Dagblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 27
27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNf 1981.
Utvarp
Sjónvarp
D
Sjónvarpið í
sumarfrí
í næstu viku
—fríið einni viku lengra en venjulega
Nú er ekki nema ein vika þar til
sumarfri sjónvarpsins hefst þann 1.
júli. Síöasti útsendingardagur er
þriöjudagurinn 30. júni og þá Um
kvöldiö býður sjónvarpið upp á
magnaða biómynd frá árinu 1973,
Don’t look now, meö Donald Suther-
land og Julie Christie í aðalhlutverk-
um.
Sumarfri sjónvarpsins er i ár viku
lengra en áöur, i sparnaðarskyni.
Útsending hefst að nýju 8. ágúst og
þá um kvöldið er í ráði að sýna Bleika
pardusinn með Peter Sellers í aðal-
hlutverki. Óhætt er að mæla með
þeirri kvikmynd enda fer Sellers þar á
kostum. f ágústmánuði er einnig ætl-
unin að sýna kvikmyndina Irma la
Douce með Shirley MacLaine og
Jack Lemmon i aöalhlutverkum en sú
mynd naut á sinum tima mikilla vin-
sælda.
Eftir sumarfri er einnig von á
myndunum These Are the Damned,
sem er brezk frá árinu 1963 með
Oliver Reed í aðalhlutverki, og vestra
frá 1971 með Stacey Keach og Faye
Dunaway.
Teiknimyndirnar Múminálfarnir
og Tommi og Jenni munu verða í
sjónvarpinu a.m.k. út ágúst. Eftir
sumarfriið er von á tékkneskum
teiknimyndastrák sem heitir Pétur og
kemur hann i stað sirkusdýranna.
Löður er líklega einn vinsælasti
þátturinn sem sjónvarpið sýnir nú.
Það verður sýnt a.m.k. út september
og sömu sögu er að segja af
Óvæntum endalokum. Áhangendum
Dallas færum við gleðifréttir því ekki
sér enn fyrir endann á þeim þáttum.
-KMU
Eftir sumarfrf birtist Clouesau leynilögreglumaður á skjánum.
Opið til klukkan 22.00
þriðjudaga og föstudaga.
Hjúkrunarfræðingur
Óskast að Heilsugæzlustöðinni Kópaskeri. íbúð
búin húsgögnum fylgir. Nánari uppl. veitir odd-
viti Presthólahrepps í síma 96-52128.
Heilsugæzlustöð Kópaskers.
Iðnaðarhúsnæði
Ca 80 til 150 fermetrar óskast strax í Skeif-
unni eða nágrenni.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Dag-
blaðsins fyrir föstud. 26. júní merkt
„Iðnaðarhúsnæði — 6—81”.
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast frá 1. júlí á Seyðis-
fjörð. Uppl. í síma 97-2428 eða 91-27022.
WMBIMIB
Restaurant,
HAFNARSTRÆTI 15
$2* 13340
Mokkakaffi og meðlœti.
Alla daga frá kl. 11 til 23.30.
Samanlagði stóllinn
eftirsótli er kominn aftur. Stóllinn er smlóaöur úr völdu brenni. Hann er
ómálaður, þið ráðið sjálflit, iökkun (mattlakk bezt) eðafúavörn.
Stóllinn sem alls staðar hœfir: í eldhúsið, stofuna, skrifstofuna, kajft-
stofuna, gistihúsið, barnaherbergið, sumarbústaðinn, svalirnar og
garðinn.
ÖVÆNT ENDALOK—sjónvarp kl. 21,15:
ATVINNULAUS SJÓMAÐUR
LEITAR GLÆPAFORINGJA
—ætlar að biðja um Iftinn greiða
Þáttur I hinum vinsæla mynda-
flokki Óvænt endalok er á dagskrá
sjónvarps i kvöld. Fjallar hann um
sjómann nokkum í brezkum hafnarbæ
sem hvergi fær skipspláss. Lægð er 1
útgerð og atvinnuleysi meðal sjó-
manna og söguhetjan okkar ráfar um
atvinnulaus og peningalaus.
Sjómaðurinn þekkir lauslætisdrós
sem hann hafði eitt sinn kynnzt. Hún
veit um undirheimaforingja nokkurn
sem víöa hefur áhrif og á hauka i
horni á mörgum stöðum. Bendir hún
sjómanninum á að leita til glæpafor-
ingjans og fá hann til að útvega skips-
pláss.
Foringi þessi stjómar margvisleg-
um rekstri, svo sem vændishúsum,
spilavítum auk þess sem fíkniefnasala
gefur honum góðan arð. Lauslætis-
drósin, vinkona sjómannsins, hafði
eitt sinn gert foringjanum greiða.
Vonast hún þvl til að hann muni
launa henni greiðann með því að út-
vega skipsplássið.
Sjómaðurínn heldur af stað til að
leita foringjans. Illa gengur hins
vegar að hafa uppi á honum sem
vonlegt er því um er að ræða mann
sem fara þarf huldu höfði. Sjómann-
inum er vtsað úr einum stað 1 annan
og loks tekst honum að fá heimilis-
fang bófaforingjans. Þangað fer
hann.
Ekki er rétt að rekja söguþráðinn
lengra. Óþarfi er að gefa of miklar
visbendingar og eyðileggja þannig
ánægjuna fyrir áhorfendum en að
sjálfsögðu veröa endalokin óvænt.
Óskar Ingimarsson er þýðandi
þáttarins sem nefnist Æðsti maður.
-KMU
BORGARFELL HF.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 23, SÍM111372.