Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Side 29
29
á Korpúlfsstöðum, mest fyrir það, að hún er ennþá stærri í
sniðunum en hugmyndin um að efla slíka miðstöð á Hvann-
eyri. Af Korpúlfsstaðastofnuninni, heilli í sniðum, myndi
einnig leiða, að minka Hvanneyrarskólann á margan hátt,
sennilega að leggja niður tilraunabúið á Sámsstöðum, og
draga saman fleira búfræðilegt, sem nú er utan Reykja-
víkur góðu heilli.
XIV.
En fyrr má rota en dauðrota. Eg hef fyrir löngu komið
auga á og bent á stað, í næsta nágrenni Reykjavíkur, til
varanlegs samastaðar fyrir Búnaðardeildina, ef hún fæst ekki
flutt að Hvanneyri. Sá staður er um allt heppilegri en spilda
úr Korpúlfsstaðalandi, sem til tals hefur komið. Sá staður
er Arnarnesland í Garðahreppi, austan (suðaustan) þjóð-
vegarins frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Þar er nægilega
fjölbreytt land að gerð, melar, holt, móar og mýri, sem ligg-
ur vel við mót suðri og suðvestri. Þar gæti Búnaðardeildin
fcngið ríflegt land og þyrfti alls ekki að vera í spennitreyju
20 ha hugsunarinnar, er fram kemur í tillögunum 1953.1)
Allt að 50 ha vil ég ætla stofnuninni. Þar við bætist, að til-
raunabúslandið lægi upp að Vífilsstaðalandi, þangað væri
gott til fanga, ef meira þarf með, t. d. vegna beitartilrauna.
Ríkisbúið á Bessastöðum er einnig nærri.
Þó að allt Arnarnesland vestan þjóðvegar verði tekið í
lóðir og nokkur spilda við þjóðveginn að austan, geta aðal-
byggingar Búnaðardeildar og Framhaldsdeildar staðið svo að
segja við malbikaðan og lýstan þjóðveginn, sem nú er, eða
í hóflegri fjarlægð frá honum, þar sem strætisvagnar fara
um á 15—20 mínútna fresti. Að baki aðalbygginganna,
sem í eru skrifstofur, rannsóknastofur, kennslustofur o. fl.,
1) Síðar hafa tillögurnar koðnað niður í 15 ha (Morgunblaðið í
jan. 1957).