Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Blaðsíða 21
21
aðarleiðbeininga, heldur en að flytja Búnaðardeildina að
Hvanneyri og efla þar miðstöð þessara mála.“
Hér þarf allt að fara saman:
Að framhaldsnám í búfræði verði áfram á Hvanneyri.
Að Búnaðardeildin flytjist þangað.
Að tvinnað verði saman miklu meira en nú er rannsókna-
leiðbeininga- og fræðslustarfsemi á sviði landbúnað-
arins.
Á Hvanneyri á að vera miðstöð allra tilrauna í naut-
griparækt. Þar situr nautgriparæktarráðunauturinn og hef-
ur yfirstjórn nautgriparræktartilraunanna með höndum.
Þar situr sauðfjárræktarráðunauturinn og starfar á sama
hátt með fjárbúið á Hesti, sem hluta af Búnaðarstofnun-
inni á Hvanneyri. Þar situr Verkfæraráðunauturinn og
vinnur að sínum verkfæratilraunum og vinnuathugunuin
o. s. frv. Jafnframt kenna allir þessir sérfræðingar það, sem
þeim hentar, þeim, sem framhaldsnámið stunda, enda verð-
ur verulegur hluti þess náms einskonar aðstoðarmannastarf
hjá sérfræðingunum, við rannsóknir þeirra og tilraunir.
Hér er ekki smátt í efni, munu margir segja, og hugsa
um leið: Höfum við efni í þessu? En hver segir að það eigi
alltaf að vera smátt í efni, þegar skipa skal búnaðarmálum
til frambúðar. Og kostnaðurinn? Hann verður mikill, en
miklu þarf til að kosta hvort eð er, þó að þessi hugmynd
verði ekki framkvæmd, en í þess stað hugsað smátt, því að
lífið og náttúran gengur sinn gang, og umbætur verða ekki
umflúnar. Það þarf að byggja mikið á Hvanneyri, jafnvel
þó svo illa verði að unnið, að Framhaldsdeildin verði flutt
þaðan. Byggja verður á næstunni: Nýtt skólahús (kennslu-
hús), nýja heimavist, verkstæði, hesthús með sviði fyrir
búfjárdóma og leikfimishús, svo hið helsta sé talið. Jafn-
framt þessu þarf, — þó að hugmyndin um búnaðarstofnun
á Hvanneyri verði ekki framkvæmd, en Framhaldsdeildin
drifin á mölina, — að koma upp og byggja vegna Búnaðar-