Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Blaðsíða 68
75
ar Davíðssonar á Hofi, 5000 kr., sem hann afhenti Minn-
ingarsjóði prófastshjónanna á Hofi. Þökkuðu fundarmenn
gjöfina með því að rísa úr sætum. Reikningarnir voru síð-
an samþykktir í einu hljóði.
4. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 1940 og kosin 5
manna fjárhagsnefnd: Jón Gíslason, Ármann Dalmanns-
son, Kristján E. Kristjánsson, Halldór Guðlaugsson Ste-
fán Árnason.
5. Ýms mál og skipuð alsherjarnefnd og laganefnd.
í alsherjarnefnd voru þessir skipaðir: Oddur Ágústs-
son, Halldór Ólafsson, Björn Jóhannsson, Sverrir Guð-
mundsson og Nývarð Jónsson.
í laganefnd: Sigurður Jakobsson, Gestur Sæmundsson,
Sigurjón Valdimarsson, Pálmi Þórðarson og Stefán Sig-
urjónsson.
6. Erindi. — Eyvindur Jónsson flutti erindi, sem hann
nefndi „Jarðabætur“.
Jónas Pétursson flutti því næst erindi, sem hann nefndi
„Búnaðarathuganir“.
Fundi frestað til næsta dags.
Næsta dag, kl. 10 f. h., var fundur aftur settur.
7. Áli't fjárhagsnefndar. Borin var upp og samþykkt
svohljóðandi
FJÁRHAGSÁÆTLUN
fyrir BúnaðarsambcincL Eyjafjarðar árið 1940.
T e k j u r:
1. Styrkur frá Búnaðarfélagi íslands ...... kr. 4900.00
2. Tillag frá Naugriparæktarsamb. Eyjafj. . . — 2400.00
3. Fyrir mælingar jarðabóta ................. — 750.00
4. Árgjöld búnaðarfélaga .................... — 160.00
5. Styrkur úr sýslusjóði Eyjafjarðars........ — 200.00
6. Vextir af innstæðu ....................... — 250.00
Samtals kr. 8660.00