Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Blaðsíða 52
52
er, eigi þær að vera hraustar, saltið er þeim eins nauðsyn-
legt og hreint, svalt loft. Ef völ er á háum hól á heppilegum
stað, er hægt að koma þar upp ágætis byggingu með litlum
tilkostnaði, með því að hafa 2/3 byggingarinnar inni í
hólnum. — Slíkar byggingar hafa reynst vel fyrir verk-
færageymslu, og margt annað, sem geyma þarf, einnig til
að hýsa í þeim geldgripi. Skúr til viðgerða á verkfærum og
geymslu smáverkfæra er hverjum bónda nauðsynlegur.
Vélakaup eru nú á tímum einn stærsti útgjaldaliður bónd-
ans. „Það er vandi að velja sér, víf í standi þrifa,“ segir í
vísunni, en það er ekki síður vandi að velja verkfæri til að
vinna með á búi bóndans. Þeir, sem ekki hafa efni á að eiga
nema eina dráttarvél, verða að nota hesta til léttari vinnu.
Þriggja til fjögurra botna (strokka?) traktorar hafa reynzt
bezt, en þar sem landslagið er of hættulegt dráttarvélum á
gúmmíhjólum, þá hafa menn notað sömu stærð af beltisvél-
um á breiðum beltum. Heylyftan er vafalaust bezta verk-
færið í eigu bóndans, og sparar honum mest erfiði. Hún er
fljótvirk,og það er ótrúlega margt,sem má vinna með henni.
Henni fylgir fjöldi verkfæra, en þessi eru nauðsynlegust:
Forkur með tindum úr við eða járni fyrir þurrt hey, annar
forkur miklu minni með stáltindum, hann er notaður við
vothey, hreinsun fjósa og annarra gripahúsa, og til að lyfta
og bera til ýmsa hluti, breið snjóskófla, sem jafnframt má
nota til moldartilfærslu, hver maður, sem hagur er á járn,
getur smíðað hana. Þá er einnig múgavél nauðsynleg, enda
sé hún einnig snúningsvél. Ulmögulegt er að vera án vöru-
bíls (trukks) með lyftu undir pallinum, ekki sízt þar, sem
mikil er flutningsþörf. En á eitt vil ég alvarlega minna menn
í sambandi við þá lyftu, og það er þegar reisa þarf pallinn
til viðgerðar eða annars, að gleyma þá ekki að setja sterka
stoð undir hann áður en verk er hafið. Hirðuleysi um slíkt
hefur mörgum manni að bana orðið.