Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 17

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 17
17 slá í 1. sinn nokkru fyrr en gert var, jafnvel þótt það hefði geiið eitthvað færri fóðureiningar, til þess að fá enn þá kraftmeira fóður einkum til mjólkurframleiðslu, því þar skiptir miklu máli, að skepnurnar geti torgað sem flestum fóðureiningum í heyfóðri. Allmikil vandkvæði eru á því að geta slegið nógu snemma vegna þess hve víðlend túnin eru orðin og þá eigi síður vegna hins, að á ýmsu getur oltið um það hve fljótt og vel gengur að hirða uppskeruna. Hér er komið að einu mesta vandamáli landbúnaðarins — heyverkuninni. Enginn bóndi er lengur vel á vegi staddur í þessum efn- um hafi hann ekki bæði súgþurrkun og góða aðstöðu til votheysgerðar, en góða aðstöðu kalla ég það, ef hann hefur hentugar, vel staðsettar og rúmgóðar votheyshlöður, er taka allt að helmingi töðufengsins og hefur aðstöðu til að fylla þær á skömmum tíma með söxuðu grasi. Ég held að flestit bændur séu allt of tregir til að hefja votheysgerðina í slátt- arbyrjun og er þó margt sem mælir með því. Sennilega er fyrri slátturinn að öllum jafnaði betri til votheysverkunar heldur en háin. Hann er mun vandþurrkaðri og því bæði hættara við hrakningi og erfiður í súgþurrkun án verulegr- ar forþurrkunar, og loks er það stór vinningur að geta losað hann frá jafnótt og slegið er og engin auðveldari leið til þess að geta komið fyrri slætti af í tæka tíð. í þessu sambandi er rétt að minnast á beit á ræktuðu landi fyrir mjólkurkýr. Síðan sá háttur varð á, að meiri hluti kúnna ber á sumrin og þó einkum á vorin, er óhjá- kvæmilegt að geta beitt þeim á ræktað land að einhverju leyti. Þessi tilhögun getur verið mjög hagkvæm, sparað fóð- urbætir og fyrirhöfn að nokkru við fóðuröflun og fóður- verkun. Miklu máli skiptir að beitin sé vel skipulögð og hirt. Bezt er að hafa allt að 8—10 spildur enga stærri en svo, að hún bítist á 3—4 dögum og hefja beitina á 1. spild- unni óðar og dálítill þeli er kominn, en slá spildurnar, sem 2

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.