Dagblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNl 1981.
II
Heimsókn Vigdísar forseta til Strandamanna:
Sonur sýslumannsins
lýstur jarl af Grímsey
—bömin í Drangsnesi fengu trjáplöntur að gjöf frá forsetanum
Hákon, sýslumannssonurinn á Ströndum, hlaut mikla og óvxnta upphefð I gær þegar
Vigdís forseti lýsti hann jarl af Grímsev á Steingrímsfirði. Víst er að enginn annar
fimm ára snáði á íslandi státar af slíku — og þó víðar væri leitað.
DB-myndir: Jónas Haraldsson.
Frá Jónasi Haraldssyni fréttamanni
DB I fylgdarllði forseta íslands I
Strandasýslu:
„Ég lýsi þig jarl af Grimsey í Stein-
grímsfirði. Ég veit ekki hver getur lýst
menn jarla ef ekki forseti íslands,”
sagði Vigdís Finnbogadóttir i gær við
Hákon Eyjólfsson 5 ára son Hjördísar
Hákonardóttur sýslumanns Stranda-
sýslu. Hákon jarl tók við nafnbótínni af
prúðmennsku og lítillæti svo sem vera
ber. Það eru ábyggilega ekki margir
jafnaldrar hans sem státað geta af jarls-
nafnbót og þar með nokkru tilkalli til
heillareyju.
Jarlinn ungi var meðal fylgdarmanna
forsetans frá Hólmavík til Grímseyjar á
Steingrímsfirði í gær. Foreldrar
Hákonar, sýslumannshjónin, voru að
sjálfsögðu með I för og fleiri. Siglt var
með Sigurbjörgu, 17 tonna fari frá
Hólmavik. Skipstjóri var Jóhann Guð-
mundsson, þaulkunnugur í Grímsey.
Hann hafði eitt sinn vetursetu i eynni
Þórir Haukur Einarsson oddviti, Drangsnesi, ásamt forsetanum og sýslumanninum.
Börnin i Drangsnesi tóku vel á móti forsetanum þegar hann kom ásamt föruneyti að
Dranginum.
honum sér vítt yfir Húnaflóa og
Strandir. Veður var gott: sólarlaust og
sæmilegt skyggni. Vigdís og fylgdarlið
skrifuðu i gestabók vitans og fór vel á
því að forseti var fyrsti skráði gestur
ársins. Eftir dvölina i Grimsey var siglt
til Drangsness þar sem þorpsbúar allir,
stórir og smáir, fögnuðu komúmönn-
um. Þórir Haukur Einarsson oddviti
bauð forseta velkominn. Siðan var
haldið að Drangnum sem staðurinn
dregur nafn af. Samkvæmt þjóðsög-
unni er hann steinrunnin tröllskessa.
Þar gróðursetti Vigdis þrjú tré og bað
börn staðarins að gæta. Aður en þau
yrðu fullorðin og eignuðust sjálf börn
yrði þar kominn skógur. Forseta og
íbúurn Kaldrananess var síðan boðið til
hádegisverðar að Laugarhóli í Bjarnar-
firði. Vigdísi, sem tíðrætt hefur orðið
um menningu og listir, ræddi þar aðal-
lega eina list: matargerðarlistina. Það
var ekki að ástæðulausu þvi viður-
gjörningur var með fádæmum. Vigdísi
var þarna gefið merki Strandamanna.
Þvi fylgir sú náttúra að hver sem
gengur með það til orrustu ber sigur úr
býtum.
Forsetinn nefndi þá að slikt merki
fékk hún fyrir ári á framboðsfundi i
Strandasýslu. Og ekki brást náttúran
þá merkinu i þeirri orrustu sem á eftir
fór.
íbúar hreppsins hétu forseta líka
góðri gjöf sem nú mun vera í vinnslu.
Það er fagurt selskinn. Vigdis þakkaði
sérstaklega gjöfina og kvaðst aldrei
áður hafa átt selskinn. Slðdegis
skoðaði fosetinn saumastofuna Borgir
á Hólmavlk og hraðfrystihúsið að auki.
