Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Blaðsíða 71
þar raeð einstaklinganna, sem um búreksturinn sæju, sem
hver hefði sín séreinkenni.
Endurbætur á handbókinni voru m. a. í því fólgnar, að
finna sveiflur á hinum ýmsu atriðum, sem fóru eftir mis-
munandi aðsúiðu á hverjum stað, eftir staðsetningu, jarð-
vegs og veðurskilyrðum o. s. frv. Til að skýra þetta nánar
skal ég nefna dæmi og staðfæra það hér. Segjum að meðal-
framlegð af kind hjá öllum búreikningabændum í landinu
væri 1.300,00 kr. Ef búreikningar væru kannaðir nánar gæti
komið fram, að meðalframlegð hjá þeim, sem hafa bezt
beitilönd reyndist 1.600,00 kr. En framlegð af kindum í
landléttum sveitum væri ekki nema 1.000,00 kr.
Þetta er aðeins lítið dæmi, sem á að sýna, hvað auknar
uppiýsingar og úrvinnsla gætu hjálpað til við áætlanagerð,
ef þær liggja fyrir á aðgengilegan hátt. Með aukinni vinnu
og reynslu, væri hægt að leggja þeim til, sem við áætlana-
gerð fást, bætt skilyrði, sem flýttu mikið fyrir og gerðu
áætlanirnar traustari.
Enginn vafi er á því að áætlanagerð við búskap er mjög
þörf. Vegna þess, hvað búskapur er margþættur, og allt sem
þar er gert verkar langt fram í tímann, mun hvergi rneiri
þörf á áætlanagerð. Slík áætlanagerð verður alltaf vanda-
söm. Margir þættir verka á reksturinn, því er um næstum
óteljandi möguleika á tilhögun að ræða. Vonlaust er að
finna beztu lausnina, valið stendur á milli mismunandi
góðra eða erfiðra leiða. Þessi fjölbreytni gerir það að verk-
um, að erfitt er að gera upp á milli hinna ýmsu valkosta, en
hún leiðir einnig til þess, að handahófskenndar og lítt hugs-
aðar framkvæmdir verða sérstaklega vonlausar.
Til að gera áætlanirnar svo traustar, að bændur vilji taka
þær alvarlega og fari eftir þeim, en það er frumskilyrði til
að þær komi að gagni, þarf að vanda þær, og þá þarf veru-
legan tíma til að gera þær. Handbók með helztu upplýsing-
um, sem á þarf að halda, sem kæmi árlega eða með fárra ára
millibili út, væri mikil hjálp.
í sambandi við ráðunautaráðstefnu, sem haldin var fyrir
þremur árum var gerð hér talsvert markverð tilraun með
75