Dagblaðið - 23.06.1981, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981.
(Eyient Erlent Erlent Erlent
„Erfitt að sætta sig við
að deyja fyvir Thailand”
Kampútsea er ráðgáta. Fyrir aðeins
þremur árum blæddi landinu út undir
ógnarstjórn manna sem voru þeirrar
skoöunar að til að bjarga landinu
yrðu þeir fyrst að eyða þvi.
Innrás Víetnam batt enda á þessa
ógnarstjóm og hrakti Pol Pot og
Rauöu khmerana inn i skógana.
Phnom-Penh og aðrar borgir
landsins vöknuðu smám saman til
lífsins á ný undir stjórn Heng
Samrins, leppstjórn Víetnama.
Stjóm Víetnama í Kampútseu hefur
engan veginn verið flekklaus heidur
og hefur oft með verkum sínum
minnt umheiminn á að baki stjórn-
inni í Hanoi stendur stjórnin í
Moskvu.
Þess vegna hefur meirihluti
aðildarþjóða Sameinuðu þjóöanna
greitt atkvæði með þvi aö fulltrúar
Lýöveldisins Kampútseu haldi sætum
sinum hjá Sameinuðu þjóðunum,
sem löglegir fulltrúar þjóðarinnar,
þrátt fyrir að grimmdarverk hafi
vakið viðbjóð og óhug um allan
heim. Kinverjar hafa á sama tíma séö
til þess að Rauðu khmerarnir eru nú
betur vopnaðir og betur til átaka
búnir en þegar þeir fóru með stjórn
Kampútseu.
Nú reyna Kínverjar og aðrar
nágrannaþjóðir Kampútseu, i sam-
tökum þeirra rikja í Suðaustur-Asíu
sem ekki eru kommúnistaríki
(ASEAN), að koma á fót bandalagi
hinna ýmsu andstæðinga Vietnama i
Kampútseu, bandalagi sem nyti meiri
samúðar umheimsins en Rauðu
kmerarnir gera. Tilgangur slíks
bandaiags yrði fremur pólitlskur en
hernaðarlegur. Rauðu khmerarnir
yrðu með yfirburðastöðu innan þessa
bandalags með a.m.k. 30 þúsund
menn undir vopnum. Tveimur mönn-
um hefur veriö boðið að gegna
forystuhlutverki i þessu bandalagi.
Annar þeirra er hinn 58 ára gamli
Norodom Sihanouk, prins.
Þjóðernissinnaðir skæruliðar úr hópi
stuðningsmanna hans, svokallaðir
Moulinakar, eru aðeins 1200 talsins.
Hinn maðurinn er Son Sann, 70 ára
gamall þjóðernis- og lýðveldissinni. í
Khmer Serika sveitum hans eru um 5
þúsund menn. Báðir þessir menn
—segir Sihanouk prins, sem teiur að Kínverjar og
Bandaríkjamenn haf i meiri áhuga á að spoma við útþenslu
Víetnama heldur en á velferð Kampútseumaima
Sihanouk prins. „Ahugi Amerfku,
Kina og ASEAN beinist að þvf að nota
Kampútseumenn sem fallbyssufóður.”
þarfnast sárlega hernaðarstuðnings
Kinverja ef þeir eiga að eiga mögu-
leika á að halda sinum hlut gagnvart
Rauðu khmerunum.
Tilgangur þessa bandalags yrði,
eins og áður segir, fyrst og fremst
póiitiskur: að láta Kampútseumenn
virðast sameinaöri en þeir eru og
bjóða þannig upp á annan valkost en
leppstjóm Heng Samrins.
Sú spurning vaknar að sjálfsögðu
hvernig þessir tveir leiðtogar kæmu
til með að vinna saman. Sihanouk
hefur nú þegar gert út af við fyrir-
ætlanir Kínverja sem gengu út á það
að hann yrði foringi hins nýja^banda-
lags en Sonn Sann yrði i forsæti ríkis-
stjórnarinnar. Sihanouk getur hins
vegar ekki hugsað sér að verða
foringi bandalagsins. Þá afstöðu
skýrði hann þanng i samtali viö
blaðamann timaritsins Time: „Ég á
marga stuðningsmenn við landamæri
Kampútseu og Thilands, sem eru
Ógnarstjórn Rauðu khmeranna vakti viðbjóð um allan heim.
mjög áfjáðir f að fá vopn og skotfæri
frá vinveittum þjóðum — ef ekki
Bandaríkjamönnum þá Kínverjum.
Kinverjar settu eitt skilyrði. 1 staðinn
átti ég að verða foringi bandalagsins.
Ég sagði Kínverjum að ég væri reiðu-
búinn að ganga til liðs við bandalagið
en gæti ekki stjórnað því. Þjóð
Kampútseu myndi fordæma mig ef
ég yrði í forsvari fyrir bandalag sem
Rauðu khmeramir ættu aðild að.”
