Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 15

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 15
15 Þótt tilbúinn áburður sé handhægari í notkun en búfjár- áburðurinn má enginn halda, að notkun hans sé vandalaus, eða sama sé hvernig eða hvenær hann er borinn á. Tilbúni áburðurinn er geysilegt hjálparmeðal til þess að auka af- rakstur ræktaðs lands, en getur vafalaust, sé hann notaður rangt eða í óhófi, auðveldlega orðið svo dýr, að ágóðinn verði lítill eða enginn. Fyrst kemur að sjálfsögðu til greina hvaða áburðarteg- undir þarf að bera á. Athugull bóndi gerir sér grein fyrir þessu eftir jarðvegi, graslagi eða hann gerir smávegis athug- anir með mismunandi áburðarblöndu á túninu. Meginregl- an verður þó þessi. Köfnunarefni gerir nær alls staðar gagn og fosfóráburður oftar en kalíáburður, en þó er ávallt betra að bera nokkurn steinefnaáburð á að óþörfu heldur en að láta liann skorta. Um áburðarmagnið verða engar reglur gefnar, en vegna þess, að notkun tilbúins áburðar hefur aukizt mjög og köfnunarefnisáburðar sér í lagi, er hættan á skökkum hlutföllum milli áburðarefna og skorti ýmissa smáefna vaxandi. Enn fremur þarf að hafa góða gát á því hvenær vaxtaraukinn, sem áburðaraukinn gefur, er orðinn svo lítill, að aukning áburðarins borgar sig ekki, en áhrif á þetta hefur náttúrleg frjósemi landsins, gróðurfar, veðrátt- an o. fl. Margt fleira getur komið til álita í sambandi við hagkvæma notkun tilbúins áburðar, eins og áburðartími og hvort bera skuli á einu sinni eða tvisvar, og er engin leið hér að ræða það allt til hlýtar. Þó skal aðeins drepa á tvö atriði: Þegar land er brotið og unnið til grasræktar, hvort heldur er um nýbrot eða endurbrot að ræða, er rétt að bera á nokk- urn forða af fósfóráburði svo framarlega sem vænta má að hans sé þörf og gera það þannig, að hann blandist sem bezt saman við gróðurmoldarlagið, eigi aðeins efst heldur í þá dýpt, sem unnið er og jurtaræturnar sækja næringu. Þegar þessi áburður er aðeins borinn ofan á, um leið og grasfræi

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.