Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Page 47
ingar og tölur sem ég nefni hér eru ekki niðurstöður ná-
kvæmra mælinga, en byggjast á athyglisgáfu og áhuga
heimildarmanna minna. Ef eitthvað er missagt eða vansagt
tek ég gjarna við ábendingum.
Víðast fékk ég upplýsingar um það hvaða dag fyrst sæist til
sólar eftir áramót, en sums staðar var gefinn upp tíminn sem
sólarlaust var. Auðvelt er að breyta tímanum yfir í dagsetn-
ingar, því jafnlangur tími á að vera frá því sól hverfur fram að
vetrarsólstöðum eins og frá vetrarsólstöðum fram að þeim
tíma er fyrst sést til sólar. Dagsetningar kunna þó að vera
örlítið mismunandi frá ári til árs vegna hlaupársbreytinga.
Á flestum bæjum á Norðurlandi hverfur sól aldrei alveg, en
forsælubæir eru hlutfallslega flestir á mið-Norðurlandi þar
sem blágrýtisfjöllin eru hæst og dalir dýpstir. Verst settir eru
bæir í dölum sem liggja í austur-vestur stefnu, því þá skyggja
suðurfjöllin á, og er Baugasel gott dæmi um slíkan bæ.
1 V-Húnavatnssýslu sér til sólar á flestum bæjum um vetr-
arsólstöður. Inn af Hrútafirði, Miðfirði og Víðidal eru lágir
ásar sem skyggja lítið á sól auk þess sem dalir eru í norður-
suður stefnu og njóta suðursólarinnar vel. Það kemur þó á
óvart að á einum bæ í miðsveit, Víðidalstungu, hverfur sól í
nokkra daga. Það er helst á Vatnsnesi sem sól hverfur, en
flestir bæir í þverdölum þar eru komnir í eyði, nema þrír bæir
í Þorgrímsstaðadal. Þar eru bæir lengst án sólar í V-Húna-
vatnssýslu, og á Þorgrímsstöðum kemur sól fram 22. janúar.
í A-Húnavatnssýslu er stefna dala mjög suðvestlæg og þeir
eru ekki tiltakanlega djúpir. Þó eru í flestum aðaldölum ein-
hverjir forsælubæir. Lengst er Mosfell í Svínadal sólarlaust en
þar hefur dalurinn beygst meira til vesturs og skyggir Svína-
dalsfjallið á. Þá koma bæir í Vatnsdal, og er athyglisvert að
fremsti bær þar er Forsæludalur en næsti bær utan við er
lengur sólarlaus en ber samt bjart nafn og nefnist Sunnuhlíð.
Úti á Skaga eru flestir bæir í þverdölum komnir í eyði.
Þegar kemur til Skagafjarðar verða bæir í þverdölunum á
Tröllaskaga lengi í forsælu. Hins vegar eru bæir fram í suð-
urdölum ekki tiltakanlega sólarlausir, enda stefna dalanna að
mestu beint til suðurs. Á Skatastöðum, fremsta bæ í Vestur-
4
49