Dagblaðið - 13.08.1981, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 13.08.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981. DB á ne ytendamarkaði Verðlaunahafi jummanaðar: „Bókhaldið veitir —segir Halla Guðmundsdóttir mér aðhald” Baldur Sveinsson afgreiðslumaður i verzlun Gunnars Ásgeirssonar afhendir Höllu verðlaunin. Verzlunin veitti 10% afslátt af þeim. DB-myndir Bj.Bj. „Ég hef haldið bókhald að ég held í þrjú ár í haust. Mér finnst það bæði veita mér aðhald og ekki síður að ég veit í hvað fteningarnir hafa farið. Oft finnst manni að ekkert hafi verið keypt og engu eytt þó allir pening- arnir séu allt 1 einu búnir. Þá er gott að geta flett því upp, í hvað þeir fóru,” sagði verölaunahafi neytenda- siöunnar fyrir júnímánuð. Það var Halla Guðmundsdóttir, Melaheiði 1 i Kópavogi. Verðlaunin voru úttekt í verzlun Gunnars Ásgeirssonar að upphæð 1700 krónur. Fyrir þá upphæð valdi Halla sér vöfflujárn og útvarp með segulbandstæki. Verzlunin veitti henni af höfðingsskap miklum 10% afslátt af vörunum þannig að hún þurfti aðeins að bæta við 116 krónum í viðbót til þess að fá bæði þessi tæki. Halla er gift Árna Stefánssyni kennara og eiga þau tvo syni, Snorra 22 ára og Sverrir 2 ára. Hafa þau búið í Kópavogi síðan 1961, þar af síðan 1969 1 húsinu sem þau byggðu við Melaheiðina. „Það er gott að búa í Kópavogi þó göturnar mættu vera betri. Einhvern veginn hefur það viljað þannig til að við höfum aldrei búiö við malbikaöa götu allan þennan tíma,” sagði Halla. Tvö ár á Hveravöllum Halla er rannsóknarmaður á Veðurstofunni og hefur unnið þar fulla vinnu síðan árið 1957. Á meðan hefur Árni verið að kenna, kennir núna í Víghólaskólanum. Tvö ár voru þau hjónin við veðurathuganir á Hveravöllum. Voru það árin 1972 til 1974. „Við kunnum mjög vel við okkur þar. Starfið var reglubundin athugun á þriggja tíma fresti og fór drjúgur tími í það. Á milli gat maöur haft nóg að gera og nóg að lesa. Einstaka sinn- um kom yfir mig dálítill leiði ef ég passaði ekki að hafa nóg að gera. Mjög vel var hugsað um okkur þarna. Matur var keyptur að segja má einu sinni á ári. Þá voru allar geymslur fylltar. Ég gat ekki gert mér neina grcin fyrir því fyrirfram hvað við myndum borða á einu ári en sem betur fer höfðu aðrir vit fyrir okkur. Við fengum mjög góðan mat sem okkur hefði ekki dreymt um að kaupa svona að jafnaði. Mest saknaði maður nýrra ávaxta og eggja. En fisk fengum við mjög góðan, þennan sem pakkaöur er til útflutnings. Það var skrýtið að koma aftur i bæinn. Umferðin hafði breytzt mjög mikið og má sem dæmi nefna að búiö var að taka í notkun brýrnar við Elliðaár. Kunnum við ekki að aka allar slaufurnar þegar við komum í bæinn og vorum áður en við vissum af á leiöinni út úr bænum aftur. En hvað öll matarkaup varðaöi var eins og við hefðum hreinlega aldrei farið neitt. Þetta komst strax upp í vana aftur að kaupa jafnóðum allar nauðsynjar.” Góður kaupmaður á horninu Halla sagðist verzla að jafnaði daglega og kaupa jafnóðum það sem vantaði. „Ég hef mjög góðan kaup- mann hér á horninu. Verzlunin heitir Vogur og þar fæ ég svo gott sem allt sem mig vantar. Verzlunin er lítil en vöruúrvalið ótrúlega gott. Ég er þarna í reikningi sem ég geri upp mánaðarlega. Ég fer lítið í stórverzl- anirnar því afgangurinn er ekki alltaf mikill. Ég veit þvi ekki hvort munar einhverju á verðinu í þeim eða í litlu búðunum.” Kjöt kaupir Halla nær eingöngu i heilum skrokkum og osta í heilum og hálfum stykkjum. Segir hún að það sé eiginlega það eina sem hún hafi séð að hægt sé að spara við. ,,Ég tek slátur á haustin en bý alltaf til lítinn blóðmör og nýti ekki nærri allan mörinn. Þá borgar þaö sig ekki fjár- hagslega. Til þess að það borgi sig verður aö nýta allt sem fylgir, búa til bióðmör og nýta afganginn af mörn- um t.d. bræddan út á fisk.” Hún og Árni skipta með sér heim- ilisverkum eftir því sem það hentar vinnu hvors um sig. Á sumrin er Árni til dæmis heimavinnandi húsmóðir og vinnur þá öll verk sem vinna þarf. „Það fylgir þvi ýmislegt hagræði að skipta hússtörfunum á milli okkar. Til dæmis kom Árni mér upp á það að nota eingöngu pappírsbleyjur á yngri strákinn, nokkuð sem ég tímdi aðeins að gera á jólunum og í ferða- lögum,” segir Halla. ,,Já, pappírs- bleyjurnar eru mikið hollari, þær halda vætunni burt frá barninu,” segir Árni. í byrjun húsmóðurstarfs síns gekk honum verst með þvottana og var hálfhræddur við hið flókna tæki þvottavélina. En Höllu fannst auðvitað ekkert vit í þvi að heima- vinnandi húsmóðir gæti ekki þvegið þvotta og linnti ekki látunum fyrr en Árni var fullnuma á tækið. Nú er bara saumavélin eftir! - DS Halla opnar hér poka með útvarpinu góða. „Sonur okkar hefur lánað okkur útvarp i eldhúsið. Nú getur hann fengið það aftur,” sagði hún. \ Árni, Halla og Sverrir i eldhúsinu. Eldri sonurinn, Snorri, var að heiman við að passa hús og kött fyrir vin sinn. Verðlaunin voru: Úttekt hjá Gunnari Ásgeirssyni Verðlaunin i þetta sinn voru 1700 1870 krónum þegar verzlunin veitti Ðregið verður strax eftir mánaða- króna úttekt í verzlun Gunnars Ás- 10% afslátt ofan á. Verðlaunin í mótin svo það er um að gera að senda geirssonar. Sem urðu reyndar að næsta mánuöi verða aftur þau sömu. seðilinn strax. -DS i Upplýsingaseóill ! til samanburðar á heimiliskostnaði j Hvað kostar heimilishaldið? I Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvcrt sé meðaital heimiliskostnaðar I fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- I tæki. 1 Nafn áskrifanda l----------------- J Heimili_________ l i Sími l I I Fjöldi heimilisfólks_____ i j Kostnaður í júlímánuði 1981 i----------------------------- i Matur og hreinlætisvörur kr. i Annað i kr. Alls kr. \m hkív

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.