Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 25
25
hana og smá verkstæði þar þá jainiramt. Á þennan stað á
að færa allar vélar og verkfæri, jafnan er teijandi hlé verð-
ur á notkun þeirra og þrífa þau þar og lagfæra biianir, sem
iagfærðar verða á heimilunum.
Viðhald.
Nýir hiutir og nýjar framkvæmdir þurfa lítið viðhaid og
eru því venjuiega þægiieg og örugg í notkun og skila góð-
um afköstum, en verkfæri og framkvæmdir, sem eru undir
stöðugu eftirliti og fá viðgerð jafnskjótt og þörf krefur,
halda áfram að vera ný, þægileg í notkun og afkastamikii.
Oft stórskemmast byggingar af því þær fá ekki nauðsynlegt
viðhaid nýjar, girðingar ganga úr sér og veita léiega vörzfu,
af því ekki er gert við smágaila á þeim nýjum. Framræsia,
nýlega gerð, nýtist ekki tii hfýtar, af því ekki er hirt um að
hreinsa höft og niðurföli úr skurðunum og véiar og verk-
færi endast illa og stórtefja oft störfin, af því að smábilanir,
sem ekki var hirt um að gera við þegar í stað, hafa fætt af
sér stórbilanir, eða vanrækt var að athuga og yfirfara tækin
rækilega meðan þau voru ekki í notkun. Þannig mætti lengi
lialda áfram. Allir hlutir þurfa stöðugt eftirlit og viðhald,
líka nýir lilutir, og á athyglinni og viðhaldinu veltur end-
ingin, afköstin og árangurinn.
Hér hefur verið stiklað á stóru komið allvíða við en þó
fleiru sleppt og engu gerð teljandi skil. Hér hefur þó verið
nóg sagt til þess, að undirstrika hin spöku orð Sighvats
Sturlusonar, er hann mælti við Sturlu son sinn, er honum
fannst fara fyrirhyggjulítið í uppgangi sínum: „Margs þarf
búið við“. Þannig var þetta í tíð Sighvats og þannig er það
enn, og þótt tímarnir séu um margt ólíkir og þarfir búsins
næsta ólíkar, þá er þó eitt sameiginlegt. Þá og nú voru
umbrota og byltingatímar, en þá er jafnan hætt við að
margt fari í súginn og mjög skorti á rétta notkun og hagnýt-
ingu ef fyrirhyggjuna brestur. Ólafur Jónsson.