Dagblaðið - 23.06.1981, Side 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ1981.
FÆRRIKOMAST EN
VIUA Á HELGAR-
SKÁK í GRÍMSEY
Þar sem tröllasögur fóru af hæfni
manna viö skákborðið fyrr á öldum
verður haldið 10. og síðasta helgar-
skákmótið. Þetta er auðvitað 1
Grímsey.
Ekkert lát hefur verið á vinsældum
helgarskákmótanna sem háð hafa
verið á vegum Tlmarítsins Skákar og
Skáksambands tslands. Grimseyjar-
mótið er 26.-28. júni.
Svo mikill áhugi er á Grimseyjar-
mótinu aö færri komast aö en vilja.
Meðal keppenda má nefna stór-
meistarana Friðrik og Guðmund,
alþjóðlegu meistarana Helga og Jón
L. Þá er ekki litill fengur að þeim
Ásmundi Ásgeirssyni, Benóný
Benediktssyni, Sturla Péturssyni og
Hjálmari Theódórssyni, svo ein-
hverjir þátttakenda séu nefndir.
Verðlaun eru eins og áður meðal
annars sérstök kvennaverðlaun og
dvöl i Skákskólanum á Kirkjubæjar-
klaustri fyrir þann sem beztum
árangri nær 14 ára eða yngri. Upplýs-
ingar um mótið er annars að fá i sim-
um 15899 og 31975.
-BS.
LAUSAR STÖÐUR
Nokkrar kennarastöður við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar lil umsóknar. Kennslu-
yreinar sem um er að ræða eru: eðlis- or efnafræði, liffræði, saunfræöi, sálfræði, stærðfræði or sér-
yreinar á vélstjórnarbraut. ÆskileRt er að umsækjendur Reti kennt fleiri en eina námsRrein.
I.aun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarleRum upplýsinRum um námsferil or slörf skulu hafa borisl menntamála-
ráðuneytinu, HverfisRötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 19. júli nk. Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið
22. júní 1981.
Hitaveita
Suðurnesja
Óskar að ráða járniðnaðarmann, t.d. vélvirkja,
til starfa í Svartsengi. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem allra fyrst.
Umsóknir verða að berast Hitaveitu Suðurnesja,
Brekkustíg 36 í Njarðvík, eigi síðar en 30. júní.
Frá skólatannlækningum
Reykjavíkurborgar
Tannlækningastofur skólatannlækninga Reykja-
víkurborgar verða í sumar opnar á eftirtöldum
stöðum:
íjúní: Heilsuverndarstöð .
Breiðholtsskóla
Fossvogsskóla
Fellaskóla
Hlíðaskóla
Hólabrekkuskóla
Melaskóla
Langholtsskóla
Seljaskóla
Vogaskóla
í júlí: Heilsuverndarstöð
Breiðholtsskóla
Fossvogsskóla til 24. júl-
Hlíðaskóla
Hólabrekkuskóla
Melaskóla til 15. júlí
í ágúst: Heiisuverndarstöð
Árbæjarskóla frá 17. ágúst, sími: 86977
Breiðholtsskóla
Fellaskóla frá 17. ágúst
Hlíðaskóla
Hólabrekkuskólafrá 17. ágúst
Langholtsskóla frá 5. ágúst
Seljaskóla til 10. ágúst
Athygli skal vakin á því að tannlæknadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar verður opin alla
virka daga frá kl. 8.30—16 og eru þar gefnar
upplýsingar um neyðarþjónustu í síma 22417.
Yfirskólatannlæknir.
sími: 22417
sími: 73003
sími: 31430
sími: 75452
sími: 25266
sími: 74470
sími: 10625
sími: 33124
simi: 77405
sími: 84171
Litið á skatta
skemmtikrafta
— Bessi Bjarnason hæstur
f dag litum viö á skatta nokkurra
manna sem hafa tekjur af þvi að koma
fram opinberlega og skemmta fólki.
Það skal ítrekað að hér er um skatta af
tekjum ársins 1979 að ræða.
Bessi Bjarnason leikari — langhæstur
þeirra sem hér eru nefndir.
Bessi Bjarnason leikari er langskatta-
hæstur skemmtikraftanna i úrtakinu.
Hans skattar námu rúmlega 4,5
milljónum gamalla króna. Ómar
Ragnarsson, Laddi og Jörundur koma
næstir, allir með yfir tvær milljónir.
Bessi, Ómar og Jðrundur voru allir í
föstu starfi á árinu 1979.
