Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.09.1981, Qupperneq 6

Dagblaðið - 15.09.1981, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981. Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám Enska, þýzka, franska, spánska Norðurlandamálin. íslenzka fyrir útlendinga. Áherzla er lögð á lótt og skommtileg samtöl i kennslustundum. Samtölin fara fram á þvi máli sem nemandinn er að læra, svo að hann æfist í talmáli allt frá byrjun. Síðdegistimar — kvöldtímar. Mim'ir, Brautarholti 4 — sími 10004 (kl.1-5 e.h.) V- - - VU.ENTINE Tbílalökk ALLT TIL BÍLALÖKKUNAR Simi 74540 Smiðjuvegi 40D, Kóp. Safnvörður Dagblaðið óskar að ráða starfsmann í mynda- og greina- safn blaðsins. Menntun í bókasafnsfræði eða starfsreynsla í safnvinnu æskileg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist Dagblaðinu Síðumúla 12 fyrir 21. september merkt „Safnvinna”. immiAÐw AUGLYSIIMG Framkvæmdanefnd árs fatlaðra og stjórn Öryrkjabanda- lags íslands efna til opins fundar miðvikudaginn 16. september kl. 20.30 í Norræna húsinu. Norman Acton aðalframkvæmdastjóri Alþjóðlegu endurhæfingarsamtak- anna mun flytja erindi um störf og stefnu, samtakanna svo og stefnulýsingu samtakanna í málefnum fatlaðra fyrir 9. áratuginn. Allir velkomnir. ALFA-nefnd Stjórn ÖBÍ. LAUSAR STÖÐUR við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur Stöður hjúkrunarfræðinga við barnadeild, heilsugæziu i skólum, heimahjúkrun. Bæði er um hlutastarf og heilt starf að ræða. Einnig síðdegisvakt kl. 16—20 á heimahjúkrun. Heilsuverndar / félagshjúkrunarnám æskilegt. Staða sjúkraþjálfara við heimahjúkrun. Staða Ijósmóður við mæðradeiid, hálf staða. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400. Stöður tannlækna við Öskjuhlíðarskóla — skóla fyrir börn með sérþarfir — hlutastarf, einnig ýmsa aðra skóla í borginni. Upplýsingar gefur skólayfirtannlæknir í síma 22400. Skriflegar umsóknir þurfa að berast fyrir 20. september. Umsóknareyðublöð fást á Heilsuverndarstöð Reykja- víkur. Heilbrigðisráð Reykjavíkur. AUGLÝSING um starfslaun til listamanns Stjórn Kjarvalsstaða auglýsir eftir umsóknum um starfslaun til lista- manns í allt að 12 mánuði. Þeir einir listamenn koma til greina við úthlut- un starfslauna, sem búsettir eru í Reykjavík, og að öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir við úthlutun, sem ekki geta stundað listgrein sína sem fullt starf. Það skilyrði er sett, að listamaðurinn gegni ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum samkvæmt 4. þrepi 105. lfl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfslaun eru greidd án orlofsgreiðslu eða annarra launa- tengdra greiðslna. Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir starfi sínu með greinargerð til stjórnar Kjarvalsstaða, framlagningu, flutningi eða upp- lestri á verki í frumflutningi eða frumbirtingu, allt eftir nánara samkomu- lagi við stjórn Kjarvalsstaða hverju sinni og í tengslum við Listahátíð eða Reykjavíkurviku. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri greiðslu samkv. þessari grein, en listamaðurinn heldur höfundarrétti sínum óskertum. 1 umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því sem umsækjandi hyggst vinna að og veittar aðrar nauðsynlegar upplýsingar. Umsóknum skal komið til stjórnar Kjarvalsstaða fyrir 1. okt. 1981. 