Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Blaðsíða 59

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Blaðsíða 59
59 mynd .Sú tilhögun virðist þó sums staðar hafa sýnt næsta litla yfirburði. Sannleikurinn er sá, að tækni má mjög laga eftir stærð búrekstrar, einkum ef nokkur félagsleg samtök eru viðhöfð, og við vitum næsta lítið um það, hvaða tækni eða tilhögun á búrekstri gefur bezta raun. Þótt tæknin sé góð og í mörgum tilfellum ómissandi, þá á hún eins og allt annað vafalaust sín hagfræðilegu takmörk. Á smábýlum er hægt að fá megin ræktunarstörfin, framræslu og jarðvinnslu, unnin með stórvirkum vélum ræktunarsambanda og búnaðarfélaga. Léttari störfin við ræktunina er á smábýum bæði auðvelt og ódýrt að framkvæma með hestatækjum, og getur sú tilhögun vafalaust keppt við stórtæknina á stórbýlunum. Þess meiri tækni, sem við notum. þ. e. erlendar vélar og orku, þess minni hluti af arðinum fellur í okkar hlut, þess meira verð- um við að framleiða til þess að hlutur framleiðandans verði viðunandi. Og þegar markaðurinn fyrir framleiðsluna er takmarkaður, eins og er fyrir landbúnaðarframleiðslu okkar íslendinga, því að það er auðvitað hrein meinloka, að við getum til langframa haft hag af því að selja framleiðslu okkar úr landi langt undir framleiðsluverði, þá þýðir aukin tækni einfaldlega, að færri geta lifað af því að framleiða landbúnaðarvörur. Því er haldið fram að auka þurfi tæknina til þess að vör- urnar geti orðið ódýrari en þessi kenning stangast alger- lega við staðreyndirnar, eins og mörg slagorð gera. Því verð- ur varla neitað, að hér hefur tæknin verið aukin mjög á skömmum tíma á mörgum sviðum, en hvenær hefur hún lækkað verðlagið? Aldrei ,og gerir það sennilega aldrei. Þetta er nú komið út frá efni þessarar greinar, hinum „klassisku“ 10 ha, og skal nú sveigt að þeim aftur. Nýskeð var það rakið úr skýrslugerð, er fyrrv. búnaðar- málastjóri, Páil Zóphoníasson, gaf Búnaðarþingi, að enn væri um fimmti hluti býlanna í landinu með túnstærð undir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.