Dagblaðið - 23.06.1981, Qupperneq 28
*
A lciðinni át i Grimsey á Stcinf’rimsfirói i ya-r. Si/’ll vur ú Sif’urbjörnu, /7 tonna fari frá Hólmavlk. Vit> stjórnvölinn vur
Jóhann Guömunilsson Ir. v. á mynd). Meö honum <■ u IIjör iís Hákonardóttir sýslumaöur og Vif-dís Finnbogadóttirforseti.
DB-myndir: Jónas Haraldsson.
Forsetaheimsókn í Ámeshrepp á Ströndum:
Vigdís é slóðum Blóð-
rauða sólariagsins
—hans Hraf ns Gunnlaugssonar í dag
hörsetinn kraup á kné viö Gvendarlau.v
aö l.uuf'arhóli i Strandasýslu og uvtti
lójuna meö helgu vatni. Guömundur f’óöi
hiskup vif’öi laufiina á sínum tima. I/
honum dreyur liún nafn sitt.
Vigdis Finnbogadóttir forseti og
fylgdarlið verða aldeilis á faraldsfæti á
Ströndunum í dag. í morgun var haldið
af stað frá Hólmavík og stefnan sett á
Ámeshrepp, sumardvalarstað Regínu
frá Gjögri, Eskifjarðarfréttaritara DB.
Á leiðinni var staldrað við á Stað í
Steingrímsfirði og í Kaldsbaksvíkinni
var ætlunin að kanna innihald nestis-
pakkanna í hádeginu. Eftir hádegið
verður forsetinn í Djúpuvík, á slóðum
Blóðrauða sólarlagsins hans Hrafns
Gunnlaugssonar. í kvöld er meiningin
að snæða hjá oddvita Árneshrepps og
síðan að kanna hvað boðið verður upp
á á kvöldskemmtun í hreppnum.
Skemmtunin er hluti af menningarvöku
Strandamanna. Þá er ekkert eftir ann-
að en að stiga um borð í farkostina og
halda til Hólmavíkur. Þangað kemur
hersingin væntanlega kl. hálftvö í nótt.
Löng og ströng dagskrá það.
Við birtum í dag myndaopnu frá
heimsókn forsetans í Dala- og Stranda-
sýslu. Einnig fréttafrásögn af viðburð-
um gærdagsins. Jónas Haraldsson
blaðamaður fylgist með ferðalaginu og
frá honum heyrum við á morgun um
það sem gerist í dag.
- ARH
Ný graðhestamál upp komin kringum Bjöm á Löngumýri:
Tveggja vetra graðfoli í
girðingu nágrannans
— „þetta er mannleg illkvittni. Hélt þetta mertryppi og alla vega er hann
ekki kynþroska,
,,Ég hef auglýst til sölu tveggja
vetra graðfola, sem Björn á Löngu-
mýri á. Uppboðið fer fram á fimmtu-
daginn og þá verður hesturinn sieginn
hæstbjóðanda til að mæta þeim
kostnaði, sem verið hefur samfara
þvi að taka hestinn, reyna að skila
honum og nú bjóða hann upp,”
sagði Ingvar Þorleifsson hreppstjóri
Svínavatnshrepps í samtali við DB í
morgun. „Björn á Löngumýri telur
kröfuna ólöglega hefur neitað að
greiða þennan áfallna kostnað og
segir að hesturinn sé ekki lausa-
gönguhestur,” sagði Ingvar.
Heimildarmaður DB að komandi
atburðum og uppboði, H.H. nyrðra,
sagði að þó kyrrt hefði verið í grað-
fola- og hefðbundnum Skjónumálum
um hrið, lifði lengi lengi í gömlum
glæðum. Graðfoli, sem Björn er tal-
inn eiga, brá sér á leik til næsta
bæjar, til Kristján ,í Stóradal.og vildi
segir Bjöm
eiga vingott við hryssu þar. Kristjáni
leizt ekki á gripinn til undaneldis og
tilkynnti hreppstjóranum um vágest-
inn. Hreppstjórinn brást ekki skyldu
sinni, tók hestinn, og bauð Birni að
leysa út gegn greiðslu áfallins
kostnaðar.
Sem fyrr segir neitar Björn á
Löngumýri, bóndi og fyrrum
alþingismaður, að greiða kostnaðinn
og telur hestinn ekki lausagöngu-
hross.
