Dagblaðið - 25.09.1981, Page 13
12
d
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1981.
21
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Annar tapleikur-
innhjáðster
Úrslitin í 23. umferð sænsku 1. deildarinnar um
helgina urðu þessi:
Halmstad—Öster 1—0
Hammarby—Göteborg 1—1
Kalmar—Brage 0—0
Malmö—Elfsborg 1—0
Norrköping—Sundsvaii 5—1
Örgryte—Atvitaberg 1—1
Öster tapaði þarna sínum öðrum leik i deildinni en
það kemur ekki að sök þar sem liðið hefur fyrir
löngu tryggt sér sænska meistaratitilinn í knatt-
spyrnu. Þrjár umferðir eru eftir og er fallbaráttan
mjög tvisýn en tvö lið falla beint og næstu tvö þar
fyrir ofan þurfa að leika aukaleiki við efstu lið 2.
deildar vegna fækkunar liða i 1. deild.
Staðan er nú þessi:
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Öster
Göteborg
Norrköping
Brage
Malmö FF
Örgryte
AIK
Kalmar
Hammarby
Elfsborg
23 19 2 2 54—12 40
23 12 6 5 50—22 30
23 11 7 5 35—25 29
23 10 8 5 25—15 28
23 10 5 8 40—34 25
23 11 3 10 40—42 25
23 7 7 9 30—32 21
23 9 3 11 25—33 21
23 7 6 10 39—43 20
23 6 7 10 22—30 19
Halmstad
Atvitaberg
23 9 1 13 32—43 19
23 6 6 11 22—32 18
Sundsvail 23 5 5 13 21—51 15
Djurgarden 23 4 4 15 18—40 12
Markahæstu ieikmenn 1. deildar eru Torbjörn
Nilsson, Göteborg, með 15 mörk og Thomas Sjö-
berg, Malmö FF og Thomas Larsson, örgryte, með
13 mörk hvor.
í neðri deildunum er gengi liða íslendinganna upp
og ofan, þó heldur ofan. Vegna áðurnefndrar fækk-
unar liða 11. deild þurfa lið nr. 10 og 1112. deild að
ieika aukaleiki við efstu lið 3. deiidar auk þess sem
þrjú neðstu liðin falla I 3. deild. Landskrona, sem
Árni Stefánsson markvörður leikur með, er 19. sæti
með 22 stig og Jönköping, lið Karls, Sveins og
Ársæls Sveinssona úr Eyjum, er I 11. sæti með 21
stig. Bæði eru þvi I mikilli fallhættu. Grimsas, sem
Eirikur Þorsteinsson, áður Vikingi, leikur með,
feilur örugglega i 3. deild, hefur aðeins 15 stig þegar
þremur umferðum er ólokið og á þvi aðeins stærð-
fræðilega möguieika á að bjarga sér frá falli. Með
Grimsas fellur i 3. deild hið kunna lið GAIS frá
Göteborg sem löngum hefur leikið i 1. deild. Stefán
Halldórsson, Vikingurinn fyrrverandi, siglir á milli
skers og'báru með liði sinu, Kristianstad, um
miðbik 3. deildar. -VS.
Enn f ækkar í ungl-
ingaliði Englands
Enn verður enska ungiingalandsliðið fyrir áföll-
um. Þrir af sterkustu leikmönnum liðsins fá ekki að
fara með i heimsmeistarakeppnina i Ástraliu vegna
þess að féiög þeirra vilja ekki gefa þá lausa i hálfan
mánuð. Þetta eru markvörðurinn Phil Kite, Bristol
Rovers, Mike Bennett, Bolton, og Colin Pates,
Chelsea. í þeirra stað koma markvörðurinn Andy
Gosney, og Geoff Dey sem hvorugur hefur leikið
deildaleik og möguleikar Englendinga á að ná langt i
keppninni dvina stöðugt. Heima sitja margir piltar
sem hafa umtalsverða reynslu að baki eins og
Tommy Caton, Man. City og Tom English,
Coventry.
Ekki verða þó öil félög sett undir sama hatt i þessu
máli. Efsta lið 1. deildar, West Ham, gefur hinn
efnilega lcikmann, Paul Allen, lausan fyrir keppn-
ina þrátt fyrir að hann hafi verið fastamaður i liði
West Ham það sem af er keppnistfmabiiinu. John
Lyall, framkvæmdastjóri West Ham, segir i lagi að
Ailen fari þar sem Trevor Brooking hafi verið
meiddur að undanförnu en sé að verða góður og taki
stöðu Ailen f liðinu á meðan. Gott fordæmi þar.