Á morgun skal haldiö lengra norður á
bóginn, alla leið í Árneshrepp á Strönd-
um, þar sem Regina fréttaritari Dag-
blaðsins situr með sæmd sumarlangt að
vanda.
-ARH.
ásamt Guðjóni bróður sínum. Guðjón
var reyndar staddur þar i gær og tók á
móti förseta og föruneyti. Bryggja er
engin i Grimsey og sýndu menn fimi
slna með þvi að stökkva í land. Þar
voru fyrir böm með fána og fögnuðu
forseta sínum. Fuglar, einu föstu ibúar
eyjarinnar, tóku hinum tignu gestum
ekki síður vel. Þeir sýndu það sem þeir
fegurst eiga: afkvæmi sin. Afkvæmin
voru á ýmsum þroskastigum, allt frá
eggjum til unga sem léku listir sínar á
sjónum.
I einu hreiðrinu mátti sjá gogg brjóta
sér leið gegnum skurn. Ekki mátti
minna fyrst forsetinn var kominn!
Gengið var að vitanum á eynni en frá
JÓNAS
HARALDSSON
ATLI RUNAR
HALLDORSSON
Hofsós:
30 fatlaðir Norðmenn f heimsókn
—og fatlaðir íslendingar á förum til Þrændalaga íNoregi
fara þaðan til Húsavíkur, Mývatns-
sveitar og um Eyjafjarðarsýslu. Til
Reykjavíkur fara Norðmennirnir
þann 1. j úll og þaðan heim.
Á öllum stöðum munu Sjálfs-
bjargarfélagar taka á móti erlendu
gestunum, nema á Hofsósi, þar sem
lionsmenn tóku það að sér sem fyrr
segir. Þeir buðu til kvöldverðar í
Höfðaborg og sýndu litskyggnur
sem sýndu hvemig umhorfs er í
héraðinu.
Hópur fatlaðra fslendinga fer 12.
júli nk. áleiðis til Þrændalaga og
ætlar að dvelja þar fram undir
mánaðamót júll/ágúst. Litið er á
heimsóknirnar sem lið í menningar-
samskiptum fatlaðra i Noregi og á
íslandi. Guðni, Hofsósi/-ARH.
Norsld hópurinn var f velzlu i Höfða-
borg á Hofsósi I boðl Llonsldúbbsins
Höfða. Nikkarinn er elzti þátttak-
andinn 1 ferðinni. Hann er 79 ára og
spllaði og söng á samkomunni af
hjartans lyst.
DB-mynd: Guðnl Slg. Óskarsson.
Hópur fatlaðs fólks frá Þránd-
heimi og Þrændalögum í Noregi kom
til Hofsóss á sunnudaginn á vegum
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra. Hópurinn, 30 manns auk 5
aðstoðarmanna, ætlar að dveljast á
íslandi i hálfan mánuð. Þátttakendur
í ferðinni eru á aldrinum 14—79 ára.
Yngst er stúlka sem fylgir fatlaðri
móður sinni. Elztur er karlmaður
sem hefur þurft á hækjum að halda í
73 ár, eða frá 6 ára aldri. Hann lék
við hvem sinn fingur á harmóníku á
samkomu sem Lionsklúbburinn Höfði
efndi til i félagsheimilinu Höfðaborg
og spilaði m.a. fyrir dansi ásamt
einum íslendingi. Þá tók hann lika
lagið og söng visur frá Þrænda-
lögum, Færeyjum (til heiðurs fær-
eyskum félaga i Lionsklúbbnum) og
frálslandi.
Ivar Johan Kolvik, fararstjóri
Norðmannanna, sagði fréttaritara
DB að hópurinn myndi dveljast að
Hólum I Hjaltadal í 4 daga og ferðast
þaðan um Skagafjörð, til Siglu-
fjarðar og Blönduóss. Þá myndi
hópurinn færa sig til Akureyrar og