Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Blaðsíða 83
R. N. hefur reynt af veikum mætti að gera nokkrar athug-
anir á þessu, einkum þó í sambandi við stíuskjögur í lömb-
um. Verður væntanlega minnzt á þær síðar, en látið nægja
að sýna hvernig hvítvöðvaveiki lítur út í veturgamalli kind
(Sjá mynd). Þessi einkenni er mjög erfitt að sjá í unglömb-
um vegna þess hve kjötið er eðlisljóst.
Þetta tilfelli varð til þess að gerð var athugun á viðkom-
andi bæ, en þar veiktist ekkert lamb það vor, þótt áður hafi
verið, enda er selenskortur þekktur fyrir áraskipti.
LEIÐRÉTTING
í síðasta Ársriti Rf. Nl., 69. árgang 1972, urðu þau mistök að magn-
íummagn í jarðvegi, sem upp er gefið í töflum nr. 3 og 4 á bls. 114
og 115 í starfsskýrslu Jóhannesar Sigvaldasonar, er ekki eins og skráð
er meq Mg/100 g jörð, heldur mmól Mg/100 g jörð. Til þess að fá
meq Mg/100 g jörð, þarf því að margfalda tölurnar yfir magníum-
magnið í töflunni með 2. Þessi mistök uppgötvuðust ekki fyrr en ritið
var farið til áskrifenda, en hafa skal það, sem rétt reynist, og því er
hér með þessari lciðréttingu komið á framfæri.
87