Dagblaðið - 25.09.1981, Síða 6

Dagblaðið - 25.09.1981, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1981. Dregur enn til tíðinda í skólamálum á Bolungarvík: Gfs/i' kennarí höfðar mál á hendur menntamálaráðherra —Skólastjórinn sýnir valdníðslu og er studdur af menntamálaráðherra, segir Valdimar Gíslason skólanefndarmaður Gísli Hjartarson, fyrrverandi kehnari við grunnskólann á Bolungar- vík, hefur nú ákveðið að höfða' mál á hendur menntamálaráðherra í kjölfar brottvikningar úr kennarastöðu sinni í sumar. Gísli hefur verið kennari við grunnskólann undanfarin 4 ár og ætíð notið stuðnings skólanefndar þar til í sumar að hún klofnaði í umsögn sinni. Tveir voru með og tveir á móti en fimmti maðurinn var erlendis. „Skólastjórinn sýnir valdníðslu, studdur af menntamálaráðherra, er Gísli er hrakinn frá störfum,” sagði Valdimar Gíslason skólanefndarmaður við DB i gær. örn Jóhannsson, annar skólanefndarmaður, var annár •'þeirra er snerist gegn Gísla. Vildi hann ekkert láta hafa eftir sér um málið. Ólafur Kristjánsson var hinn sem ekki studdi Gísla. Gísli hefur átta ára kennslureynslu, þar af tvö ár sem skólastjóri á Ströndum. Hann er réttindalaus en hefur sótt námskeið í Kennaraháskól- anum. Hann er fatlaður, einhentur eftir slys á unga aldri, og þykir mönnum það skjóta skökku við að visa honum úr starfi á ári fatlaðra. Ástæða þess að hann heldur ekki áfram kennslu er ósætti hans og skóla- stjóra. Gísli hefur verið ráðinn tvö undanfarin haust með samþykki skóla- nefndar en gegn vilja skólastjóra. Tveir ungir kennarar með stúdentspróf hafa verið ráðnir að skólanum nú, báðir réttindalausir. Gísli hafði lagt stund á réttindanám en gaf það upp á bátinn eftir erjumar á síðasta skólaári. „Lái honum hver sem vill,” sagði Valdimar Gíslason viðDB. -SSv/JH/KMU. Gísli Hjartarson kennari á Bolungarvik vinnur nú f íshúsinu á staónum. DB-mynd: KF, Bolungarvfk. Seðlabankinn bætir gengistap af af urðalánum: „Bætur fyrir iðnaðinn nema 2,54 prósentum” —segir Úlfur Sigurmundsson forstöðumaður Útf lutnings- miðstöðvarinnar „Mér skilst að 8 milljónir króna standi iðnaðinum til boða nú þegar Seðlabankinn bætir útflytjendum afurða til Evrópulanda gengistap af afurðalánum. Þetta er bót fyrir iðnaðinn sem nemur 2,5—4 prósent- um af útflutningsverðmætinu,” sagði Úlafur Sigurmundsson, for- stöðumaður Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, í viðtali við DB í gær. Gengistapið, sem nú skal bætt, hefur orðið til þegar útflytjendur hafa tekið afurðalán miðuð við dollar en selt á Evrópumarkaði fyrir gjald- miðla viðkomandi landa. Gengi dollars hefur hækkað mikið á árinu samanborið við gengi Evrópugjald- miðla. Við það hafa þeir sem slík afurðalán hafa tekið orðið að greiða meira fyrir lánin sín en svarar til þess verðs sem þeir hafa fengið fyrir afúrðirnar. Gengisstapið, sem þeir hafa oröið að þola, hefur safnazt fyrir í Seðlabanka en skal nú bætt útflyijendunum. Þessar greiðslur Seðlabankans til útflytjenda eru taldar nema 30—32 milljónum króna en af þeim fær sjávarútvegurinn bróðurpartinn. Bætt verður fyrir timabilið frá áramótum til ágústloka. Úlfur sagðist reikna með að út- flutningur iðnaðarvara á tímabilinu næmi 400—420 milljónum. Þar af hefði útflutningur til Evrópulanda verið á bilinu 50—70 prósent. Iðnaðurinn fengi nú 8 milljónir, þegar gengistap væri bætt, sem væru því 2,5 til 4 prósent af umræddum útflutningi. Úlfur sagði einnig að auðvitað hefðu margir iðnrekendur flutt afurðir út til Evrópulanda án þess að hafa tekið lán í dollurum, og virtust þeir ekki vera inni í myndinni. -HH. Byggingarnefnd Seljaskóla óskar eftir tilboöum í gerð grunns, sökkla og botnplötu að íþróttahúsi við skólann. Útboðsgögn verða afhent á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur gegn 1000 kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 7. október næstkomandi kl. 11. lO.þing Verkamannasambands íslands verður haldið í Reykjavík dagana 16.—18. október nk. Þingið verður haldið að Hótel Loftleiðum og hefst föstudaginn 16. október kl. 16. Kosningu fulltrúa á þingið skal vera lokið fyrir mánudag 12. októbcr. Sambands-félögin eru vinsamlega beðin að skila kjör- bréfum til skrifstofu VMSÍ, Lindargötu 9, eigi síður en þrem dögum fyrir þing. Verkamannasaniband Istands. Þeir húsbyggjendur sem vilja fá hús sín tengd hitaveitu í haust og vetur þurfa að sækja um tengingu sem fyrst og eigi síðar en 20. október nk. Hús verða ekki tengd, nema þeim hafi verið lokað á fullnægjandi hátt, gólfplata steypt við inntaksstað og lóð jöfnuð í pípustæðinu, Ef frost er í jörðu þarf húseigandi að greiða aukakostnað sem af því leiðir að leggja heimæðar við slíkar aðstæður. Hitaveita Suðurnesja. „Þokast í samkomulagsátt” — segir Guðmundur Axelsson í Klausturhólum um kaup borgarinnar á Lífshlaupi Kjarvais „Það verða frekari fundahöld á morgun,” sagði Guðmundur Axelsson i Klausturhólum er DB innti hann eftir hvernig samningaviðræðurnar við Reykjavíkurborg varðandi kaupin á lífshlaupi Jóhannesar Kjarvals gengju. Samningsaðilarnir hafa hitzt mjög reglulega undanfarið og að sögn Guð- mundar „þokast heldur í samkomu- lagsátt”. Má því reikna með að af kaupunum verði áður en langt um líður. -SSv. Orðsending til húsbyggjenda frá Hitaveitu Suðurnesja Enginn fiskur ísíldinni: Atvinnuleysi í f rystihúsinu á Höf n Á meðan Hafnarbátar veiða síld togara til að landa en útgerðarmenn dögunum, til að láta fólkið hafa eitt- hver sem betur getur er ekkert veitt vilja víst fremur láta þá Ianda í hvað að gera, að flytja 12 tonn af af öðrum fiski. Þvi hefur vinna í Færeyjum. Leitað hefur verið til fisk- togarafiski landleiðina frá Eskifirði. frystihúsinu á Höfn legið niðri miðlunarnefndar, sem stofnuð var Þykir ekki líklegt að það borgi sig. undanfarið nema þá er síld hefur fyrir nokkrum árum, en enn án -DS/Júlía, verið söltuð. Reynt hefur verið að fá árangurs. Gripið var til þess ráðs á Höfn.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.