Dagblaðið - 13.08.1981, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 13.08.1981, Blaðsíða 28
Lltill bátur var rétt strandaöur lAkurey viö innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn lgœr um taug I hann. Dró hann slðan til hafnar. 1 litla bátnum voruþrlr menn sem höföu verið á sjöleytið. Vél bátsins hafði bilað og rak hann hœgt og rólega l átt að eynni. Aðal- skaki útiIFlóa. Aðalbjörgin er jrœg fyrir björgunarafrek sem hún vann I Viðeyhérá björgin, sem var að koma úr flatfiskveiðum l Faxaflóa, sá til bátsins tókst að koma árum áður. Sást bezt Igcer að lengilifir igömlum glæðum. DS/DB-myndS. Vinnulöggjöf in og föðnubræðslumar: „Lögunum verði fram- fylgt af festu í vetur” — segir Sigurður Þórarinsson hjá Vinnueftirliti ríkisins — Við munum taka þessi mál föstumtökumogsjátilþess aðmenn fari að lögum, sagði Sigurður Þórarinsson hjá Vinnueftirliti ríksins, er hann var spurður að þvi hvort Vinnueftirlitið myndi ekki fylgjast náið með því að lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, yrðu ekki brotin á yfir- standandi loðnuvertíð. Sem kunnugt er þá stöðvaði Vinnueftirlitið vinnu í Hvalstöðinni um siðustu helgi vegna meintra brota á þessum lögum og sagði Sigurður að það mál hefði eiginiega verið prófsteinninn á frekari aðgerðir í vetur. Samkvæmt ákvæðum hinna nýju laga, sem tóku gildi um síðustu ára- mót, skai haga vinnutíma þannig að á hverjum sólarhring skuli starfsmenn fá tíu klukkusunda samfellda hvíld. Þennan hvíldartima má þó stytta um tvo kiukkutíma ef mikið liggur við, s.s. ef sjávarafli liggur undir skemmdum. Sigurður sagði að heyrzt hefði að starfsmenn í loðnubræðslum hefðu unnið eins mikið og þeir framast gætu og væri því full ástæða til að fylgjast vel meþ málum á þessari loðnuvertíð. Myndi Vinnueftirlitið fara reglulega á vinnustaði og fylgjast náið með þvi að farið yrði að lögum. Þess má geta að lögin um aðbúnað, holiustuhætti og öryggi á vinnustöðum, gilda ekki um sjómenn og flugmenn. Líklega urðu alþingis- menn til þess fyrstir stétta að brjóta lögin er þeir unnu myrkranna á milli í lok síðasta þings. -ESE. Vlnnustöðvunin f Hvalatöðinni var prófstalnn 6 frefcari aðgarðir i vetur, sagir talsmaður Vinnuaftir Hts ríkislns. Fylgzt verður n&ið með þvf I vetur að farið verði að nýjum lögum um vinnutima og fleira. DB-mynd: Einar Ólason. 500 farþegar Flugleiöa eru enná eftir áætlun — allt New York-farþegar—f lugið þó að komast f eðlilegt horf Áætlunarfiug Flugleiða til Banda- ríkjanna er óðum að komast í eðlilegt horf. Að sögn blaðafulltrúa félagsins, Sveins Sæmundssonar, var staðan í morgun þannig að félagið var aðeins einu flugi á eftir, ferð til New York og til baka. Snertir það 450—500 farega. Flugvélarnar sem stöðvuðust í Keflavík í fyrrinótt komust báðar áfram í gær eftir að Gander-svæðið opnaðist á ný. Chicago-vélin fór á hádegi en New York-vélin í gær- kvöldi. Flugið héðan til Bandaríkjanna er þeim annmarka háð að flugvélarnar þurfa að vera yfir ákveðnum punkti, 50. gráðu norðlægrar breiddar og 50. gráðu vestlægrar lengdar, á á- kveðnum tíma. Þessi punktur er aðeins úr leið þeirri sem islenzkar flugvélar fara venjulega til Banda- ríkjanna. Veldur þetta lengingu flug- tímans um hálfa klukkustund. Fjöldi þeirra flugvéla sem koma má inn í bandaríska flugstjórnar- svæðið á hverri klukkustund er takmarkaður. Nokkuð var á reiki í morgun hver sá fjöldi væri og ekki ljóst hver áhrif slík skömmtun hefði á flug Flugleiða. Portúgalskir flugumferðarstjórar hafa hótað samúðarverkfalli nk. laugardag. Áætlunarleiðir Flug- leiða liggja ekki um þeirra svæði, sem er sunnar í Atlantshafinu í kringum Azoreyjar. Verði af samúðarverkfalli þeirra má búast við aukinni flugumferð um norðlægari slóðir. -KMU. frfálst, óháð dagblað FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST1981. Grænlenzku skipin stöðvuð hér? Danskir loftskeytamenn hafa farið fram á það við starfsbræður sína á íslandi að þeir reyni að stöðva eða tefja fyrir skipunum sem væntanleg eru til tslands með farþega er verið hafa strandaglópar á Grænlandi. Loft- skeytamenn þar eru í verkfalli og telja þeir það verkfallsbrot að flytja far- þegana sjóleiðis frá landinu. Félag islenzkra loftskeytamanna hefur farið fram á það við farmanna- samandið að það veiti þeim liðsinni, en að sögn Ingólfs Falssonar, forseta FFSÍ, geta þeir lítið gert annað en óskað eftir því að Verkamannasam- bandið reyni að stöðva skipin. Engin tilmæli höfðu borizt Verkamannasam- bandinu er DB ræddi við Karl Steinar Guðnason í morgun og reyndar taldi hann að sambandið gæti litið aðhafzt i málinu. -ESE. Búðanesið strandaði í morgun Búðanes, 134 tonna humarbátur frá Grindavík, strandaði í morgun rétt austan við Markarfljót. Á bátnum voru 5 eða 6 menn og væsti ekki um neinn þeirra. Björgunarsveitir lögðu strax frá Suðurlandi á staðinn og lóðsinn frá Vestmannaeyjum sigldi upp að landi til að aðstoða. Blíðskaparveður var upp úr átta i morgun þegar báturinn strandaði, logn og sléttur sjór. Ekki var ljóst er blaðið fór i prentun, hvað óhappinu olli. -DS. Feröaskrifstofan JÚTSÝN Áskrifendur DB athugið Einn ykkar er svo Ijónheppinn að fá að svara spurningunum í leiknum „DB-vinningur i viku hverri”. Nú auglýsum við eftir hon- um á smáauglýsingasíðum blaðsins ídag. Vinningur / þessari viku er (Jt- sýnarferð til Torremolinos með Ferðaskrifstofunni (Jtsýn, Austur- strœti 17 Reykjavlk. Fylgizt vel með, úskrifendur, fyrir næstu helgi verður einn ykkar glæsilegri utanlandsferð rlkari. c ískalt Sevenup. hressir betur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.