Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Qupperneq 42
42
Reyndar tegundir grasa. Búnaðardeildin hefur gert all-
mikið að því að reyna grastegundir og stofna. Hefur þetta
mest verið gert á þann hátt að sá tegundum og stofnum í
1.5—2.5 m langar samraðir. Þetta hefur verið skilgreint
sem „byrjunarathuganir“ með það fyrir augum, að „niður-
stöður þessara tilrauna“ — verði — „síðan notaðar til þess að
gera frekari tilraunir með á tilraunastöðvum landsfjórðung-
anna“.
Árið 1952 kom út fjölrituð skýrsla um slíkar athuganir
á 191 grasfræstofni. Hér er einfaldlega um undirbúnings-
tilraunir að ræða og verið að undirbúa verkefni í hendur
tilraunabúanna.
Tilraunir með kartöflur. Um þær tilraunir er sama að
segja eins og tilraunirnar með tegundir og stofna grasa.
Þeim hefur verið hagað svipað. Það er athugaður og reynd-
ur á mjög einfaldan hátt fjöldi tegunda með það fyrir
augum að vinza úr það, sem ekki virðist von um að komi
að neinu gagni. Eftir verða nokkrar tegundir, sem ástæða
þykir að reyna í fullkomnari tilraunum á tilraunabúunum.
Ekkert er nýtt við þetta, né fullkomnara, síður en svo, en
það sem áður var gert á tilraunabúunum á Akureyri og
Sámsstöðum, á Akureyri allt frá 1903. Hið eina sem er
nýlunda er verkaskiptingin milli Búnaðardeildar og til-
raunabúanna. Á það við bæði um tilraunir með grös og kar-
töflur, að Búnaðardeildin vinnur hina einfaldari, vanda-
minni hluti tilraunastarfsins, en tilraunabúin taka svo við.
fjöldamörg ár ræktað fræ af gulrófnastofni þeim, er kenndur er við
Kálfafell og mun einn af beztu stofnum íslenzku gulrófunnar. Eigi fæ
ég séð, að söfnun og samanburður þessara stofna hafi eigi verið Bún-
aðardeild fullkomlega samboðið. Jafnvel einnig ræktun fræs af beztu
stofnunum, þótt það mundi víðast hvar annars staðar viðfangsefni
bænda og garðyrkjumanna. — Þetta sýnir aðeins, að hér þarf oft að
vinna á nokkuð afbrigðilegan hátt að málefnum landbúnaðarins, en
hér hefði hentað vel, að garðyrkjuskólinn hefði tekið þetta verkefni
að sér. — Ó. J.