Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Síða 32

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Síða 32
34 mér vitanlega er þetta ekki aðeins fyrsta, heldur enn. þann dag í dag, eina tilraunin, sem gerð hefur verið í þessu skyni. Æskilegt hefði verið, að tilraun þessi hefði verið end- urtekin við ólíka staðhætti á landi hér. Ennfremur mundi það hafa gefið henni meira gilda, ef efnagreiningar hefðu verið gerðar af uppskerunni við og við, en eins og alt hefur verið í pottinn búið fram að þessu, var þess eng- inn kostur. Þó nú þetta, og ef til vill fleiri misfellur, dragi nokkuð úr gildi þess árangurs, sem tilraunin hefur gefið, þá hygg eg þó, að hún gefi miklar upplýsingar um eiginleika og mismun þessara ræktunaraðferða, svo og áburðarnotkun í sambandi við þær, svo mikið megi að niðurstöðunúm læra. Vegna þess, hve tilraunin er í mörgum liðum og fyrir- ferðamikil, eru niðurstöðurnar dregnar nokkuð saman, gefur það gleggra yfirlit en gerir á hinn bóginn gagnrýni örðugri. 1. TILHÖGUN TILRAUNARINNAR. Tilraunin er gerð í tvennskonar landi: Túni, sem grætt hafði verið upp úr valllendismóa fyrir hérumbil 15 árum. Tún þetta spratt sæmilega, hafði ekki verið sléttað og ráðandi gróður var snarrótarpuntur, ásamt slæðingi af túnvingri og vallarsveifgrasi. Hinn helmingur tilraunar- innar var í óræktuðu mólendi, sæmilega grónu, en þó snöggu. Frumgróðurinn sá sami og í túninu. Jarðvegur- inn er að uppruna sá sami í báðum hlutunum, sem liggja hlið við hlið, leirblandinn moldarjarðvegur og grunt á ís- aldarleir. Þó er líklegt, að jarðvegurinn hafi, frá náttúr- unnar hendi, verið nokkru frjórri og eðlisbetri í túninu heldur en í óræktinni, en varla hefur það munað miklu. Til aðgreiningar verður sá hluti tilraunarinnar, sem var í túnjarðveginum, nefndur Fomrœkt en hinn Nýrækt.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.