Dagblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981.
Andtát
Spáfl ar haogvlðri um allt land, bjart
á Suður- og Vasturiandl. Dálftll rign-
Ing fyrir noröan og austan framanaf
dagl an láttlr tll salnnl partinn.
Klukkan 6 var norðan 2, skýjað og
8 stlg I Raykjavlt, austsuðaustan 4,
láttskýjað og 7 stig á Gufuskálum,
norðnorðaustan 3, léttskýjað og 4
stlg á Gaharvita, norðnorðvastan 4,
skýjað og 6 stlg á Akureyri, norðvast-
an 6, rlgnlng og 2 stlg á Raufarhðfn,
norðaustan 2, súld og 8 stig á Dala-
tanga, norðnorðaustan 3, skýjað og
12 stlg á Hðfn og norðvastan 8,
alskýjað og 8 stlg á Stórhöfða.
I Þórshöfn var skýjað og 9 stig,
haiöaklrt og 18 stlg I Kaupmanne-
höfn, skýjað og 16 stig í Osló, látt-
skýjað og 18 stlg í Stokkhóiml,
skýjað og 13 stlg í London, þoku-
móða og 12 stlg í Hamborg, 14tt-
skýjað og 11 stlg í Parfe, halðakfrt og
14 stlg í Madrid, láttskýjað og 18 sdg
í Ussabon og haiðakirt og 22 stig I
Naw York.
V*
Veðrið
Björn Krlstlnn Sigurjónsson frá Stóru-
Borg, sem lézt 11. júnl sl., fæddist 24.
marz 1956 á Efstu-Grund undir Eyja-
fjöllum. Foreldrar hans voru Sigurjón
Ólafsson og Svanlaug Auöunsdóttir.
Þegar Björn var tveggja ára fluttust
foreldrar hans aö Stóru-Borg i Gríms-
nesi þar sem hann ólst upp. Björn hafði
með höndum í tvö ár flutning skóla-
barna í Grímsnesi í félagi viö annan.
Síðar keyrði hann langferðabíla hjá
f Ölafi Ketilssyni sérleyfishafa og hjá
Sérleyfisbílum Selfoss. Síðast starfaði
Björn hjá Gunnari Guðmundssyni hf.
viö þungaflutninga. Hann átti einn son
með unnustu sinni, Ingveldi Jónu
Magnúsdóttur.
Páll Einarsson frá Þórisholti, sem lézt
14. júní sl., fæddist 9. september 1900
að Þórisholti. Foreldrar hans voru
Einar Finnbogason og Vilborg Andrés-
dóttir. Árið 1935 hóf Páll búskap á
föðurleifð sinni í sambýli við bræður
sína ásamt Margréti Jóhanns-
dóttur.Árið 1945 fluttust Páll og
Margrét að Nýjabæ á Seltjarnarnesi.
Starfaði hann á Vífilstaðabúi og síðar
á Bessastaðabúi allt til sjötugsaldurs.
Síöast bjó Páll á dvalarheimilinu Ási í
Hveragerði.
Hermina Ingvarsdóttlr frá Gillastöð-
um Reykhólasveit, Hverfisgötu 102,
Reykjavík, lézt á gjörgæzludeild
Borgarspítalans 19. júní sl.
Jón Eggert Bachmann Lárusson, loft-
skeytamaður, Ljósheimum 16B, lézt i
Borgarspítalanum 20. júní sl.
Guðrún Vernharðsdóttir frá Stóru-
Drageyri, Grettisgötu 27, verður jarðs-
ungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 25. júni kl. 15.
Ólafur Ingiberg Halldórsson, renni-
smiður, Grettisgötu 22, verður jarðsett-
ur frá Fossvogskirkju 24. júní kl.
13.30.
*
I
GÆRKVÖLDI
Myndir brengluðust i frásögn af
heimsókn forseta íslands i Dalasýslu í
blaðinu i gær. Meö texta um frumorta
drápu, sem Skjöldur Stefánsson flutti
forseta, birtist mynd af Magnúsi Gests-
syni safnverði. Hér er mynd af Skildi
þar sem hann flytur frú Vigdisi
drápuna góðu. Beðizt er velvirðingar á
þessum mistökum.
