Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1930, Side 11
59
því eigi að vænta þess, að þær breyttu eðli sínu, þó
þeim væri sáð í íslenska mold. Þýðing þessara tegunda
í sáðlandinu var því aðeins að gefa uppskeru í tiltölu-
lega stutt árabil, eða meðan hinar varanlegri tegundir
væru að þroskast og breiðast út. Aftur á móti höfðu
ýmsar þeirra tegunda, sem notaðar voru í fræblöndur,
Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson.
2. mynd. Gróðrarstöð Ræktunarfélags Norðurlands og
umhverfi hennar í ágústmánuði 1930.
Flest túnin, sem sjást á myndinni, eru sáðsléttur, sumar 20—
25 ára gamlar, þar sem sáðgresið ennþá er algerlega yfir-
gnæfandi.
reynst mjög varanlegar í tilraunum gróðrarstöðvanna
— haldið sér þar ágætlega, bæði einar út af fyrir sig
og í fræblöndun, áratugi og án þess nokkur afturför
væri merkjanleg. f gróðrarstöðinni á Akureyri eru sáð-
sléttur, sem nú eru orðnar 20 til 25 ára og þar sem
sáðgresið myndar ennþá aðalgróðurinn. í þessum efn-