Dagblaðið - 23.06.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Dallas sló öll met
í Danmörku
—2,9 milljónir manna þar ílandi fylgdust með Dallas-
þáttunum en formaður danska útvarpsráðsins er ekki
einshrifinn
Danskir sjónvarpsáhorfendur hafa
sýnt svo mikinn áhuga á bandarísku
sjónvarpsþáttunum Dallas sem nú er
verið að sýna hér á landi að útvarps-
ráðið þar f landi hefur séð sig knúið
til að hefja umræðu um þættina að
nýju. Talið er að 2,9 milljónir Dana
hafi fylgzt með þessum þáttum eða
mun meira en nokkrum öðrum sjón-
varpsþætti.
„Það er ljóst að við komumst ekki
hjá því að ræða um Dallas. Annað
væri óeðlilegt,” segir Birthe Weiss,
formaður útvarpsráðsins.
„En sú umræða mun einnig snúast
um það hversu lengi slíkir þættir eiga
að ganga. Sjálfri finnst mér ekki rétt
að leggja okkar einu rás undir sömu
þáttaröðina svona langt fram í tim-
ann. Dallas-þættirmr eru svo margir
að við gætum sent þá út i fjögur ár —
ef við vildum.”
— Viljum við það?
„Ég tel að við þurfum ekki að sýna
alla þættina eingöngu vegna þess að
svo vill til að þeir hafa verið fram-
leiddir.”
— Hefur áhugi sjónvarpsáhorf-
enda ekkert að segja?
„Að sjálfsögðu hafa vinsældirnar
áhrif á umræðuna. En hún mun
heldur ekki snúast svo mjög um hvort
sýna eigi þættina heldur hversu mikið
eigi að sýna af þeim.”
— Hvað varða sýndir margir
þættir af Dallas?
„Það er ekki mitt að ákveða. En ég
tel það ekki snjalla hugmynd að
senda sömu þáttaröð út í hið óendan-
lega. Meðal annars þess vegna eru
ákveðnir þættir oft teknir út úr dag-
skránni og hvildir i nokkra mánuði.
— Dallas hefur þá aðeins fengið
stutta hvild?
,,Ég get alls ekki fullyrt að Dallas
verði ekki tekinn aftur til sýningar.
Ég ákveð það ekki. Ég gef þeim er þvi
ráða aðeins ákveðnar bendingar.”
— Horfir þú sjálf á þættina?
„Ekki að staðaldri. Þetta er örugg-
lega ekki efni sem ég verð sjúklega
háð , ” sagði formaður útvarpsráðs-
ins danska að lokum og var greinilega
ekki eins hrifinn af þessum umdeildu
bandarisku sjónvarpsþáttum og hinn
almenni sjónvarpsáhorfandi.
(Ekstra Bladet).
J.R. „skúrkur” Dailas-þáttanna
ásamt konu sinni Sue Ellen. Með
hlutverk þeirra fara Larry Hagman
og Llnda Gray.
Margir gáfu geðshrær-
ingumilausan taunrnm
—meira en sex þúsund fyrrum fangar úr útrýmingarbúðh
um nasista komu saman í Israel
Mörg þúsund gyðingar, sem
komust lifs af úr útrýmingarbúðum
nasista i síðari heimsstyrjöldinni,
söfnuðust saman í ísrael i síðustu
viku i fyrsta og sennilega siðasta sinn.
Meira en sex þúsund gyðingar frá 23
löndum tóku þátt i þessari samkomu.
„Þetta er ekki minnignarhátíð
heidur hátíð sem viö höldum tii að
fagna þvi að vera á lffi,” sagði Emst
Michel frá Bandarikjunum, sem var
formaður skipulagsnefndar mótsins.
Margir hinna fyrrverandi fanga
nasista fundu á samkomunni gamla
félaga úr fangabúðunum, sem sátu i
sömu fangabúðum, voru í sama
vinnuhópi eða ferðuðust með sömu
flutningaiest milli fangabúða.
,,Við erum farnir að eldast og það
er þýðingarmikið og tilraunin til að
útrýma gyðingum gleymist ekki,”
sagði Stephen Greik, formaður al-
þjóðlegra samtaka fyrmm fanga i út-
rýmingarbúðum nasista.
Þótt mót þetta yrði ýmsum þátt-
takendanna til ánægju þá varð það
ekki síður til þess að ýfa upp gömul
sár í mörgum tilfellum og margir
gáfu geðshræringunni lausan
tauminn. Sumir höfðu gert sér vonir
um að hitta þarna týnda ættingja en
sá draumur rættist i fæstum tilfell-
um.
Hápunktur mótsins var samkoma
við grátmúrinn í Jerúsalem, helgasta
stað Jerúsalem-borgar. Þar kveiktu
þátttakendurnir á kertum til minn-
ingar um þær sex milljónir gyðinga
sem létu lífið í siðari heimsstyrjöld-
inni.
Torg eitt i Jerúsalem var nefnt eftlr
þeim „er llfðu af helför gyðlnga" I
siðari heimsstyrjöldlnni, „Holocaust
Survlvors Square’ ’. 'vpr
Reagan, Bandarikjaforseti, og Jose Lopez Portillo, forseti Mexikó, hittust að máli
fyrir skömmu og var myndin tekin við það tækifæri. Reagan hefur kappkostað mjög
að bæta samskipti Bandarikjanna við Rómönsku Ameríku og eru ekki allir sáttir við
þá stefnu hans þar sem hann þykir um leið hafa dregið úr kröfum Bandaríkjanna á
hendur þessum ríkjum um að hafa mannréttindi í heiðri en löngum hefur mikið vantað
á það i þessari heimsálfu.
LAUSAR STÖDUR
(Jmsóknarfrestur um tvær lausar kennarastöður við Kjölbrautaskólann á Akranesi, sem
auglýstar voru í Lögbirtini>ablaði nr. 46/1981, er hér með framlengdur til 1. júli nk. Um er að ræða
stöðu kennara I heilbrigðisgreinum (1/2 staða) og stöðu kennara I viðskiptagreinum.
Umsóknarcyðublöð fást i menntamálaráðuneytinu, llvcrfisgötu 6, 101 Reykjavik, og hjá skóla-
meistara.
Menntamálaráðuneytið
22. júni 1981.
DANISH QUALITY
SETLAUGAR TIL NOTKUNAR ÚTI EÐAINNI
BAÐKER FYRIR BAÐHERBERGIÐ
MEÐ VATNS- OG/EÐA LOFTNUDDI
Úr 5 mm þykku acryl að innan. Styrkt að utan með trefja-
plasti. Acryl ver trefjaplastið fyrir heita vatninu. Nýjung
fyrir þá sem vilja hressa upp á Iíkamann eftir erfiði dagsins.
íþróttafólk hitar sig upp í setlaug fyrir leik og slappar af í
setlaug eftir leik.
Seinasta sending uppseld. Næsta sending væntanleg seinni
hluta júní.
Sýningárlaug á staðnum.
Verð frá kr. 7000.
Útvegum allt til sundlauga og setlauga. Hreinsitæki, dælur
fyrir loft- og vatnsnudd. Leitið upplýsinga.
\mnai Sfygáiööon Lfi
Suðurlandsbraut 16,105 Reykjavik. — Simi 35200