DB-mynd: Gunnar örn
FRELSISEM ER
ÓFRELSI
SEM ER FRELSI
Konstin er sú að velja og hafna,
rétt eins þegar útvarp og sjónvarp eru
annars vegar eins og hvað annað,
sagöi min ágæta vinkona Anna
Ólafsdóttir Björnsson í þessum þætti
i gær. Sannarlega er það rétt — og
hefði ég ekki verið búinn aö lofast til
annars löngu áður en ég vissi hvað
var á dagskrá í gærkvöldi hefði ég
svo sem ekki valið neitt af því sem
rikisfjölmiðlarnir buðu upp á —
nema auðvitað fréttirnar.
Hvað var annars I fréttum í gær-
kvöldi? Ég get svarið að ég man ekki
eftir neinu. Jú, bíðum við, eitthvað
var minnst á þessar fáránlegu sektir
við fugla- og eggjaþjófnaði, sem
hlegið er að út um allan heim, ekki
sist hinn þýskumælandi. Og það út af
fyrir sig var ekki frétt, heldur frétta-
fylgja. Hins vegar hef ég beðið nú í
nokkra daga eftir að fréttastofa sjón-
varps sjái sér fært að segja frá sam-
vinnu norrænna listamanna, sem
skipulögð hefur verið hér i sumar og
útvarpið hefur þegar sagt bærilega
frá. En Nordisk samarbejde er víst
ekki frétt nema þegar hægt er að
skála með henni í finu fötunum.
í útvarpi var talað um daginn og
veginn, hreimmikið og skorinort upp
á vestfirsku. Ég hélt fyrst að flutn-
ingsmanni myndi mælast af skyn-
samlegu viti, en þegar á leið þótti mér
það óskynsamlegt vit. Ég fann ekki
betur en það frelsi sem hann vildi
boöa sem hið eina sanna frelsi sé það
frelsi sem útilokað er að öðlast. Þvi
allir eru öðru og öðrum háðir, hvar
og hvemig sem er, og hið eina frelsi
er að hagnýta sér það sem mögulegt
er innan þess ramma þannig að öðru
og öðrum innan þess sama ramma sé
það einnig til bóta. Allt annað frelsi
er agaleysi og tillitsleysi, sem er
ófrelsi i sjálfu sér.
Lög unga fólksins eru ekki mín
kaka. Útvarpssögur örsjaldan. Ég
hef aldrei kunnað að meta selló. Af
samskiptum f slendinga og Grænlend-
inga missti ég vegna sjónvarpsins en
valsar Waldteufels létu mér ljúflega í
eyrum, sömuleiðis greifamúsík
Lehars. Ég er nefnilega ein af þeim
undarlegu skepnum sem hafa lúmska
ánægju af klassískri tónlist.
Ég lét íþróttir í sjónvarpi yfir mig
ganga. Tillitssemi þegar ausið er yfir
mann fótbolta að klippa burtu þvæl-
inginn og láta duga að sýna mörkin.
Mér þótti gaman að heyra dönskuna'
í sjónvarpsleikritinu. Þetta var nefni-
lega góð danska og góð danska er
eins og önnur vel töluð tungumál:
góð músik. Annars var þetta vist
fjarskalega áhrifamikið leikrit sem
snerist um ungan mann sem lét aðal-
lega stjómast af kirtlastarfsemi.
Skelfing getur kvenfólk verið vitlaust
að toga svona vanþroskaða
barnskratta á asnaeyrunum og ennþá
vitlausara að toga þá upp að altarinu.
Eina manneskja sem var upp undir
normal í þessari mynd var mamma
önnu, þessi sem var lögst 1 bælið til
að lesa bækur. Það ætla ég líka að
gera þegar ég er orðinn stór.
Dagskrárlok voru besti liðurinn í
báðum ríkisfjölmiðlum I gær.
Sigurður Hreiðar
Elfar Loftsson varfli doktors-
ritgerð við Gautaborgarhá-
skóla
Þann 30. maí siöastliðinn varði Elfar Loftsson
doktorsritgerð viö stjórnmálafræðideild Gauta-
borgarháskóla.
