Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Qupperneq 1
63o
ÁRSRIT
Kcektunarfélags Norðurlands
RITSTJÓRI: ÓLAFUR JÓNSSON
55. ÁRGANGUR
1. HEFTI
1958
PÁLL ZÓPHÓNIASSON:
Hvað hefur miðað?
Erindi þetta var flutt á bændasamkomu Eyfirðinga 27. júlí sl. og er
sniðið eftir eyfirzkum aðstæðum, en getur þó átt erindi til þeirra, sem
byggja önnur héruð. — O. ].
Góðskáldið ykkar úr Öxnadalnum, sem við aðrir sam-
landar ykkar teljum okkur eiga með ykkur, sagði: „Það
er svo hágt að standa í stað“. Hann spurði sína samtíðar-
menn: „Höfum við gengið til góðs götuna frameftir veg“.
Og hann svaraði, og gerði samanburð á söguöldinni og
sinni samtíð og eggjaði með því sína samtíðarmenn til
framsækni.
Nú ætla ég þessa stund, sem ég tala við ykkur hér, að
reyna að rifja upp fyrir ykkur hvað þið, sveitafólkið hérna
í Eyjafirði, hafið starfað síðustu 40—50 árin, og hvort þið
hafið gengið til góðs götuna fram eftir veg. Vel veit ég, að
þið sjálf, sem staðið hafið í störfunum, vitið þetta betur en
ég, en þó hygg ég að vera megi, að þið fáið hetra yfirlit yfir
heildarstarfið, eftir að ég hef um það rætt, og þið eftir á um
það hugsað. F.g vona líka, að þeim, sem við störfunum taka
lánosbókasafn
2248K4
fsuios