Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Page 89
breytt skipulag og fjármögnun leiðbeininga- og rannsókna-
starfsins í landinu.
Hinn 19. júní flutti ég erindi um heimaöflun á aðalfundi
Búnaðarsambands Austurlands í boði sambandsins, en það á
80 ára afmæli um þessar mundir.
Þá sótti ég fund samnorrænna nautgriparæktarmanna
(N0K) að Laugarvatni dagana 15. til 17. júlí sl. sumar.
Ýmislegt.
Tvær greinar um búskaparleg efni hafa birst eftir mig í Frey. f
Ársrit Ræktunarfélagsins ritaði ég um heykögglagerð í Eyja-
firði og pistil um leiðbeiningaþjónustuna.
Sótt var um styrk til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins til
kaupa á nýjum og nefndum tækjakosti og hafa fengist kr.
185.000 í því skyni, sem ber að þakka.
Samkvæmt beiðni Bjarna Guðmundssonar fyrir hönd
harðærisnefndar, var unnin upp allviðamikil skýrsla varðandi
skiptingu svæða á Norðurlandi eftir heygæðum árið 1983 og
henni skilað um áramótin.
Þá tók Ræktunarfélagið þátt í útgáfu á „Grasnytjum“
Björns í Sauðlauksdal, ljósrituðum eftir handriti, ásamt
Náttúrugripasafninu á Akureyri og Prentverki Odds Björns-
sonar.
Fjölrit urðu tvö á árinu.
Lítillega hefur verið unnið að skráningu bóka á Búnaðar-
bókasafninu, en til þess var Óskar Guðjónsson bókasafns-
fræðingur fenginn sl.vor.
Úr Styrktarsjóði var úthlutað þremur styrkjum. Styrkþegar
voru Guðmundur Helgi Gunnarsson og undirritaður vegna
ferða á fundi erlendis og Búnaðarfélag Þistilfjarðar og Lang-
nesinga til bændaferðar.
Um vörusölu félagsins er ekki ástæða til að fjölyrða, en þó
var pantað ögn af vörum samkvæmt beiðni bænda og þær
afgreiddar af starfsfólki félagsins sl. vor.
Ætíð er nokkuð um að ræða spjall og þjónustu við menn
sem koma á stofuna og í síma, en því og öðrum skrifstofu-
91