Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Side 9
sem framleitt getur 500 þús. seiði, og er að vænta að ákvörðun
um frekara eldi verði tekin fljótlega. Þá hefur ISNO ásamt
fleiri aðilum tilkynnt að það stefni að byggingu á 5 til 10 þús.
tonna fiskeldisstöð á Reykjanesi fljótlega. Fleiri aðilar hafa
upplýst um áform um byggingu laxeldisstöðva, sem hver um
sig á að geta framleitt einhverjar þúsundir tonna, og hafa þeir
gjarnan verið í samfloti með erlendum aðilum.
Þessi fjölmiðlaumræða, sem ég hér vísa til, hefur án efa lætt
þeirri hugsun að mörgum, að fiskeldi sé ekki fyrir aðra en
íslensk/erlenda fjármálarisa. Því er hætt við, að menn hafi
ekki hugleitt eigin möguleika til þátttöku í fiskeldi sem skyldi.
Það er miður, því að mínu mati búa ýmsir bændur t.d. yfir
möguleikum til nokkurrar tekjuöflunar með fiskeldi. A þetta
bæði við um seiðaeldi og eldi regnbogasilungs og bleikju.
Jafnframt er ekki ólíklegt, að fjölskyldurekstur sjóeldisstöðva
sé heppilegra eldisform en stórrekstur í því formi sem mest
hefur verið kynntur í fjölmiðlum. Er lærdómsríkt að heyra álit
Thors Mowinckels um stærð laxeldisstöðva, en hann lét hafa
eftirfarandi eftir sér í samtali við blað norskra fiskeldismanna
Norsk fiskeoppdrett nýlega: „Eg held persónulega að
hagstæðasta stærð fiskeldisstöðva sé á bilinu 200-300 tonn.
Mjög stórar stöðvar verða of fjármagnsfrekar, og áhættan
verður mikil, þegar mikil verðmæti eru höfð á einum stað. Það
þarf mikið til, til þess að framleiða lax jafn ódýrt og stöð sem
styðst við vinnu einnar fjölskyldu. Með tilliti til samkeppni
standa þessar stöðvar sterkt, því þær geta framleitt á lægsta
mögulega verði.“ Þessi orð eru enn athyglisverðari fyrir það,
að hér talar forstjóri hlutafélagsins MOWI í Noregi (sam-
starfsaðila ISNO á íslandi), sem er eitt stærsta laxeldisfyrir-
tæki í Noregi. Það getur því verið að raunveruleiki íslensks
fiskeldis verði annar en sú mynd, sem draga má af fjölmiðla-
umræðunni.
VERKEFNI FRAMUNDAN
Hvað sem allri uppbyggingu fiskeldisstöðvanna líður, þá er
ljóst, að mörg verkefni, sem að hluta til snúa að hinu opin-
11