Ritgerðin sem heitir Island í NATO — partiema
och försvarsfrágan, fjallar um viðhorf íslenzku
stjórnmálaflokkanna til varnarmálanna með aðal-
áherzlu á inngönguna í NATO 1949 og komu
varnarliðsins 1951. Þrjú meginatriöi eru athuguð i
ritgerðinni. í fyrsta lagi greining íslenzku stjórn-
málaflokkanna eftir stjórnmálafræðilegum að-
ferðum. Hér er gerö grein fyrir þeim mismunandi
málefnasviöum sem áhugi flokkanna beindist aö og
hvernig þessi viðhorf hafa tengzt afstöðu flokkanna
til NATO. I öðrum meginhluta ritgerðarinnar er
gerð grein fyrir þróun vamarmálanna á íslandi og
hvernig þessi mál hafa tengzt stjórnmálum á
alþjóðavettvangi. Mestur hluti þessara rannsókna
byggist á bandariskum leyniskjölum. I þriöja hluta
ritgerðarinnar gerir Elfar tilraun til að skýra afstöðu
flokkanna til varnarmálanna með stjórnmálafræði-
legum aðferðum og út frá þeim staöreyndum sem
fram koma í fyrri köflum rannsóknarinnar. Hér er
einnig gerð grein fyrir þeim áhrifum sem NATO
málið hefur haft á samstöðuna innan flokkanna og á
samvinnumöguleika þeirra.
Ritgerð Elfars er á sænsku með útdrætti á ensku.
Hún mun vcrða fáanleg í bókaverzlunum hérlendis
innan skamms.
Elfar Loftsson er fæddur 1942. Hann hefur um
árabil verið búsettur í Sviþjóð og starfar nú við
Gautaborgarháskóla.
Flóamarkaður
verður á Hjálpræöishemum þriðjudag og miðviku-
dag frá kl. 10—17. Verið velkomin.
Aðalfundur
Kaupfólags
Héraflsbúa
Aöalfundur Kaupfélags Héraösbúa var haldinn i
Valaskjálf á Egilsstöðum þann 2. mai. Fundinn sátu
fulltrúar frá öllum deildum félagsins, alls 68 manns.
Tveir heiðursgestir sátu fundinn, Bjöm Kristjáns-
son, Grófarseli, heiöursfélagi K. H. B., og Hermann
Ágústsson, Rcyðarfirði, sem nýlega hefur látið af
störfum á skrifstofu Kaupfélags Héraðsbúa þar eftir
langt og farsælt starf.
Steinþór Magnússon formaður félagsins setti fund-
inn og flutti skýrslu stjómar. Þorsteinn Sveinsson
kaupfélagsstjóri flutti fundinum skýrslu um störf
félagsins og rekstur á liðnu ári og skýrði reikninga
sem lágu fyrir fundinum.
Heildarveltan á árinu 1980 var 14.037.987.00 gkr.
og haföi aukizt milli ára um 53%. Heildarsalan á
árinu var 5.3 milljarðar gkr og varð söluaukning
63% að meðaltali miðað við árið áður. Fjárfestingar
á árinu námu 277 milljónum gkr. og voru
stærstu verkefnin sem unnið var aö bygging sölu-
skála á Egilsstöðum og endurbætur á kjörbúðinni á
Reyðarfirði. Skuldir viðskiptamanna við félagið
jukust um 56% á árinu 1980 en innistæður jukust
um 40% á sama tíma. Eignir, þar meö taldar vöm-
birgðir vom afskrifaðar eins og lög Ieyfa, en auk
þess samþykkti fundurinn tillögu um úthlutun I
stofnsjóð félagsmanna kr. 15.000.000.00 gkr. Einnig
var úthlutaö í menningarsjóð 4.000.000,00 gkr.
Menningarsjóðurinn úthlutar fé til ýmissa
samfélagsverkefna eftir ákvörðun stjórnarinnar
hverju sinni.
