Dagblaðið - 23.06.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Melissa Sue Anderson sem leikur Mary Ingalls:
Orðin leið á
Húsinu á sléttunni
. Melissa Sue Anderson heitir stúlk-
an sem leikur Mary Ingalls í sjón-
varpsmyndaflokknum Húsinu á slétt-
unni. Hún hefur verið síðustu sjö ár í
þvi hlutverki og segist nú vera orðin
þreyttáþvi.
Melissa er orðin 18 ára gömul.
Henni finnst engin framtíð vera i því
að leika í myndaflokknum hans
Michaels Landon og hefur neitað að
leika í fleiri en þrem þáttum næsta
árið. Og hverjum finnst það skrýtið?
Húsið á sléttunni hefur eins og
flestir vita verið sýnt i íslenzka sjón-
varpinu. Þessi myndaflokkur hefur
notið og nýtur mikilla vinsælda i
Bandaríkjunum og er um þessar varpsstöðin framleiðir. Hér á íslandi
mundir sá vinsælasti sem NBC-sjón- eru hins vegar skiptar skoðanir um
Melissa Sue Anderson 18 ára og flutt að heiman.
Sem Mary Ingalls I Húsinu á sléttunni.
Með vini sinum, Frank Sinatra yngri.
hann. Menn kalla þættina I gríni
Grátið á gresjunni á meðan aðrir
krefjast þess að sjónvarpið kaupi
fleiri.
En nú er Melissa eða Missy, eins og
hún er kölluð, að verða fullorðin.
Hún er flutt að heiman frá móður
sinni og býr ein í eigin tveggja svefn-
herbergja húsi 1 Kaliforníu. Eins og
títt er um þekkt fólk úr kvikmyndum
hafa slúðurblöð ekki látið hana I friði
og eitt þeirra, National Enquirer, lét
eitt sinn að því liggja að drykkju-
skapur hennar nálgaðist það að vera
sjúklegur og hefði eyðilagt samband
hennar og sonar Frank Sinatra,
Frank Sinatra Jr. Einnig lét blaðið að
því liggja að Melissa hefði eitt sinn
verið undir áhrifum áfengis við kvik-
myndatöku og mætti sjá hana óstöð-
uga I einum þætti Hússins á sléttunni.
Melissa hefur lýst þvl yfir að þetta
sé hreint kjaftæði. Hún segist hafa
kynnzt Frank Sinatra Jr., sem er 37
ára, árið 1979. ,,Ég var bara 17 ára
en hann var reiðubúinn að hlusta á
mig I stað þess að umgangast mig eins
og ég væri krakki. Og ég gat hjálpað
honum þegar þurfti,” segir Melissa.
„Við hittumst reglulega. Ég elska
hann og ég veit að hann elskar mig.
Við förum saman út og hittum annað
fólk,” segir hún og er ekkert að fara
leynt með samband sitt við son
Sinatra sem er 19 árum eldri en hún.
Yoko sýnir
kvikmyndir
— úr einkalífi sínu og Johns
Yoko Ono, ekkja Johns Lennon, á Annar háttur var hins vegar hafður
I fórum sínum nokkrar heimagerðar á þegar nýjasta mynd Yoko kom
kvikmyndir. Þær eru stuttar og sýna fram fyrir sjónir almennings. Sú var
meðal annars John I lifanda lífi, að sýnd 1 lokuðu kaplasjónvarpi I New
starfi og leik. York og kynnirinn var lltt þekktur.
Síðast þegar ein þessara mynda var Ástæðan var sú að I myndinni voru
gerð opinber var það I ABC-sjón- samfarasenur með John og Yoko.
varpsstöðinni á bezta sýningartlma Sjónvarpsstöðin þorði ekki að hætta
og kynnir með henni var engin önnur á að sýna myndina um öll Bandarik-
en Barbara Walters, ein þekktasta in.
sjónvarpsstjama vestanhafs. Úr því að farið er að minnast á
!'o má geta þess að á nýrri hljóm-
plötu sem brátt kemur út; Seaí''”
Glass, er lag sem heitir No. No. ..
Það hefst á fjórum byssuskotum.
Síðan æpir Yoko.
H
Yoko Ono.
Erfitt hjá
Faye
Dunaway
„Þetta er erfiöasta kvikmyndahlut-
verk sem ég hef fengið,” segir Faye
Dunaway um hlutverk sitt I kvikmynd-
inni Mommie Dearest sem fjallar um
ævi leikkonunnar Joan Crawford.
Faye leikur Joan og fyrir hverja
kvikmyndatöku þarf hún að vera I
þriggja tima förðun. En það virðist
ekki vera nóg því Christina Crawford,
dóttir Joan, virðist ekki vera ánægð
með hvernig Faye tekur sig út I hlut-
verkinu, ef marka má heimildir Dag-
blaðsins. Þessi Christina er reyndar
höfundur sögunnar Mommie Dearest.
Orðrómur er á kreiki um það að hún
vilji losna við Faye úr hlutverkinu, að
því er sagt er vegna þess að Fay sé ekki
nægilega trú texta bókarinnar.
Faye Dunaway I hlutverki Joan Craw-
ford eftlr að hafa verifl förðuð I þrjá
tima.