-VS.
Víkingarnir hans
Knapp úr leik
Það verða Moss og Lilleström sem leika til úrslita f
norsku bikgrkepnninnl Jj ”oss slgraSi
Viking 2—0 með mörkum frá Geir Henæs og fyrir-
liðanum Ole Jonny Henriksen. Viking átti sizt
minna i leiknum en framherjar liðsins voru ekki á
skotskónum að þessu sinni.
Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Lilleström
Valerengen einnig 2—0.
í 1. deildinni norsku eru nú fjórar umferðir eftir
og er staðan þannig:
Rosenborg
Valerengen
Moss
Viking
Fredrikst.,
Start
Lilleström
Bryne
Hamarkam
Haugar
Lyn
Brann
2 34—18 25
2 34—22 23
4 22—18 22
4 24—24 22
6 37—24 18
7 31—28 18
4 21—19 18
5 22—23 18
8 19—16 17
6 16—29 13
11 19—32 11
10 14—37 11
3
Verðlaunahafar i kjöri beztu knattspyrnudómara 1. og 2. deildar ásamt fulltrúum Þýzk-islenzka verzlunarfélagsins.Á myndinni eru frá vipstri: Ómar Kristjánsson og
Jónas Þorvaldsson frá Þýzk-íslenzka verzlunarfélaginu, Guðmundur Haraldsson, Friðjón Eðvarðsson, Eysteinn Guðmundsson, Friðgeir Hailgrímsson, GfsU Guð-
mundsson og Jörundur Þorsteinsson, formaður knattspyrnudómarasambands tslands.
DB-mynd Sig. Þorri.
Beztu dómaramir að mati
fyrirliða íiðanna heiðraðir
—Guðmundur Haraldsson hlaut næstum fullt hús í 1. deildinni
Guðmundur Haraldsson, millirikja-
dómarinn kunni, var kjörinn bezti
dómarinn sem dæmdi i 1. deUd íslands-
mótsins í knattspyrnu. Fyrirliðar 1.
deildarfélaganna höfðu atkvæðisrétt i
kjörinu og hafði Guðmundur mikla
yfirburði, hlaut 96 stig af 100
mögulegum. Annar varð Eysteinn
Guðmundsson með 44 stig og þriðji
Magnús Pétursson sem hlaut 42 stig.
Það er Þýzk-íslenzka verzlunar-
félagið sem stendur að þessu kjöri. I
sumar hafa knattspyrnudómarar hér-
lendis borið Seiko-auglýsingu á
búningum sínum en Þýzk-íslenzka
verzlunarfélagið er einmitt umboðs-
aðili fyrir Seiko á íslandi. Er hér um
mjög lofsvert framtak að ræða því
knattspyrnudómarar fá venjulega
mikið af skömmum en litlar viður-
kenningar fyrir störf sín.
Fyrirliðar 2. deildarliðanna völdu
einnig bezta dómara sumarsins og þar
hlaut Friðjón Eðvarðsson flest at-
kvæði, 50 talsins, annar varð Gísli
Guðmundsson með 44 og þriðji
Friðgeir Hallgrímsson með 30 stig. í
þeirri kosningu hlutu alls sautján
dómarar atkvæði og í þeirri fyrrnefndu
fengu allir landsdómararnir, fimmtán
að tölu, atkvæði, og sýnir það vel þá
breidd, sem nú er orðin í stétt íslenzkra
knattspyrnudómara. Viðurkenningar
sem þessar ættu að verða dómurum
hvatning um að gera enn betur, þær
veita þeim visst aðhald og gætu hæg-
lega komið knattspymunni í heild
góða um ókomna framtíð.
-VS.
Valsmenn leika báða Evrópu-
leiki sína í körf u f London
,,Við höfum gengið frá samningum
við bandarískan leikmann, John
Ramsey að nafni, um að leika með
okkur í úrvalsdeiidinni f vetur,” sagði
Einar Matthfasson, liðsstjóri
körfuknattleiksliðs Vals, f samtali við
DB i gær. „Hann er væntanlegur
hingað til lands á laugardag og mun
þjálfa liðið auk þess að leika með þvi.