Eggjaþjófarnir
gerðir
iandrækir
Hollendingarnir tveir, sem vakið
höfðu tortryggni og illan grun vegna
veru sinnar á varpstöðvum fugla við
Mývatn, var fyrir helgina vísað úr
landi. Voru þeir dæmdir í hæstu sektir
sem lög leyfa eða 100 krónur. Þeir geta
hins vegar ekki aftur heimsótt ísland,
né neitt annað Norðurlanda, næstu
fimm árin.
Hollendinganna var leitaö á föstu-
dagsmorguninn nyrðra og eins og DB
skýrði frá var jafnvel búizt við að þeir
myndu leita eftir fari á skemmtiferða-
skipinu Estonía.
Þeir skutu hins vegar upp kolli á
Keflavikurflugvelli á föstudagsmorgun
og ætluðu utan. í farangri þeirra fannst
mikill fjöldi eggja, þar af um helm-
ingur í sérstökum búnaði til útungunar.
- A.St.
Úr stjórn félagsins áttu að ganga lngimar Sveins-
son, Egilsstööum, aöalmaöur, og Hrafnkcll
Björgvinsson á Víðivöllum, varamaður. Voru þeir
báðir endurkjömir. Hrafn Sveinbjamarson, Hall-
ormsstað, var endurkjörinn endurskoðandi og sr.
Einar Þ. Þorsteinsson á Eiðum til vara. Á aðalfund
Sambandsins voru kjömir Þorsteinn Sveinsson,
Steinþór Magnússon og Ingimar Sveinsson.
Orlofsnefnd
Kópavogs
Hið árlega húsmæðraorlof verður aðLaugarvatni
dagana 6.—12. júlí 1981. Vegna fjárskorts veröur aö
takmarka fjölda orlofskvenna. En þær konur sem
em að fara I fyrsta sinn verða látnar ganga fyrir.
Konur eru vinsamlega beönar að koma á skrif-
stofuna og greiða þátttökugjaldið. Skrifstofan
verður opin dagana 29.—30. júní milli kl. 16 og 18 1
Félagsheimili Kópavogs, 2. hæð. Upplýsingar I síma
(40689, Helga) (40576, Katrín). (41111, Rannveig)
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Feróamanna-
Nr. 114 — 22. júní 1981 gjakfeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7,287 7,287 8,016
1 Sterlingspund 14,426 14,466 16,912
1 Kanadadollar 6,039 6,066 6,662
1 Dönsk króna 0,9777 0,9804 1,0784
1 Norsk króna 1,2302 U336 1,3670
1 Sœnsk króna 1,4460 1,4490 1,6939
1 Finnsktmark 1,6462 1,6498 1,8148
1 Franskur franki 1,2820 1,2866 1,4141
1 Belg.franki 0,1876 0,1881 0,0691
1 Svissn. franki 3,6328 3,6426 3,8968
1 Hollenzk florina 2,7606 2,7682 3,0460
1 V.-þýzkt mark 3,0701 3,0786 3,3866
1 ftálsk llra 0,00616 0,00618 0,00680
1 Austurr. Sch. 0,4342 0,4354 0,4789
1 Portug. Escudo 0,1164 0,1167 0,1284
1 Spánskur peseti 0,0771 0,0773 0,0860
1 Japansktyen 0,03266 0,03275 0,03597
1 írsktound 11,220 11,261 12,376
SDR (sóratök dráttarróttlndl) 8/1 8,4303 8,4632
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
Fundir
AA-samtökin
í dag þriðjudag verða fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 12010), græna
húsið, kl. 14 og 21; Tjamargata 3 (s. 91-16373),
rauða húsiö, kl. 12 (samlokudeild) og 21; Neskirkja
kl. 21.
Akureyri, (s. 96-22373) Geislagata 39 kl. 21; ísa-
fjörður, Gúttó við Sólgötu kl. 20,30, Keflavík (s. 92-
1800), Klapparstig 7 kl. 21, Keflavikurflugvöllur kl.
11,30, Laugarvatn, Barnaskóli kl. 21, ólafsvik,
Safnaðarheimili kl. 21, Siglufjörður, Suðurgata 10
kr. 21, StaðarfeU Dalasýslu (s. 93-4290) kl. 19.