11. september 1981. Sljórn Kjarvalsstaða { Erlent Erlent — Atkvæðagreiðsla varðandi refsiaðgerðir á þingi Sameinuðu þjóðanna: SKIPTIR UTLU FYRIR S-AFRÍKU — Bandaríkin, Bretland og Frakkland sátu hjá Vesturveldin hafa neitað að eiga aðild að harðri fordæmingu á S- Afríku fyrir innrásina i Angóla, sem annars var samþykkt á þingi Sámein- uðu þjóðanna. Á aukafundi sem haldinn var á allsherjarþinginu í gær greiddu 117 þjóðir atkvæði sitt gegn engu með refsiaðgerðum en vesturveldin — aðal viðskiptalönd Pretoríu — sátu hjá. Atkvæðagreiðslan, sem fram fór í upphafi 36. allsherjarþings Samein- uðu þjóðanna, stóð um samþykkt á hörðum refsiaðgerðum vegna nýlegrar innrásar S-Afríkumanna í Angóla og neitun þeirra að veita Namibíu í SA-Afríku sjálfstæði. Löndin sem sátu hjá eru Bandarík- in, Bretland, og Frakkland, en þau beittu neitunarvaldi sínu gegn verzl- unarbanni á S-Afríku á fundi í Öryggisráðinu í apríl sl. Samkvæmt stofnskrá Sameinuðu þjóðanna er það aðeins Öryggisráðið sem getur komið á refsiaðgerðum, anna 117 í gær hafi nokkur áhrif á S- svo það er ólíklegt að atkvæði þjóð- Afríku. Santos, forseti Angola. HVER ER RAUNVERULEGUR MÁTTUR AUGLÝSINGANNA? ný könnun sýnir hvaða aðferðir duga bezt Ný auglýsingakönnun í Bandaríkjun- um sýnir að brezkir auglýsendur hafa náð töluverðum árangri með þær auglýsingar sem fólki þykja fyndnar og frumlegar. Á síðustu 8 árum hafa vinsældir þeirra aukizt úr 67% i 77%. Einnig kom í ljós að karlmenn kunna betur að meta þær en konur, unglingar gleypa við þeim á meðan aldraðir láta sér fátt um finnast, og þær eru forystu minnihlutaflokka mikill þyrnir í augum. En það breytir þvi ekki að yfir- leitt er auglýsingum betur tekið en áður. Hins vegar er þessu öfugt farið í Bandaríkjunum. 1980 fór fram könnun á því hvort fólki þætti auglýsing móðgun við gáfnafar þess og svöruðu 67% því játandi. 1975 voru 60% þeirrar skoðunar. Enn ný könnun sýnir að bandarískir unglingar eru mun tor- tryggnari út í auglýsingar en brezkir jafnaldrar. Aðeins 1/4 aðspurðra álitu að auglýsingar gæfu rétta mynd af vör- unni. Bandaríkin og Bretland eru bæði elzt í hettunni hvað auglýsingar snertir og jafnframt stærsti auglýsingamarkaður- inn. Þó er töluverður munur á að- ferðum. Á meðan Bretar leggja meira upp úr léttleika hafa Bandaríkjamenn haldið áfram að troða vörum upp á fólk í auglýsingum sínum. Erfitt er að skera úr um það hvor aðferðin er árangursríkari við sölu, en sú fyrr- nefnda ergir neytendur þó sjaldnar en hin siðarnefnda. Sjónvarpsauglýsingar eru þær aug- lýsingar sem oftast leiða til fjaðrafoks. Aðallega eru það konur sem taka þær nærri sér og telja þær móðgun vegna misnotkunar á kvenlíkamanum og auk þess gefi þær villandi mynd af fjöl- skyldulifi. Bandarískar konur eru þó duglegri við að mótmæla þessari mis- notkun en brezkar kynsystur þeirra. Algeng auglýsing: Konan notuð sem kyntákn. Á meðan flugfélög víða um heim stórtapa á þvl að fljúga græða þeir sem reka flugvélar er aldrei fara á loft. Hersafn nokkurt i Cambridge hefur nefnilegar drjúgar tekjur af þvi að leyfa viðskiptavinum sinum að ganga i gegnum flugvélar þær er safnið á til sýningar. Og eins og myndin sýnir er ekkert lát á aðsókn. Deilt um arf eftir Presley IW4 fl Tom Parker, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Elvis Presley, hefur nú verið stefnt fyrir rétt í heimaborg popp- stjörnunnar, Memphis, Tennessee. Er álitið að hann hafi prettað söngvarann um stórfé. Stefnandi er fjárhaldsmaður dóttur Presleys og einkaerfingja, Mariu Lisu. T.d. er því haldið fram að Parker hafi prettað skjólstæðing sinn um rúmar sex milljónir dala, jregar hann seldi plötuútgáfunni RCA útgáfurétt á lögum Presleys. Sjálfur fékk Elvis ekki einu sinni fimm milljónir dala fyrir sinn snúð. Einnig leigði Parker sér íbúð í lúxushótelinu Hilton í Las Vegas á kostnað söngvarans auk þess sem hann lét hann greiða fjölda ferða sem ekkert höfðu með starfið að gera.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.