Son Sann vill að sveitir hans njóti
ekki aðeins stuðnings Beijing heldur
einnig frá lýðræðisþjóðum eins og
Bandarikjunum, V-Þýzkalandi og
Frakklandi þar sem hann hefur lengi
haldið til.
Son Sann á að baki langan póli-
tískan feril. Hann hlaut menntun
sina sem hagfræðingur í Frakklandi.
Fyrstu afskipti sín af stjórnmálum
hóf hann árið 1935. Hann varð þá
aðstoðarhéraðsstjóri í Battambang-
héraði aðeins 24 ára gamall. Á
sjöunda áratugnum var hann um hríð
forsætisráðherra á meðan Sihanouk
prins var við völd.
Eftir að Sihanouk var steypt af
stóli árið 1970 og hann flýði til
Beijing, reyndi Son Sann að koma á
fót „þriðja aflinu” i hinu hrjáða
landi, afli sem stæði á milli hinnar
hægrisinnuöu stjórnar Lon Nol og
Rauðu khmeranna.
Árið 1975, þegar kommúnistar
tóku Phnom-Penh, hélt Son Sann til
Parfsar þar sem hann dvaldi meðan
ógnarstjórn Pol Pots var við völd og
skipulagði útlagastjórn. Sú staðreynd
að Son Sann hefur aldrei staðið i
neinu sambandi við Rauðu khmerana
kann að ráða miklu um það að
Son Sann. Hann hefur aldrei staðið
sambandi við Rauðu khmerana.
Sihanouk prins vill að hann verði
leiðtogi bandalagsins, honum hlytu
Kampútseumenn að treysta.
Þessir tveir leiðtogar eru ólfkir um
margt, og þeir áttu á stundum í
harðri pólitiskri baráttu á sjöunda
áratugnum. Sihanouk prins hefur nú
beðizt afsökunar á orðum sem hann
lét þá falla um Sonn Sann ef það
mætti verða til að greiða götu banda-
lagsins.
Báðir eru þeir Sihanouk og Son
Sann þeirrar skoðunar að þau öfl sem
vilja styöja við bakið á bandalaginu
geri það frekar i þeim tilgangi að
spoma gegn útþenslustefnu
Vietnama heldur en aö þeim sé svo
umhugað um velferð Kampútseu-
búa.
„Áhugi Ameríku, Kína og ASEAN
beinist í þá átt að nota Kampútseu-
menn sem fallbyssufóður til að
stöðva framrás Víetnama til Thai-
lands,” segir Sihanouk. Skærulið-
arnir geta fengiö aðstoð frá Vestur-
lðndum ef þeir biðja um hana „vegna
þess að við myndum deyja til að
sigra Vietnama en ekki til að frelsa
Kampútseu. Ég er reiðubúinn til að
deyja í baráttu fyrir land mitt, en
erfitt er að sætta sig við að deyja fyrir
Thailand.”
Sumar ASEAN-þjóðirnar eru var-
fæmar i gagnrýni sinni á Vietnam,
einkum Malasia og Indónesía. Aðrar
eru sannfærðar um að bandalagið
kæmi bæði Kampútseu og nágranna-
þjóðunum til góða. Rajaratnam,
utanríkisráðherra Singapore bendir á
að ráðamenn bæði í Hanoi og
Moskvu séu mjög áhyggjufullir
vegna fyrirhugaðs bandalags and-
stæðinga Víetnama í Kampútseu.
Annars eyddu þeir vart jafnmiklum
tíma í gagnrýni á það og raun ber
vitni. Hann heldur þvi fram að ef
bandalagið verði ekki að veruleika þá
séu menn búnir að sætta sig við út-
þenslu Sovétrikjanna í Indó-Kína og
jafnvel í Suðaustur-Asíu. Hann heitir
hernaðaraðstoð Singapore við
bandalagið.
í næsta mánuði verður framtið
Kampútseu rædd á ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í New York, sem 65
þjóðir munu taka þátt í. Ekki er
búizt við þátttöku Sovétríkjanna,
Vietnam, Laos eða Heng Samrin
stjómarinnar en bæði Sihanouk og
Son Sann kunna að koma til fundar-
ins.
f september mun allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna enn einu sinni
taka afstöðu til þess hverjir skuli vera
fulltrúár Kampútseu þar. Á sama
tíma er búizt við að Víetnamar hefji
nýja sókn gegn skæruliðum i
landinu. Stuðningsmenn banda-
lagsins gera sér vonir um að bað verði
þá orðið að veruleika og að
Sihanouk, Son Sann og Rauðu
khmerarnir muni sameina krafta sina
gegn Vietnömum og þar með styrkja
stöðu sína gagnvart Sameinuðu
þjóðunum.
Rauðu khmerarnir er nú hetur vopnaðir og betur undir striðsátök búnir en áður
Sameinast andstæðingar Víetnams í Kampútseu?