Þær upplýsingar sem við höfum um
hann benda til þess að um sterkan leik-
mann sé að ræða. Ramsey er 2,03 m á
hæð en þvi miður höfum við ekki séð
hann leika og vitum þvi ekki hvernig
hann kemur tii með að falla inn i Vals-
Haustleikir GR
Haustleikir Golfklúbbs Reykjavikur
verða um helgina. Á laugardag er
Baccardi-keppnin. Ræst út kl. 13.30. Á
sunnudag veröur Wildberry-
Kirchberry, höggleikur fyrir 50 ára og
eldri, kl. 13.30. Samtimis Tia Maria
fyrir konur og Smymoff-keppnin fyrir
aðra.
liðið.”
Ramsey kemur til Vals í tæka tíð
fyrir leikina í Evrópukeppninni gegn
Crystal Palace. Þeir fara báðir fram í
London dagana 7. og 9. október næst-
Reading í
efstasæti
Reading skauzt upp í efsta sætið í 3.
deild á miðvikudag, þegar liðið sigraði
Newport 2—1 á heimavelli. Reading
hefur 12 stig eftir fimm leiki. Úrslit i
lægrí deildunum á Englandi á miðviku-
dag urðuþessi.
3. deild
Chester—Walsall 0—0
Exeter—BristoIRov. 1—3,
Lincoln—Millwall 0—1
Oxford—Portsmouth 0—2
Reading—Newport 2—1
4. deiid
Crewe—Bury 1—2
Hereford—Torquay 0—3
Wigan—Port Vale 2—0
Þrjú neðstu liðin falla f 2. deild og þvf litil von
fyrir Haugar, Brann og Lyn en Haugar og Brann
komu upp úr 2. deild i fyrra ásamt Hamarkam. -VS.
Eysteinn Guðmundsson varð á þriðjudag fjórði milliríkjadómari f knattspyrnu sem
ísland hefur eignazt. Hér tekur hann við blómvendi frá Jörundi Þorsteinssyni, for-
manni knattspyrnudómarasambands tslands. í baksýn er Eliert Schram formaður
KSÍ sem afhenti Eysteini FIFA-merkið. DB-mynd. Sig. Þorri.
komandi. Samkvæmt reglum mega
Valsmenn nota tvo erlenda leikmenn í
Evrópukeppni en óvist er hvaða út-
lendingur verður fenginn til að styrkja
liðið. Það mun verða einhver erlendu
leikmannanna sem leika í úrvals-
deildinni en að sögn Einars er ekkert
hægt að segja um hver þeirra.
Valsmenn urðu síðastir úrvals-
deildarliða til að tryggja sér erlendan
leikmann fyrir veturinn. Aðrir út-
lendingar í úrvalsdeildinni eru þeir
Danny Shouse, Njarðvík, Val Brazy,
Fram, Bob Stanley, ÍR, Stewart
Johnson, KR og Dennis McGuire, ÍS.
-VS.
TAP LENU K0PPEN
í FYRSTU UMFERÐ
— í meistarakeppninni íbadminton íLundúnum
„Það er erfiðara að sigra á
badminton-mótum nú en áður. Snjallar
stúikur bætast stöðugt í hópinn og
mótin verða erfiöari. Og annað. Þessar
stúlkur eru yngri en ég,” sagði Lena
Köppen, danska badmintonkonan
kunna, sem verið hefur bezta
badmintonkona heims um langt árabil,
eftir að hún tapaði í 1. umferð
i meistarakeppninni f badninton—
Masters — i Lundúnum á miðvikudag.
Það var önnur bezta badmintonkona
Kina, Chen Ruizhen, sem sigraði Lenu
12—11 ob 11—A
Mikil keppni
á Bob Hope
golfmótinu
Eftir fyrstu umferðina á golfmóti
leikarans kunna, Bob Hope — Bob
Hope golf classic — f Lundúnum i gær
voru þeir Tony Jacklin, Englandi,
Bernhard Langer, Vestur-Þýzkalandi,
og Severiano Baliesteros, Spáni, beztir
með 67 högg hver. Næstir komu Sandy
Lyle, Nick Faido, Bill Longmuir, ailir
Bretlandi, Hugh Baiocci, Suður-
Afriku. Florentino Molina, Argentínu,
og Jose-Maria Canizares, Spáni, með
68. Margir léku á 69 höggum, meðai
annars Greg Norman, Ástraliu,
Manuel Ballesteros, Spáni, Bob
Charles, Nýja-Sjálandi, Peter Ooster-
husi, Bretlandi og Eamonn Darcy,
írlandi.