Bessi, Ómar og Ragnar Bjarnason
eru þeir einu sem greiða eignarskatt.
Þeir eru lika þrir elztu mennirnir f
úrtakinu.
í aftasta dálknum, samanlögðu töl-
unni, eru skattgreiðslur einstakling-
anna samtals þegar persónuafsláttur og
barnabætur hafa verið dregnar frá.
-KMU.
Nöfn Baldur Brjánsson tekjusk. 499.022 eignarsk. 0 útsvar 727.000 sk. samtals 1.149.743
Bessi Bjarnason 2.883.762 37.547 1.210.000 4.523.300
Björgvin Halldórsson 163.245 0 615.000 830.735
Egill Úlafsson 316.453 0 424.000 569.505
Gunnar Þórðarson 680.160 0 610.000 1.398.390
Haraldur Sigurðsson (Halli) 17.600 0 594.000 163.845
Jörundur Guðmundsson 1.325.163 0 917.000 2.093.454
Ómar Ragnarsson 1.330.650 105.742 1.333.000 2.395.901
Ragnar Bjarnason 706.138 107.104 751.000 1.724.863
Þorgeir Ástvaldsson 583.434 0 485.000 967.939
Þórhallur Sigurðsson (Laddi) 1.252.927 0 908.000 2.368.311
Ríkisrekið olíufélag
á óskalista Hjörleifs
—á að samræma olíuleit, olíuhreinsun og innlenda
eldsneytisf ramleiðslu, og hafa umsjón með olíubirgða-
haldi og neyðaráætlun í olfumálum
,,Ég tel æskilegt að stofnað verði
oliufélag á vegum ríkisins til að
annast innkaup á oliuvörum til
landsins og dreifingu þeirra, i
samvinnu við olíufélögin sem fyrir
eru,” sagði Hjörleifur Guttormsson
iðnaöar- og orkumálaráðherra m.a. i
ávarpi er hann fiutti á aðalfundi
Sambands ísl. rafveitna á Egils-
stöðumigær.
Hjörleifur sagði að slfk rikisoliu-
félög hefðu verið stofnuð á hinum
Norðurlöndunum á undanförnum
árum og hafa þau margháttuð sam-
skipti sín á milli, að sögn ráðherrans.
..Oífufélag á vegum opinberra
aðila hérlendis gæti tekið að sér
samræmingu og framkvæmd ýmissa
þátta er varða athuganir og þróun
nýjunga í eldsneytismálum okkar,
þar á meðal olíuleit, olíuhreinsun,
innlenda eldsneytisframleiðslu svo og
umsjón með öryggisþáttum, s.s. olíu-
birgðahaldi og neyöaráætlun í oliu-
málum. Á meðan olfufélag rikisins
hefur ekki verið sett á fót er nauðsyn-
legt að tryggja með öðrum hætti sam-
starf hlutaðeigandi aðila og æski-
lega samræmingu aðgerða,” sagði
Hjörleifur Guttormsson.
Hjörleifur ræddi í ávarpinu ýmsa
þætti orkumálanna en ofangreind
orð féllu er hann ræddi eldsneytis-
málin.
-A.St.
EFTA og Efnahagsbandalagið:
„Endurskoðun óþörT
—segir Tómas Arnason
„Það er misskilningur að ég telji að
endurskoða þurfi aðild okkar að EFTA
og samninga við EBE,” sagði Tómas
Árnason viðskiptaráöherra í viðtali við
DB í gær. Tómas bað blaðið að koma
Eivi á framfæri að hann teldi hagnað upphæð væru þeir tollar sem íslend-
slendingagifurleganafaðildaðEFTA ingar hefðu elia þurft að greiða af
og samningi við Efnahagsbandalagið. vörum sem þeir fluttu út til rlkja í
Hagnaðurinn hefði numið 15 milljörð- EFTA og Efnahagsbandalaginu.
um gamalla króna á síðasta ári. Þessi -HH.
r:
interRent
rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S. 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
Hraðbraut hf. á laggim-
ar í stað Olfumalar hf.
Hlutafélagið Olíumöl hefur verið skuldir. Stærstu krðfuhafar
lagt niður og upp úr þvi stofnað nýtt Olíumalar hf., Framkvæmdastofn-
fyrirtæki, Hraðbraut hf. Með unin, Útvegsbankinn og olíufélagið
stofnunhinsnýjafyrirtækiserkomið Norsk Fina, standa að stofnun hins
i veg fyrir að Ólíumöl hf. verði form- nýja fyrirtækis.
lega gjaldþrota þrátt fyrir miklar -JH.