Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 41
41
Það hefur ekki verið útvegað hingað fræ af útlendri furu
til að gera tilraunir með við Vesturálinn og Lófót, nema
lítilsháttar af lindifuru.
Þótt bergið sé misjafnt, sem myndar eyjarnar, virðist
jarðvegurinn, þar sem lauftré vaxa, vera hið ákjósanlegasta
gróðursetningarland.
Það má veita því eftirtekt, þegar farið er eftir ströndum
eyjanna þarna vestur frá, að allir runnar og tré, sem fást
til að vaxa, eru í miklu dálæti hjá íbúunum, og er hlúð að
trjágróðrinum eftir mætti. Einnig er lagt mikið upp úr
þýðingu trjágróðursins til að veita skjól, og margar tegundir
af trjám eru ræktaðar í görðum nálægt býlunum, og einnig
meðfram vegum og ökrum.
AÐ NÁ TRAKTORNUM UPP ÚR!
Það kemur ekki sjaldan
fyrir við jarðvinnslu, að
traktorinn festir sig og ann-
að ökuhjólið eða bæði grafa
sig niður. Einfalt ráð, til þess
að ná traktornum upp úr án
átaka og mannsafnaðar, er
sýnt á meðfylgjandi mynd.
En einnig við þetta einfalda
bragð þarf að gæta forsjár,
láta traktorinn taka gætilega
á og nema staðar nógu fljótt,
þegar hjólið er komið yfir
kubbinn, því annars getur
kubburinn fylgt með hjólinu,
lent upp í hjólhlífinni og
valdið skemmdum. — A.G.E.