Lena Köppen, sem er 28 ára skóla-
tannlæknir, sigraði þá kínversku á
móti í Danmörku fyrir viku. í fyrri
lotunni í master-keppninni komst hún í
9—6, en urðu þá á mistök. Sú
kínverska vann 12—11. Lena komst I
4—3 í 2. lotunni en fékk síðan ekki
fleiri punkta. Meistarakeppnin var
fyrst háð 1979 og þá vann Lena. Einnig
1980. Hún varð heimsmeistari 1977,
Evrópumeistari 1978. Sigraði á All-
England mótinu, sem löngum var
niwí’ uauiiiirúónmot heims, 1979 og
1980. Komst í úrslit í vor þar en steinlá
fyrir Sun Ai Hwang, Suður-Kóreu, í
úrslitum 11—1 og 11—2. Þrátt fyrir
tapið á miðvikudag er ekki öll nótt úti
fyrir Köppen. Hún gæti enn komizt í
úrslitakeppnina á laugardag. Hwang
frá Suður-Kóreu keppir ekki í Lundún-
um vegna meiðsla.
Af öðrum úrslitum í meistara-
keppninni á miðvikudag má geta þess,
að bezti badmintonmaður Dana nú,
Morten Frost, sigraði Chany Sartika,
Indónesíu, í fystu umferðinni 15—10
og 15—3. Padukone Prakash,
Indlandi, sigurvegarinn 1979, vann
Kevin Jolly, Englandi, í 2. umferð 15—
11 og 15—8. Padukone keppti hér í
Reykjavík í vor.
í gær sigraði Lena Köppen Yun Ja
Kim, S-Kóreu, 11—7 og 11—0 en
Verawaty Wiharjo, heimsmeistarinn
frá Indónesíu, vann Chen Ruizhen,
Kína, 11—6, 2—11 og 12—10. í karla-
flokki vann Thomas Kihlström,
Svíþjóð, Kevin Jollu 5—4 og 15—6.
Morten Frost vann Nic Yates,
Englandi, 15—10 og 15—9.
Stórleikur Þorbergs
nægði ekki á Kunsevo
— Sovézka handknattleiksliðið sigraði úrvalslið HSÍ 30-25
—Þorbergur skoraði 13 mörkúr 15 skotum
„Við töpuðum þessum leik í fyrri
hálfleik — leikmenn mfnir náðu þá
ekki saman enda engin æfing haldin
fyrir þennan leik. Landsliðið byrjar
ekki æfingar fyrr en 24. október fyrir
Tékkóslóvakfuförina,” sagði Hilmar
Björnsson landsliðsþjáifari eftir að
sovézka handknattleiksiiðiö Kunsevo
hafði sigrað úrvalslið HSÍ 30—25 f
Laugardaishöllinni f gærkvöld. Sann-
gjarn sigur þeirra sovézku en langbezti
maður á vellinum var Þorbergur Aðal-
steinsson. Leikmenn Kunsevo höfðu
engin ráð tii að stöðva Vikinginn frá-
bæra. Þorbergur skoraði 13 mörk f
leiknum eða meira en helming marka
islenzka liðsins. Skoraði mörkin úr 15
skotum, einu sinni varíð og eitt skot
framhjá, en tvö skot Þorbergs lentu i
vörn eða markverði og isl. liðið náði
knettinum aftur. En þvi miður var
heidur fátt um fina drætti að öðru leyti
hjá úrvalsliðinu.
Varnarleikurinn var ákaflega slakur
nær allan leikinn og markvarzla lítil
sem engin í fyrri hálfleiknum. Mörkin
hlóðust þá upp. Kusenko skoraði 17
mörk í fyrri hálfleik en úrvalsliðið 11. í
síðari hálfleiknum lagaðist markvarzl-
an mjög. Kristján Sigmundsson varði
þá af prýði. í fyrri hálfleiknum bættist
einnig á að Alfreð Gíslason og Siggi
Sveins náðu sér ekki á strik í marka-
skoruninni. Þorbergur var nær einn
um að skora mörkin. Skoraði átta af 11
mörkum liðsins í fyrri hálfleik. í síðari
hálfleiknum náði Alfreð sér hins vegar
vel upp og skoraði fimm mörk.
