Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 14

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 14
14 með öðrum ráðstöfunum til uppskeruauka, og þar er áburð- urinn að sjálfsögðu mikilvirkastur. Fyrst er þá að athuga hvernig við getum bezt hagnýtt búfjáráburðinn, en því verður ekki neitað, að hagnýting hans er allmikið vanda- mál. Mín skoðun er sú, að fyrst og fremst eigi að aðskilja áburðinn, og hagnýting hlandsins sé ekkert vandamál, en það er mykjan, sem erfiðleikum veldur, vegna mikils efnis- magns í hlutfalli við áburðargildið og þó einkum ef þar bætist við léleg nýting. Bezt nýting fæst af mykjunni ef tekst að koma henni niður í jörðina, en til þess dugar ekkert annað en plæging. Hér að framan var vikið nokkuð að því að oft væri þörf á endurvinnslu ræktaðs lands af ýmsum ástæðum, og ég held að hún gæti verið æskileg í mörgum fleiri tilfellum meðal annars vegna þess, að liér sækir gras- rótin mjög á það að verða alltof þétt, en af því leiðir, að vaxtarrými hverrar einstakrar jurtar verður alltof lítið, svo hún nær ekki þeim vexti og afköstum, sem henni eru eðli- leg, en mergðin bætir þetta ekki upp. Þegar ræktað land, þar sem tilflutnings er ekki þörf, er brotið til ræktunar, er auðvelt að koma búfjáráburðinum fyrir á hagkvæman hátt. Honum er þá ekið á landið, sem á að brjóta, og dreift jafnótt og plægt er. Plógstrengirnir hvolfast þá við með áburðinum, svo hann verður undir þeim og kemur ekki upp aftur þótt herfað sé. Að sjálfsögðu á að bera rækilega á af mykjunni, þegar slíkt tækifæri gefst og einkum ef um ófrjótt land, eins og leirholtajarðveg eða samanfallinn og loftlausan jarðveg er að ræða, því búfjáráburðurinn stuðlar mjög að góðri jarðvegsgerð. Að sjálfsögðu er hagkvæmt að nota fastan búfjáráburð í garða, hafraflög eða fóðurkáls- akra, en alltaf ætti reglan að vera sú að plægja áburðinn niður, en þeir, sem óttast arfann og skortir þá kunnáttu, liugkvæmni og hirðu, sem þarf til þess að halda honum i skefjum, ættu að keppa eftir að plægja áburðinn niður í graslendi, svo sem sagt hefur verið hér að framan.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.