist,”
sagði Khomeini er hann ávarpaði
mannfjölda við mosku i Teheran,
skammt frá heimili forsetans fyrrver-
andi.
Khomeini beindi orðum sínum til
Bani-Sadr, fyrrum skjólstæðings
sins, og sagði: ,,Allir eiga rétt á að
gjöra iðrun, hvað svo sem þeir hafa
brotiðaf sér.”
Skoraði Khomeini á Bani-Sadr að
gefa sig fram og hverfa aftur i
„náðarfaðm islömsku byltingarinn-
ar”.
Yfirvöld í íran segjast þeirrar
skoðunar að Bani-Sadr sé enn i land-
inu og hefur hverjum þeim er skýtur
skjólshúsi yfir hann eða hjálpar
honum að komast úr landi verið
hótaö málsókn.
Fréttir hafa borizt um að Bani-
Sadr kunni að vera kominn til Eg-
yptalands. Yfirvðld þar hafa hvorki
játað né neitað fréttum þess efnis.
Bani-Sadr. Er hann komlnn til
Egyptalands?
Bergman
vill
helga sig
leikhúsinu
Kvikmyndaleikstjórinn heimsþekkti,
Ingmar Bergman, hélt fyrir skömmu
fyrirlestur við Meþódista háskólann í
Dallas i Texas. Þar lýsti hann því yfir
að hann hygðist innan skamms helga
sig leikhúsllfinu og hætta þar með
kvikmyndaleikstjórn sinni. Hann sagði
að þó hann hefði haft mikla ánægju
af að vinna við kvikmyndir þá jafnaðist
það ekki á viö leikhúslífið.
Viðræður f ranskra sósfalista og kommúnista:
Kommúnistar sækja fast
að komastí stjómina
Franskir kommúnistar sækja nú fast
að fá aðild að ríkisstjórn þeirri sem
franski Sósialistaflokkurinn er nú aí
mynda undir forsæti Pierre Mauroy.
Viðræður sósíalista og kommúnista
stóðu langt fram eftir kvöldi í gær og
sömdu þá skjal sem lagt verður fyrir
stjórnir flokkanna tveggja í dag til um-
fjöllunar.
Eftir átta klukkustunda langar við-
ræður, sem einn sósialistanna sagði að
hefðu verið „opinskáar og vinsam-
legar” lagði Lionel Jospin, fyrsti
flokksritari, fram áðurnefnt skjal.
Hann sagði ekki hvað í þvi fælist eða
hvort það gerði ráð fyrir aðild
kommúnista að hinni nýju ríkisstjórn
landsins.
hins vegar óska eftir aðild þeirra að
ríkisstjórninni og telur að það muni
tryggja betri frið á vinnumarkaði
landsins þar sem kommúnistar ráða
ríkjum í CGT, sem er samband helztu
verkalýðsfélaga landsins.
Charles Fiterman, næstæðsti maður
Kommúnistaflokksins, sagði við frétta-
menn: „Við höfum rætt skilyrðin fyrir
pólitísku samkomulagi um ríkisstjóm.
Árangurinn verður lagður fyrir stjórnir
flokkanna á morgun (þ.e. í dag).”
Þátttakendurnir í viðræðunum virt-
ust þreyttir að loknum fundinum sem
haldinn er í kjölfar mikils yfirburða-
sigurs sósialista i þingkosningunum um
helgina. Þar fengu þeir ásamt stuðn-
ingsmönnum sínum úr flokki vinstri
radíkala. MRG, 285 af 491 þingsæti
eða hreinan meirihluta.
Sósíalistar þurfa því ekki á aðstoð
kommúnista að halda við myndun
ríkisstjórnar. Mitterrand forseti mun
Mitterrand forseti og Mauroy forsætisráðherra i hópi blaðamanna.
Karl Bretaprins sýndi í gær að hann
er alveg óhræddur um líf sitt og hefur
fyrirhugað brúðkaup hans engin áhrif á
það. Hann kafaöi i gær niður á 15
metra dýpi niður að herskipinu Mary
Rose sem sökk fyrir rúmum 400 árum
úti fyrir Portsmouth íSuður-Englandi.
Froskkafarar og ljósmyndarar fylgdust
mjög náið með prinsinum.
öryggisverðir kváðust hafa verið á
nálum þar sem þeir höfðu aldrei séð
prins kafa áður og einmitt á þessum
sama stað drukknaöi 21 árs gömul
stúlka er hún kafaði niður að skipinu i
fyrra.
Nýr
forseti
Einingar-
samtaka,
OAU
Fundur Einingarsamtaka Afriku-
ríkja, OAU, stendur nú yfir i Nairóbí í
Kenýa. Þar hafa verið settar fram ásak-
anir á hendur Bandarikjunum og
öðrum Vesturlöndum fyrir að styðja
við bakið á Suður-Afríku varðandi
framtið Namibíu.
Forseti Kenýa, Daniel Arap Moi,
se^i þinginu verður kosinn næsti for-
maöur OAU, lýsti því yfir að hin svarta
Afríka myndi aldrei viðurkenna Turn-
halle-bandalag sem hinir hvítu ráða í
Namibiu.
Sýking
páfa ekki
alvarleg
Læknar segja að Jóhannes Páll páfi
II. sé á batavegi eftir að hafa fengið
sýkingu í lunga sem varð til þess að
hann var lagður inn á sjúkrahús að
nýju. Áhyggjur höfðu vaknað um að
páfanum væri að hraka á ný eftir að
hafa virzt ná sér mjög vel eftir bana-
tilræðið sem honum var sýnt á Péturs-
torgi fyrir mánuði. Læknar Gemelli-
sjúkrahússins í Róm sögðu að sýkingin
sem páfi hefði hlotið væri ekki alvarleg
og væri hann á batavegi.
Karl
prins
hvergi
smeykur
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER