Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1913, Side 76
80 Arsrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
af blásteini (koparvitríól), og er helt á hann um
tveimur pottum af sjóðandi vatni. Pegar blásteinn-
inn er runninn, er helt í balann köldu vatni, svo
miklu, að lögurinn verði alls 50 pottar.
2. í annan bala eru látin 2 pd. af brendu kalki. Á
það er helt ofurlitlu af vatni, svo kalkið verði að
dufti. Síðan er vatni bætt við, svo að í þessum
bala verði líka 50 pottar. Nota má slökt kalk í
staðinn fyrir brent, en það þarf meira af því, 3
pund í staðinn fyrir 2.
3. Hrært er vel í kalkvatninu og. er því síðan helt
saman við blásteinslöginn.
4. Að þessu loknu er Bordeaux-vökvinn altilbúinn.
Það verður stöðugt að hræra vel í honum, þang-
að til hann er notaður og nota skal hann sem
fyrst. Þykir ófært að nota hann eidri en 1 til 2
daga gamlan.«
Sjerstök áhöld þarf að nota til að dreifa vökvanum.
F*að er vanalega gert tvisvar: í fyrra skiftið undir eins
og vart verður við sýkina og svo aftur þrem vikum
síðar. Á eina dagsláttu þarf 500 — 700 potta af vökv-
anum. — Tilraunir hafa sýnt, að þessi aðferð getur
komið að miklum notum.
b. Til útsæðis þarf að velja jarðepli af góðum kynjum.
F*arf trygging að vera fyrir því, að þau sjeu ósjúk —
úr garði, þar sem sýkin hefir eigi gert vart við sig.
Ýmislegt fleira hefir verið reynt, svo sem að hreykja
mold að jarðeplunum, og að drepa gróin í útsæðis-
jarðeplunum, með því að láta hita (40 — 47° C.) verka
á þau lengri tíma (4 klst.). — Hvorugt þetta hefir
reynst nægilega trygt.
2. Hrúður. Komið getur fyrir, að á jarðeplum mynd-
ist hrúður, sem á sumum stöðum nær alllangt inn í þau.
F’etta á sjer einkum stað á kalkblöndnum jarðvegi.
Álitið er, að gerill einn valdi sýkinni. Til þess að út-
rýma sýkinni, verður að hætta að rækta jarðepli í garð-