Ingvar hreppstjóri sagði í morgun
að kostnaðurinn sem Björn hefði átt
að greiða upphaflega væri svokallað
vöktunargjald, sem kæmi fyrir pöss-
un og fóðrun á hestinum og auk þess
kostnaður við að handsama graðfol-
Björn Pálsson á Löngumýri.
ann. Hafði ekki legið nákvæmlega
fyrir, hver kostnaðurinn var upphaf-
lega. Bjöm neitaði vöktunargjaldinu
eindregið. Ingvar sagði að nú bættust
við fleiri vöktunargjaldsdagar ásamt
kostnaði fyrir uppboðsauglýsingu og
loks uppboðskostnaður ef til kæmi.
Mætti ætla að kostnaðurinn yrði
eitthvað á annað þúsund nýkróna.
„Það sem kemur þessu máli af stað
er mannleg illkvittni,” sagði Björn á
Löngumýri. „Þetta tveggja vetra
tryppi, sem ekki er kynþroska var í
hestagirðingu er fullorðinn graðhest-
ur, sem var þar með merum, rak
tryppið burt því graðhestar í merum
þola ekki önnur karldýr í nánd. Ég
hafði haldið að tryppið væri
mertryppi en alla vega er það ekki
kynþroska og getur því engri meri
gert skaða. Ég höfða mál út af
þessum ofsóknum,” sagði Björn.
-A.St.
frfálst, nháð daghlað
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981.
Spánarveikin:
Samhengið
óljóst
„Ég talaði við menn hjá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni í Genf í gær
og þeir segjast ekki sjá samhengið á
milli ólöglegrar matarolíu og lungna-
þembu. Það sjá ekki okkar lungna-
menn hér heldur,” sagði Ólafur Ólafs-
son landlæknir er hann var spurður um
niðurstöður rannsókna á svonefndri
Spánarveiki.
Veikin sú kom upp á Spáni í síðasta
mánuði og veiktust þá 2500 manns, þar
á meðal að minnsta kosti tveir íslend-
ingar. Spánverjar hafa sagt ástæður
veikinnar vera sölu á ólöglegri matar-
olíu sem nú hefur verið tekið fyrir.
„Það ætti að sjást ef tilfellum fer
snögglega fækkandi. Ég geri ráð fyrir
að þeir í Genf sé'u að bíða og sjá til
hvort svo fer. En niðurstöður rann-
sókna hljóta að verða ljósar núna alveg
á næstu dögum,” sagði Ólafur. -DS
Ólgaíkjölfar
útvarpsráðsfundar
Starfsmenn á fréttastofu sjónvarps
eru mjög óánægðir með afgreiðslu út-
varpsráðs á umsóknum um stöðu
afleysingafréttamanns næstu fimm
mánuði. Þar hlaut Arnþrúður Karls-
dóttir lögreglumaður 4 atkvæði en
Bolli Héðinsson viðskiptafræðinemi 3
atkvæði. Fréttastjóri sjónvarps og
fréttastofustarfsmenn styðja Bolla á
þeirri forsendu að hann sé háskóla-
menntaður, hafi stundað nám í fjöl-
miðlafræðum og hafi reynslu í blaða-
mennsku. Arnþrúður sé hins vegar með
próf úr Lögregluskóla og kvennaskóla
og hafi ekki starfað við fjölmiðlun.
Hörður Vilhjálmsson útvarpsstjóri
mun í dag ákveöa hvort þeirra hlýtur
stöðuna. -ARH.
Vinningur
vikunnar:
Tíu gíta
reiðhjðl frá
Fálkanum hf.
Vinnin/’ur í þessari viku er 10
gíra DBS eða Raleigh reiðhjól frá
Fálkunum. Suöuriandsbraut 8 í
Reykjavlk. I víkunni verður birt, á
þessum stað I blaðinu, spurning
tengd smáauglýsingum Dagblaðs-
ins. Nafn heppins áskrifanda
verður síðan birt daginn eftir I smá-
auglýsingunum og gefst honum
tœkifœri á að svara spurningunni.
Fylgizt vel með, áskrifendur. Fyrir
ntestu helgi verður einn ykkar
glœsilegu reiðhjóli rikari.
W
hressir betur.