Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Qupperneq 54
54
arefni og 200 pund á ekru, ef áburðinum er dreift ofan á
moldina eftir sáningu. Sáningarvél og söxunarvél gætu verið
sameign nokkurra bænda ásamt ýmsum stærri landbúnaðar-
vélum, sem eru einu búi ofviða.1)
Votheysturna veit ég lítið um. En ég hef séð þá hverfa hér,
þar sem þeir hafa verið byggðir, í stað þess að fjölga. En ef
mönnum er ókleift að koma sér upp votheysturni, en þurfa
engu að síður að gera vothey, þá ættu þeir að gera tilraun
með að setja heyið í kringlóttan haug á jörðina, svo að hægt
sé að þjappa honum frá öllum hliðum. Beðjan verður að
vera sett þannig, að vatn geti ekki runnið undir hana, og
svo nærri peningshúsum, þar sem gefa á heyið, og unnt er.
Vel þarf að troða þessa hauga, bæði meðan verið er að hlaða
þá, og eins nokkra daga á eftir, og er það gert með traktor.
Ef ekki er nægur vökvi í heyi því, sem í beðjurnar er sett,
þarf að dæla yfir þær vatni meðan á verki stendur,svo aðþær
þjappist nægilega vel. Skelin, sem myndast ofan á þeim eftir
að frá þeim er gengið, má ekki raskast, fyrr en farið er að
gefa heyið. Geldneyti, sem úti ganga, éta þessa skel, og hef
ég aldrei vitað til þess, að gripum yrði rneint af því, þó að
þeir ætu eins mikið af henni og þeir framast vildu. Hér er
eingöngu notað saxað hey í vothey, en spurningin er, hvort
ekki mætti alveg eins nota í það ósaxað hey, sem liggur und-
ir skemmdum vegna votviðra, og gera þannig úr því gott
fóður. Þar sem ekki er völ á maísgrasi, alfa alfa, eða smára í
vothey, eru hafrar beztir, en næst þeim ganga þessar gras-
tegundir: faxgras (Bromus), vallarfoxgras, hveiti- og rúggras.
Allar þessar grastegundir eru nægilega hávaxnar til söxunar.
Þeir, sem bezt hafa vit á votheysgerð, halda því fram, að í
1) Hér eru áburðardreifarar oft notaðir með góðum árangri sem
sáðvélar. Hér er ekkert, er bendir til þess að hagkvæmara sé að sá
áburði með fræinu. Þetta gæti þó ef til vill verið hagkvæmt þegar fos-
fóráburður er borinn á, ef sáð er með vél, er fellir bæði fræ og áburð
niður í moldina. — Ó. J.