Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 68
Fjármagnið er sá þáttur, sem takmarkar framkvæmdir hjá
flestum frumbýlingum og mörgum, sem eitthvað hafa búið.
Til að ná settu marki undir slíkum kringumstæðum þarf
að fara krókaleiðir. Aætlunina verður þá að miða við það,
að hið takmarkaða fjármagn nýtist sem bezt og þarf þá oft
að sætta sig við lakari aðstöðu með tilliti til vinnuhagræð-
ingar og þæginda. Einn þátturinn í því, er að velja þær
búgreinar, sem auðveldastar eru með tilliti til fjárfestingar.
Það sem úr er að velja á landi hér, er ekki margt, en til
greina koma garðrækt, sauðfé, nautgripir, alifuglar og svín.
Það fer eftir legu og ásigkomulagi jarðarinnar, hverju af
þessum búgreinum er hægt að sinna. En stofnfjárþörf fyrir
þær er mjög mismikil, og því misjöfn aðstaða fyrir þann,
sem vantar fjármagn, að hefja rekstur þeirra.
Sauðfé krefst mjög mikils stofnkostnaðar og einnig mikils
rekstrarfjár og er því erfiðust allra búgreina fyrir frumbýl-
inga að frátalinni holdanautarækt, þar sem kálfaframleiðsl-
an byggist á eldi holdakúa. Mjólkurframleiðslan er mun
hagstæðari að þessu leyti. Garðræktin þarf langminnst
stofnfé.
Vegna þess hvað búgreinavalið hefur mikla þýðingu fyrir
nýtingu takmarkaðs fjármagns, er sjálfsagt að taka tillit til
þess, eftir því sem önnur búskaparaðstaða leyfir. Þeirri
skoðun hefur verið haldið mjög á lofti og að mestu ómót-
mælt, að framleiðslu hinna ýmsu búvara ætti að binda við
ákveðin landsvæði og vegalengdir á markað ættu einhliða
að ráða því hvað yrði framleitt á hverjum stað. Eg tel að
þessi skoðun byggist á algerðri vanþekkingu á rekstri bú-
skapar, sem atvinnuvegar, og að merkilegt sé að nokkur
bóndi eða búfróður maður skuli ljá 'henni eyra.
Þegar gerðar eru áætlanir fyrir aðila, sem hafa takmarkað
fjármagn er það fyrsta, sem athuga þarf, hvað mikið fjár-
magn er til staðar og hvaða lánsmöguleikar eru fyrir hendi.
Jafnframt þarf að kanna, hvaða möguleikar eru á því að
standa undir þeirri fjárfestingu, sem stofna á til. Til þess
þarf að gera rekstraráætlun.
Frumkrafa, sem gera þarf til búrekstraráætlunar, er að
72