Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Side 69

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Side 69
stöðvarnar heyra undir þriggja manna stjórn. Sé forsvars- mönnum RALA borið á brýn að þeir hafi staðið að eflingu starfseminnar á höfuðstöðvunum en látið tilraunastöðvarnar afskiptar fjárhagslega, þvo þeir hendur sínar og segja að þetta sé fjárveitingarvaldinu að kenna, það hafi að vísu viljað efla landbúnaðarrannsóknir, en ekki á tilraunastöðvunum. Þessu trúum við varlega því fjárveitingar til RALA eru ekki nema að hluta eyrnamerktar Keldnaholti. Ef stjórn RALA hefði verið mikið í mun að efla starfsemina úti á landi, þá hefði hún getað beint hluta af heildarfjárveitingunni á stöðvarnar, t.d. með því að ráða einhverja af starfsmönnum sínum þar. Hið sama gildir auðvitað um hina ýmsu styrki sem hér hafa verið nefndir. Segja má að málið snúist um ákveðið fjármagn sem er til ráðstöfunar í landbúnaðarrannsóknir. Við teljum að þetta fjármagn nýtist best í nánd við þá sem landbúnað stunda, auk þess sem byggðaleg rök mæla með því að beina slíku fjár- magni út á land í stað þess að styrkja höfuðborgarsvæðið. Nú ber að taka það strax fram, áður en lengra er haldið, að hér er einungis verið að deila á kerfi en ekki starfsmenn þess- ara stofnana, sem fullyrða má að eru sumir hverjir á heims- mælikvarða faglega séð og skiljanlegt að þeir haldi sig frá stöðvunum, eins og að þeim er búið, þótt ekki sé þar með sagt að Keldnaholt myndi tæmast af mannskap ef hagur til- raunastöðvanna vænkaðist að mun. Af eigin raun vitum við að flestir íslenskir landbúnaðarvísindamenn eru starfsamir og eftir þá liggja margar athyglisverðar niðurstöður, en gallinn er bara sá að þessi starfsemi þarfnast til muna meiri tiltrúar bænda. Tiltrúin fæst ekki án skilnings ráðamanna á því von- litla fyrirkomulagi sem nú er við lýði og lagfæringum á því. Þar þurfa m.a. að skapast lipur tengsl við leiðbeiningaþjón- ustuna — en það er best að fara ekki frekar út í þá sálma að sinni. í umræðu um eflingu tilraunastöðvanna hefur komið fram sú skoðun meðal starfsmanna á Keldnaholti, að ef meira færi að gerast á tilraunastöðvunum hefðu þeir lítið að gera, yrðu úti í kuldanum. Telja má víst að þessu verði algjörlega öfugt 71
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.