Sovézka liðið er gott, það fer ekki
milli mála, og hagar sér talsvert eftir
þvi hver geta mótherjanna er. Það tók
á í þessum leik — sýndi allt annan og
betri leik en gegn Þrótti sl. mánudags-
kvöld. Fyrirliði sovézka landsliðsins,
Vladimir Belov, sýndi nú í fyrsta sinn i
heimsókn Kusevo hvers hann er
megnugur.
í leiknum var jafnt upp í 4—4 en
síðan fóru þeir sovézku að síga fram
úr. Komust í 11—6 um miðjan hálfleik-
inn og staðan í hálfleik var 17—11.
Framan af síðari hálfleiknum
varð munurinn enn meiri, 20-12 mest,
en þá fór úrvalsliðið að síga á. Minnk-
aði muninn í þrjú mörk um miðjan
hálfleikinn, 22—19. Ekki tókst að
fylgja þvi eftír og liðinu tókst meira að
segja ekki að skora, þegar þeir sovézku
Lena Köppen
Þorbergur Aðaistelnsson,
óstöðvandi.
hreint
voru tveimur færri. Það var ekki nógu
gott og í heild var leikur úrvalsliðsins
engan veginn nógu góður.
Mörk þess skoruðu Þorbergur 13/1,
Alfreð 5, Siggi Sveins 4/1, Guðmundur
Guðmundsson, Páll Ólafsson og Stein-
dór Gunnarsson eitt mark hver
Manulenko var markhæstur Kunsevo
7/3. Pavlinshuk 6, Vetrov 6, Belov 4,
Losovoy 4, Filippov 2 og Petrov 1,
Kunsevo fékk 3 vítköSt — úrvalið 2.
Fjórum sovézkum var vikið af velli.
Tveim íslendingum. Dómarar voru
Björn Kristjánsson og Karl Jóhanns-
son. -hsím.
Leika við FH
og Valsmenn
Tveir sfðustu leikirnir f heimsókn
Kunsevo verða um helgina. Sovézka
liðið leikur við FH i Hafnarfirði á
laugardag kl. 14.00 og við gestgjafa
sfna, Val, á sunnudagskvöld kl. 20.00 i
Laugardalshöllinni. Kunsevo er hér i
boði Vals vegna 70 ára afmælis
félagsins.
Marcel Raducanu, rúmenski flóttamaðurinn sem orsakaði hinn mikla flýti á sölu Atla
Eðvaldssonar frá Dortmund til Dússeldorf.
Raducanu, Rúmeninn sem kom
ístað Atla hjá Bor. Dortmund
Atli Eðvaldsson var mjög í fréttum
þýzkum fjölmiðlum og hér heima á
dögunum er hann var seldur frá Dort-
mund til Dússeidorf án þess að hafa
hugmynd um það fyrr en eftir á.
Ástæðan fyrir þessum flýti við söluna
var sú að á fjörur Dortmund hafði
óvænt rekið þekktan sóknarleikmann,
Rúmenann Marcel Raducanu, sem
leikið hefur 26 Iandsleiki fyrir heima-
land sitt og skorað mikið af mörkum.
Aðdragandinn að komu Rúmenans
til Dortmund var heldur betur óvenju-
legur. Fyrir mánuði var hann ein af
þjóðhetjum rúmenskra knattspyrnu-
unnenda og miklar vonir bundnar við
hann í baráttu Rúmena fyrirsætií loka-
keppni HM. Rúmenska landsliðið hélt
til Vestur-Þýzkalands í æfinga- og
keppnisferð tíl undirbúnings fyrir
síðustu leikina í riðlakeppninni. í Dort-
mund lék liðið æfíngaleik við Borussia
og þegar síðari hálfleikur hófst var
Marcel Raducanu ekki í hópi þeirra
sem hlupu inn á leikvöllinn. Vara-
maður hafði komið í hans stað. Fimm
mínútum síðar gekk Raducanu út um
hlið leikvangsins og steig upp í leigubif-
reið sem beið hans. Nokkrum stundum
síðar var hann kominn til Hannover,
300kmíburtu.
„Ég var búinn að
Vplf"
. vl«l
i'yrir mér
únaankomuleið í þrjá mánuði og þegar
ég frétti að landsliðið ætti að leika í
Dortmund ákvað ég að láta til skarar
skríða,” sagði Raducanu sjálfur eftir
flóttann. ,,Ég vissi að ég ætti góða
möguleika á að fá hæli sem pólitískur
flóttamaður tækist mér að flýja í Dort-
mund. í hálfleik sagði ég við Stefan
Kovacs þjálfara og æðsta mann knatt-
spyrnumála í Rúmeníu að ég væri
meiddur á fæti og gætí ekki leikið
áfram. Ég var með ákafan hjartslátt af
spenningi og ótta. Vinir mínir biðu
fyrir utan leikvanginn en ef Kovacs
segði mér að leika áfram gæti undan-
komuleiðin lokazt. En hann sagðist
setja varamann inn á fyrir mig. Liðið
gekk inn á völlinn en ég gekk út á móts
við frelsið.”
