Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1939, Blaðsíða 74
81
Svo hljóðandi tillaga fylgdi áætluninni: „Styrkur sam-
kvæmt 8. og 9. lið gjalda, greiðist því aðeins, að fyrir
liggi skýrsla frá hlutaðeigandi félögum, um starfsemi
þeirra síðastliðið ár“. Samþ- samhljóða.
6. Allsherjarnefnd lagði fram eftirfarandi tillögur:
1. Fundurinn felur stjórn sambandsins að láta hæfan
mann halda námsskeið, hjá þeim búnaðarfélögum, sem
þess óska, í hirðingu og meðferð heyvinnuvéla og jarð-
yrkjuverkfæra. Skulu stjórnir hlutaðeigandi búnaðarfé-
laga sjá um allan undirbúning námsskeiðanna. Fé úr
sambandssjóði heimilast stjórninni, til óhjákvæmilegra
útgjalda, sem af þessu leiða.
Tillagan samþ. samhljóða.
2. Aðalfundur B. S. E., haldinn 28.—29. marz 1941, legg-
ur til, að B. í. gangist fyrir því, að húsmæðranámsskeið
verði haldin, út um sveitir landsins, með líku sniði og
bændanámsskeiðin.
Tillagan feld með 6 : 5 atkv.
3. Aðalfundur B. S. E. beinir þeim tilmælum til stjórn-
ar K. E. A-, að hún taki til athugunar hvað hægt sé að
gera til þess að meðlimir félagsins geti fengið næga lopa,
á hentugum tíma og þeir, sem þess óska, geti fengið lop-
ann unninn úr þeirri ull, er þeir leggja inn og hafa sjálfir
undirbúið. Æskilegt væri, að stjórnin legði niðurstöðu
sína fyrir næsta aðalfund K. E. A.
Tillagan samþykkt samhljóða
7. Gunnlaugur Gíslason, Sökku, endurkosinn í stjórn
til næstu 3ja ára. Endurskoðendur endurkosnir þeir Davíð
Jónsson, Kroppi, og Stefán Stefánsson, Svalbarði. Sá síð-
artaldi með hlutkesti milli hans og Kristjáns E. Kristjáns-
sonar.
8. Fundargerð lesin upp og samþykt
6