Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Blaðsíða 39
Ársril Ræktunarfjelags Norðurlands.
43
stunda garðyrkju. Fjelagið hefir því reynt að stuðla að
því með ýmsu móti.
Á fjárhagsáætlun hafa um allmörg ár staðið 100 kr. til
verðlauna fyrir vermireiti, því reynsla þykir fengin fyrir
því, að garðjurtir þær, sem þrífast hjer á annað borð,
þurfi aldrei að bregðast, sje þeim sáð í vermireiti. Nú
mætti ætla, að menn notuðu sjer þetta framboðna fje,
til þess að tryggja sjer árlega uppskeru. En sú hefir eigi
viljað verða raunin á. Sum árin hefir reyndar fjeð unnist
upp, oftast hafa aðeins einn eða tveir sótt um verðlaun
og stundum enginn.
Utsæðiskartöflur hefir fjelagið jafnan haft svo miklar,
sem því hefir verið framast auðið. Hefir það sent frá sjer
þessi árin um 300 tunnur af útsæði, og það mjög oft
þeim, sem aldrei höfðu áður sett kartöflu í jörð, eða þá
þeim sem ekkert útsæði hefðu haft ella. Fræ hefir fjelag-
ið útvegað á hverju ári og það jafnan reynst vel, nema
eitt ár var fjelaginu send af vangá önnur frætegund, en
um var beðið. Kom það sjer bagalega, en ekki átti fje-
lagið sök á því. I vetur sarrtþykti stjórnin að gefa öllum
sambandsbúnaðarfjelögunum kost á gulrófna- og fóður-
rófnafræi ókeypis. Hafa þau flest sætt því boði. Með ein-
um pósti fóru heilar klyfjar fræs hjer vestur í sýslurnar.
Komist alt það fræ í jörð og spretti nokkurnveginn, verð-
ur rófna uppskeran hjer norðanlands í ár eigi rúmar 800
tunnur, eins og landshagsskýrslurnar segja hún hafi ver-
ið síðasta áratug, heldur 8000 tunnur og langt, langt fram
yfir það. En þó hún aukist eigi nema um nokkur hundr-
uð tunnur, þá teldi fjelagið frægjöfina margborgaða.
«
5 Verkfæra- og vörupantanir. Verkfærasýningar.
F*egar Ræktunarfjelagið tók til starfa, var svo ástatt hjer
norðanlands, að tiltölulega sárfáir bændur áttu jarð-
yrkjuverkfæri til búsþarfa, og þau, sem til voru, voru
oft Ijeleg og óhentug. Plógar, herfi, hestarekur og
fleiri slík jarðyrkjutæki voru fágæt og kerrur aðeins á