Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Page 27

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Page 27
27 ætluðu mönnum að vita það, að öllu gamni fylgir nokkur alvara. Daglega voru flutt fræðandi og skemmtandi erindi, með fyrirspurnum og umræðum á eftir, en sérstakir umræðu- eða málfundir á kvöldin. Farið var eftir fastri dagskrá, en á milli þátta var farið út og stundaðar íþróttir af miklu kappi, svo sem glímur, stökk, hlaup og þó einkum fótbolti, sem margir eldri mannanna tóku þátt í af lífi og sál. Mjög mikill söngur var iðkaður þarna og höfðu Eyfirð- ingar æft sérstakan karlakór, sem varð þungamiðjan í söngn- um, en margir okkar austanmanna voru starfandi í kórum og kunnum mörg lögin, sem þeir höfðu æft, og urðum því stundum fullgildir í þeirra kór og svo að sjálfsögðu í öllum almennum söng og við messugerð, er fram fór. Þar man ég að Steingrímur læknir söng við hliðina á mér og undraðist ég hans feikna hljóð, sem yfirgnæfðu allra annarra. Sem sagt, þessir námskeiðsdagar urðu ógleymanlegar gleði- og ánægjustundir og hvað sem segja má um hina fræðilegu hlið, hafa þeir eflaust haft margs konar gildi svo sem til kynningar milli manna og héraða, ásamt til vakningar og umhugsunar um ýmislegt, sem annars hefði farizt fyrir. Að sjálfsögðu var engu sleppt viljandi, sem orðið gat til gamans eða tilhreytni, og brá ýmsu fyrir af því tagi utan dagskrár. Hér er eitt smáatvik: Ég var á þessum árum hláturmildur og gat átt til að hlægja oftar en ströngustu kurteisisreglur mundu telja viðeigandi. Allir námskeiðsmenn sátu við langborð, hver á móti öðrum, eins og títt er í stærri veizl- um. Ég og einn gáskafullur kunningi minn, áttum sæti gegnt Helga Laxdal í l'ungu meðal annarra. Helgi var með alskegg, myndarmaður, gáfaður og mælskur öðrum fremur og óspar á að ræða við sessunauta og andbýlinga. Það varð venja að sitja nokkuð lengi undir borðum að kvöldinu þó máltíð væri lokið og ræða saman um daginn og veginn. Var

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.