Daginn eftir hringdi Raducanu í
félaga sína í liðinu og komst að þvi að
þeir voru í miklu uppnámi vegna flótt-
ans. Þeir sögðu honum að Kovacs
hefði lofað að þeim væri heimilt að
fara vestur fyrir járntjaldið til að leika
knattspyrnu þegar lokakeppninni á
Spáni væri lokið. Raducanu hefur
engan áhuga á að snúa heim til að láta
reyna á það loforð.
Raducanu á eiginkonu og tveggja ára
son heima i Rúmeníu. Hann hringir til
þeirra annan hvern dag og hefur farið
fram á að þau fái að koma til Vestur-
Þýzkalands en ekkert svar hefur borizt
frá yfirvöldum. í Rúmeníu hefur
ekkert verið skýrt frá flóttanum í
blöðum eða sjónvarpi. Yfirvöld yfir-
heyrðu konu Raducanu strax eftir að
hann hvarf en hafa látið hana í friði
síðan. Það lítur út fyrir að þjóðhetjan
sé ekki lengiu til.
Fliótle"” ciur flóttann hóf Radu-
canu að æfa með 2. deilarliðinu
þekkta, Hannover 96. Hann brá sér á
æfingu hjá Borussia Dortmund og þar
hrifust menn svo mjög af honum að
samningaumleitanir hófust þegar.
Eftirleikinn þekkja allir. Atli Eðvalds-
son var seldur í miklum flýti til þess að
rýma til fyrir nýju stjörnunni. Radu-
canu leikur þó varla með Dortmund á
næstunni. Ekkert er enn vitað um
hvenær eða hvort hann verði gjald-
gengur í vestur-þýzkri knattspyrnu.
Forráðamenn Dortmund tóku
áhættuna og bíða nú spenntir jress að
Rúmeninn marksækni fari
markverði Bundesligunnar.
að
hrella
-VS.
7 badmintonmenn frá
Grænlandi leika hér
Sjö grænlenzkir badmintonleikmenn
munu dvelja á íslandi i boði TBR
dagana 25.—29. sept. nk. Badminton
er mjög vinsæl íþróttagrein á Græn-
landi og eiga þeir mörgum sterkum
leikmönnum á að skipa. Þetta eru
fyrstu gestirnir frá Grænlandi sem
hingað koma til badmintonkeppni og
er jafnframt verið að endurgjalda
heimsókn fslenzkra badmintoniðkenda
þangað i nóvember 1980.
Gestirnir munu keppa baeði í Reykja-
vik og á Akranesi.
Laugardaginn 26. sept. kl. 15.00
verður liðakeppni milli TBR og
Grænlendinganna. TBR-ingar munu
að sjálfsögðu nota alla sina sterkustu
leikmenn, og mun vist sizt af veita.
Sunnudaginn 27. sept. kl. 14.00
verður mót í öllum greinum i TBR-
húsi, með þátttöku gestanna, svo og
allra beztu leikmanna Islands.
Mánudaginn 28. sept. munu græn-
lenzku gestirnir haida upp á Skaga og
keppa þeir i íþróttahúsinu á Akrs’.nesi
kl. 17.30.
/íuSÍURBAKKI HF-simi 28411
Borgartúni 20 — Reykjavík
/H
mrvu&uinmm\
BORÐTENNIS-
MÓT
Austurbakki (Dunlopumboðiö) og íþróttafélag
fatlaðra í Reykjavík halda borðtennismót fyrir
fatlaða miðvikudaginn 7. okt. nk. í íþróttahúsi
Hlíðaskóla. Hefst mótið kl. 20.30. Notaðar
verða dunlopkúlur og verðlaunin verða íþrótta-
vörur frá Dunlop.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir
mánudaginn 28. sept. til Elsu Stefánsdóttur í
síma 66570.
Mót þetta er ágætis undirbúningur fyrir komandi
keppnisferðalög erlendis sem verða í október.
Umsjónaraðili er JC Reykjavík.