í hádeginu á morgun, miðvikudag, verða fundir sem
hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12020) kl. 12 og 14
Iþróttir
(slandsmótlð í
knattspyrnu 1981
ÞrlOjudagur 23. júni
AkureyrarvöUur
Þór — FH, 1. deild, kl. 20.
LaugardalsvöUur
Víkingur — ÍBV, 1. deild, kl. 20.
KR-völlur
KR — lA, kvennafl., kl. 19.30.
Fellavöllur
Leiknir — Valur, kvennafl., kl. 20.
FramvöUur
Fram — Valur, 2. fl. A, kl. 20
Árbejarvöllur
Fylkir — ÍBK, 2. fl. B, kl. 20.
HúsavikurvöUur
Völsungur — Stjaman, 2. fl. B, kl. 20.
GróttuvöUur
Grótta — Leiknir, 2. fl. C, kl. 20.
KópavogsvöUur
ÍK — ÍBÍ, 2. fl. C, kl. 20.
Njarðvikurvöllur
Njarðvik — Haukar, 2. fl. C, kl. 20.
Neskaupstaðarvöllur
Þróttur — Einherji, 2. fl. C, kl. 20.
Stjörnuvöllur
Stjaman — Haukar, 4. fl. B, kl. 20.
ÚtivistarferAir
Þriöjudagur 23. 6. kl. 20: Jónsmessunæturganga á
Reykjanesskaga. Létt ganga fyrir aUa, fararstjóri
Kristján M. Baldursson. Verð kr. 40, frítt fyrir böm
með fuUorðnum. Farið frá BSÍ (vestanverðu), í
Hafnarfirði við kirkjugaröinn.
Kvenfélag IMeskirkju
Jónsmessuferð verður farin miðvikudaginn 24. júni
nk. ef næg þátttaka fæst. Nánari upplýsingar fást
hjá Hrefnu i s. 13726 og Sigríöi i s. 11079 fyrir
mánudagskvöld.
Sveit Stefáns Ragnarssonar
Norðurlandameistarar
í bridge
Dagana 5.-7. júní var spilað í Varmahlíð í Skagafirði
Norðurlandsmót í bridge. Sigurvegari nú varð sveit
Stefáns Ragnarssonar frá Akureyri sem hlaut 150
stig af 180 mögulegum og sigraði með talsverðum
yfirburðum. í sveitinni eru aUt ungir menn, sem auk
Stefáns eru: Pétur Guðjónsson, Þórarinn B. Jóns-
son, Páll H. Jónsson, Gunnlaugur Guðmundsson og
Magnús Aðalbjörnsson. Alls spiluðu 10 sveitir víðs
vegar af Norðurlandi á móti þessu, sem tókst i alla
staði mjög vel og var Skagfirðingum til sóma.
Röð sveitanna varð þessi: Stig
1. sveit Stefáns Ragnarssonar, Akureyri 150
2. sveit Eiríks Helgasonar, Dalvík 134
3. sveit Boga Sigurbjörnssonar, Sigluf. 122
4. sveit Þórðar Ásgeirssonar, Húsavík
5. sveit Páls Pálssonar, Akureyri.
6. sveit Kristjáns Blöndal, Sauðárkróki.
7. sveit Reynis Pálssonar, Skagafirði.
8. sveit Baldurs Ingvarssonar, Hvammst.
9. sveit Hallbjörns Kristjánss., Blönduósi
10. sveit Skúla Jónssonar, Húsavik.
Þess má geta að tvær efstu sveitirnar töpuðu
aðeins einum leik en unnu alls 8. Keppnisstjóri var
Albert Sigurðsson frá Akureyri.
í veglegu hófi sem sýslunefnd Skagafjarðar bauð
til að keppni lokinni voru verðlaun afhent og ávörp
flutt.
í Varmahlíð komu framámenn í bridgeíþróttinni á
Norðurlandi saman og á fundi þeirra var ákveðið að
næsta Noröurlandsmót skyldi haldið á Akureyri að
ári.